Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1905, Page 73

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1905, Page 73
Árið 1901 þáðu sveitarstyrk 1036 karlmenn og 1294 kvenmenn, það er 3°/0 af öllum landsmðnnum. Árið 1880 voru þeir 3,4 °/0 og 1801 4,6°/o; er þetta gleðilegur votturþess, að efni og menning í landinu hefur aukist talsvert næstl. öld. Þó eigi séu til nákvæmar skýrslur frá fyrri árum um það, hve margir hafa lifað af handverki og iðnaði, verzlun og samgöngum, þá hlýtur sá flokkur að hafa aukistmjög síðustu 20 árin, en af skýrslunni V sést þetta. Trésmiðir eru langflestir, og örmull er til af saumakonum, en aftur er furðanlegt, að steinsmiðir eru ekki fleiri í jafn stein- ríku landi, sem Island er. Skýrslan VI sýnir, að alla næstliðna öld hafa karl- menn verið færri en kvennmenn, sem er aíleiðing þess, að vinna karlmanna á sjó og landi er hættul,egri en kvenna, það sé6t af skýrslunni VII. Það telst svo til að á tima- bilinu 1880—1890 hafa flutt úr landina fleiri en inn fluttu 2960 karlmenn og 3342 kvennmenn og 1890—1901 karlm. 1127 og kvennm. 1605. Þetta sýnir, að fækkun karlm. I samanburði við kvennmanna stafar eigi af flutningi til Ameríku, heldur er mismnnurinn sprottinn af slysförum og strangri og hsettulegri vinnu karlmanna. Eigi erheldurorsökin sú, að færri sveinbörn fæðist, því eins og sjá má af skýrsl- unni VIII, fæðast fleiri börn karlkyns en kvenkyns, og fram að tvítugs aldri eru fleiri af kyni karla en kvenna, en eftir þann aldur fækkar karlmönnum óðum. Árið 1901 voru utan þjóðkirkjunnar 194 karlm. og 100 konur, eins og sést af skýrslunni IX; en síðan hefur utan þjóðkirkjumönnum mjög fjölgað, einkum í Reykjavík. í skýrslunni X eru vanheilir taldir að vera 632, en væri talin berklaveiki og fleiri innlend veikindi, mundi sú tala aukast yfir helming. Landssjóður hefur talsvert hlynt að holdsveikum mönnum og heyrnar- og málleysingjum, en geðveikum og vitskertum mönnum hefur hann enga líkn veitt, og má það eigi ganga svo mörg árin enn þá. Tr. a. (67)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.