Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1905, Side 89
Að því er snertir veðdelldarlán skal það tekið fram
að lántnkendur verða nð Ieggja fram öll hín sömu skilríki,
sem þórf er á við fasteignarveðslántöku i landsbankanum,
En við veðdeildarlánið er það sérstaklega athugandi, þeg-
ar um jarðeign er að ræða, að í virðingargjörðinni verður
sérstaldega að tilgreina mat á jörðunni sjálfri húsalausri
og sérstaklega á húsum þeim, sem á jörðunni eru, og þá
að sjálfsögðu að tilgreina þau,
Þegar á að veðsetja hús má eigi gleymast, að láta
vátryggingarskírteinið (Police) fylgja með lánbeiðninni og
eignar heimild fyrir lóðinni, sem húsið stendur á, eða
leigusamning um hana. Áríðandi er að gleyma þvi eigi,
að gjalddagi á afborgun og vöxtum í veðdeildinni er 1.
október ár hvert. Sala á veðinn er ömmflýjanleg ef eigi
er staðið i skilum, og dráttarvextir eru mjög háir, 1%
hvern mánuð. Tr. G.
Munið eftir:
Að fara vel með hestana, leggið ekki of þungar byrðir
á þá og hlífið fjörhestinum. Látið hestana ekki ganga
berfætta. þegar þeir eru að bera baggana fyrir yður eða
yður sjálfa. Látið hestana ekki ganga á gaddinum iangt
fram á vetur án húsaskjóls. Hættið þeim Ijóta vana, að
berja „fótastokk“ og hnýta hestum í taglið, allra sízt naut-
um. Venjið hestana á að gangast fyrir góðu, fremur en
illu. Sundleggið ekki hesta i vetrarfrosti, þegar hjá því
verður komist. Seljið ekki gamla hesta, sem lengi hafa
þjónað yður, gleymið ekki langri og trúrri þjónustu. Þeg-
ar þeir eru orðnir gamlír þurfa þeir hjúkrunar og vægr-
ar meðferðar. Horfið ekki aðgjörðalausir á, að druknir
menn eða illmenni berji hesta sína eða brúki þá halta eða
meidda. Minnist þér þess, hve hesturinn er auðsveipur,
hlýðinn og kröfulaus og ómissandi þegar þér ferðist á
landi, eða þurfið að flytja eitthvað til heimilisins, hann á
skilið að fá fyrir þetta vinsamlega meðferð, og aðra borg-
gaddinn og hrakning milli ókunnngra á elli árum.
(83)
un en