Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1899, Side 36
tegundanna* kom út, hafði alnient verið álitið, að i óndverðu
hafi myndast eða verið skapaðar jafnmargar tegundir jurta
og dýraogfyndust á jörðunni, og að afkvæmið hlyti óhjákvæmi-
lega að vera sömu tegundar og foreldrarnir, og höfðu fáir þor-
að aðímynda sér annað, nerna frakkneski náttúrnfræð'ingurinn
Lamark,er var uppi á f 8. öld, og sömuleiðis Erasmus, afi Charles
Danvins. Að sönnu hafði kenning þessi verið til frá því
á dögum Grikkja, en hún er fyrst bygð á ákvörðuðum vis-
indagrundvelli á þessari öld. Tók Darwin að hugsa um
þetta meðan hann dvaldi á háskólanum i Edinahorg, en fyr-
ir alvöru vaknaði |)ó hugur lians á þessu atriði á hinni
löngu rannsóknarför. Þegar hann var kominn lieim gjörði
hann afarmargar tilraunir i þessa átt hæði á plöntum og
dýruui, og færðn þær honum ailar heim sanninn um það, að
loftslag og lifnaðarhættir breyta tegundum jurta og dýra á
óteljandi vegu, og að ])að sem upphaflega er kaliað ein teg-
und, get.ur eftir langan tima verið klofnað í margar aðrar.
Náttúrufræðingurinn Alfred Wallaee hafði komist að sömu
niðurstöðu, og árið 1858 kom sín ritgjörðin út eptir hvorn
þeirra Darwin og Wallace um þetta efni. Þeim var litill
gaumnr gefinn, en árið eftir kom »Uppruni tegundanna« út,
og þá varð annað uppi á teningnum. Eyrsta útgáfan
(1250 eintök) var seld sama daginn og hún kom út, og árið
1876 var húið að selja 16 þús. af bók þesssari á Englandi
og þýða hana á flestar tungur Xorðurálfunnar. I riti
þessu sýnir Darwin með ljósnm rökum, hvernig tegundir
dýra og jurta eru hneigðar fyrir að aflikjast hver annari,
sem sumpart kemur fram í náttúrunni, sumpart við ræktun
af mannahöndum, og að loftslagið, landslagið, fæðan og
lifnaðarhættirnir eru helztu orsakirnar, sem þektar eru að
valdi ]>essu, og þar að auki nauðsynin til, að verja sig
gegn ytri árásnm, o. fl. 1 annan stað koma til greina
erfðalögin eða að dýr og plöntur erfa eiginleika foreldris-
ins, og það því fremur, ef báðir foreldrarnir hafa hið sama
séreinkenni, enda _þó erfðaeinkennin komi oft bezt í Ijós í
öðrum eða þriðja lið. Þá er og baráttan fyrir tilverunni
Viðkoman er svo mikil bæði af plöntum og dýrum, að ó-
(28)