Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1899, Side 34

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1899, Side 34
það jafnvel fyrir fegurð náttúrunnar. Á þessum árum las hann fuglafræði, og túk að athuga lifsvenjur fuglanna. Efnafræði lærði hann af Edward hróður sinum, er var nokkuð eldri en hann, en skólastjóranrm þótti slikt nám fremur gagnslitið og ávítaði hann oft fyrir hjávinnuna. Árið 1825 var Darvvin tekinn á hart úr skólanum í Shrewsbury og sendur til Edinborgar til að nema þar lækn- isfræð'i, og dvaldi hann þar um 2 ár. Darwin hafði kor.i- ist á snoðir um, að faðir sinn mundi láta eftir sig svo mik- ið fé, að óþarft væri fyrir sig að herða sig tnjögvið lækn- isfræðina og auk þess þótti honum öll læknisfræðiskenslan við háskólann svo frámunalega leiðinleg, að hann hafði hennar litil not. A hinn bóginn komst hann þar í kynni við ýmsa unga náttúrufræðinga og þar mun hafa vaknað fyrsta hugsunin hjá honum um framsóknarkenninguna (evolutionina), sem hann varð siðav\svo frægur fyrir. Um þetta leyti gjörði hann ýmsar smáuppgötvanir í náttúrn- fræði, en jafnframt stundaði hann alls konar »sport« með brennandi ákafa. Paðir hans hafði komist að þvi hjá dóttur sinni, að Charles Darvvin mundi hafa litinn áhuga á læknisfræðinni og réð hann þvi af að taka son sinn af báskólannm i Ed- inborg. Var hann þvi sendur til Cambridge árið 1827 og átti nú að nema guðfræði. Var honum ekki á móti skapi að verða prestur, þvi trúarskoðanir hans voru enn ekkert því til fyrirstöðu. Tók hann nú að lesa guðfræði af mesta kappi, en ekki var nú orðið meira eftir hjá honum af griskukunnáttunni en nokkrir stafirnir. Jafnframt stundaði hann náttúrufræðina af engu minna kappi en áður. Þá er hann hafði verið þar nærri 4 ár, var honum boðið að vera með i rannsóknarferð þeirri, er kapteinn Ií Fitzroj^ ætlaði að fara umhverfis jörðina á skipi því, sem Beagle var nefnt. Tók hann þvi hoði feginshendi. Lagði skip þetta af stað frá Plymouth 27. des. 1831, og kom aftur 2. okt. 1836, eft- ir nærri 5 ára fjarveru. Nú gat Darwin eingöngu gefið sig við náttúrufræðinni, enda lærði hann firnin öll á ferð þessari, og gjörði óteljandi athuganir, einkum í jarðfræði (26)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.