Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1894, Side 78

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1894, Side 78
Líflát Kínverja. A Kmveqalandi tíðkast dauðahegningin mjög, en ekki erU Kínverjar að ómaka sig með að höggva eða hengja einn í ein'1! Iieldur eru sökudólgarnir látnir biða hver eptir öðrum, þanga8 til safnast hefur saman 20—30; þá er ekið tneð þá á aftöku- staðinn, en áður eru þeir klæddir í rauðar kápur, og hendurnaf hundnar á bak aptur, um hálsinn hafa þeir þunga járnfesti. " aftökustaðnum eru hendurnar aptur leystar, og þeim fengn®r rekur til að grafa handa sjer álnar djúpa gröf. þegar þeir er« búnir að því er festur á þá skjöldur, sem nöfn þeirra eru rituð a og glæpur sá er þeir hafa framið, að því búnu eru þeir sv° hálshögnir eða hengdir. Svör Persakonungs. Eins og kunnugt er, eru veðhlaup mjög tíð milli stor- menna í Norðurálfunni, einkum á Englandi og í París; veðja menn þar opt sín á milli stórfje um það hver af gæðingununt muni verða fljótastur; er þetta veðfje stundum svo gífurlegt að sumir verða örsnauðir, og hafa nú Prakkar reynt með löguffl! að hindra geypi há veðmál. pegar Nasreddin Persakonungu1 fyrir fáum árum var í París, var honum boðið að horfa á veð- hlaup, en hann þakkaði fyrir boðið og sagði: >Jeg hef aldrei efast um það, að einn hestur getur hlaupið harðara en annar, en mjer stendur alveg á sama, hver hesturinn er fljótastur«. Ekki fórust honum óheppilegar orð í annað sinn í storu gildi sem honum var haldið. pegar byrjað var að dansa, var hann spurður að hvort hann vildi ekki taka þátt í dansinum- »Nei«, svaraði hann, »þessa stritvinnu látum vjer þræla vora gjöra á voru landi«. Vesturheimsmaðurinn. Lögregluþjónninn: > Jeg sje að þjer munið vera ókunnngur hjer, en þjer verðið að fyrirgefa, þó jeg biðji yður að taka ofan, eins og þjer sjáið að allir aðrir gera, sem hjer eru, meðan keis- arinn er að aka fram hjá«. Vesturheimsmaðurinn: »Mjer stendur alveg á sama um alla veraldarinnar keisara og konunga. Jeg er frá Banda- ríkjunum, frjáls maður og fæddur undir stjörnumerkinu; jeg tek ekki ofan fyrir þess konar burgeisum«. L.: ».Já! en keisarinn er ríkasti maðurinn í öllu Rússaveldi og líklegast í allri Norðurálfunni«. V. (um leið og hann lyptir hattinum); »Jeg bið yður mik- illega forláts — því sögðuð þjer mjer þetta ekki undireins?« T. G. (os)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.