Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1910, Blaðsíða 4
A f>essu ári teljast liðin vera:
frá Krists fœðingu 1910 ár;
ítá sköpun veraldar .................................... 5877 ár;
frá upphafi júlíönsku aldar............... 6623 -
frá upphafi íslands hygðar.............................. 1036 -
frá siðabót Lúthers.................................... 393 -
frá fæðingu Friðreks konungs hins útlunda................. 67 -
KONUNGSÆTTIN í DANMÖRKU.
FRIÐREKUR konungur VIII., konungur í Danmörku, Vinda og
Gotna, hertogi af Sljesvík, Holtsetalandi, Stórmæri, þjóðmerski,
Láenborg og Aldinborg, fæddur 3. Júní 1843, kom til rík’S
29. Janúar 1906; honum gipt 28. Júlí 1869 drottning Lovisa
Jósephína Eugenía, dóttir Karls XV. Svía og Norðmanna
konungs, fædd 31. Október 1851.
Börn þeirra:
1. Krónprins Kristjún Karl Friðrekur Alhert Alexander
Vilhjálmur, fæddur 26. September 1870; honum g'P1
26. Apríl 1898 Krónprinsessa Alexandrina Ágústa,
hertogaynja af Mecklenburg-Schwerin, fædd 24.
December 1879.
þeirra synir:
1. Kristján Friðrehur Franz Mikael Karl Valde-
mar Georg, fæddur 11. Marts 1899.
2. ICnútur Kristján Friðrekur Mikael, fæddur
27. Júlí 1900.
2. Ilúkon VII., Noregs konungur (Kristján Friðrekur
ICarl Georg Valdemar Axel), fæddur 3. Ágúst 1872;
honum gipt 22. Júií 1896 Maud Karlotta María
Viktoría, dóttir Játvarðar VII. Bretakonungs, fsedd
26. Nóv. 1869.
3. Uaruldur Kristján Friðrekur, f. 8. Oktbr. 1876.
4. Ingibjörg Karlotta Karólína Friðrika Lovísa, fædd
2. Ágúst 1878, gipt 27. Ágúst 1897 prinsi Oskar
ICarli Vilhjálmi, erfðaprinsi Svíþjóðar og Noregs,
hertoga af Vesturgautlandi, fæddum 27. Febr. 1861.
5. þyri Lovísa Karólína Amalia Ágústa Elísabet, fædd
14. Marts 1880.
6. Kristján Friðrekur Vilhjálmur Valdemar Gústav, >
fæddur 4. Marts 1887.
7. Dagmar Lovísa Elísabet, fædd 23. Maí 1890.