Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2004, Blaðsíða 24
•* 24 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004
Fókus 0V
Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is
Árni Egilsson kemur heim á
Jazzhátíðina í Reykjavík
Stríður bassaslagur^ uppsiglingu
Komnnn Árni Fnilccnn ctíniir nfti ir fÁt- /V v hoimc/\lrn Árnn Fnilccnnnr com
Kempan Árni Egilsson stlgur aftur fót■
um á sfna fornu fósturjörð f tilefnl
afJazzhátíö sem varir I fimm daga
og fímmtán konserta I Reykjavlk
aö frátöldu spileríl á þremurjazz-
klúbbum sem veröa í gangi
meöan á fjörinu stendur,
Hefst hátlðin þann 29. sept.
og varir fram til 3. okt.
Hátfðin státar afhingaö-
komu piltsins frá
Belfast - Van Morrls-
son-sem held-.
urhljómleika f
HöHinniþann 2.
okt., en aö honum ólöstuö-
um vekur ekki minni athygli
heimsókn Árna Egilssonarsem
veröur hér meö bassakonsert f
slagtogi við Niels Henning Úrsted
Pedersen, þann prúöa Dana og grimma
bassaleikara, ogþáer ótalinn sá
þriðji: bassistinn Wayne Darl-
ing.
Þessir piltar þukla og slá
strengi slna á Sögu föstu-
daginn l.okt.ásamt píanista,
Fritz Pauer, og trymblinum
John Hollenbeck.Erhætt við
að súlur svigni það kvöldog
glerin titri.
Fjölbreytileg dagskrá er sjáan-
leg á vef hátíöarinnar reykja-
vikjazz.com/press/.
Glás af bókum á boðstólum
Bókamarkaður fram í október
Nokkur menntuðustu forlög lands-
ins i útgáfu á fræðiritum afýmsu tagi
hafa skellt saman i væna tilboðsmessu
i bókabúðum Máls og menningar og
Eymundssonar i Reykjavik. Forlögin
eru Háskólaútgáfan sem ræðuryfir
allstórum og merkilegum
katalók og hin fornu útgáfu-
félög Sögufélagið og Hið
íslenska bókmenntafélag
sem hafa bæði starfað á ann-
að árhundrað og eiga góðan
lager fyrir tilboðssölu. Á
markaði þessara útgefenda
verður boðið uppá mikið úr-
val vandaðra og fróðlegra
rita á finu verði: er lofað allt
að 75% afslætti. Fróðleiks-
fúsir ættu að sjá sér leik á borði og
massa upp hjá sér bókaforðann, til
heimabrúks og gjafa, fyrir unga sem
aldna, karla og konur. Hér leynist mörg
holl stórafmæfísgjöfin og jólin byrja
snemma í ár.
*
SINFÓNÍAN er búin aö vera á milli tanna
Moggans undanfarna viku og hart á for-
ystu hennar deilt fyrir popptendensa og
að sniöganga fslenskt talent, aðallega
tónskáldln, bæði lifandi og
dauö. ÞaÖ kemur vel á
vondan aö á
fímmtudaginn er
Sinfó með konsert
þar sem gömul og
nýbíótónlistverð-
urleikin og sungin.
Tilsöngsins hefur
veriö ráöinn einhver
breskur crooner og þykir
mönnum þaö hálffyndið -1 sömu viku
heldur Ragnar Bjarnason upp á sjötugs-
afmæli sitt og heföi
verið öllu nær að fá
hann til aö taka slna
standarda meö bandinu en einhvern
breskan strák. Það eru ekki bara tón-
skáldin okkar sem þykja annars flokks
heldur söngvararnir okkar llka hjá stóra
bandinu á Melunum.
Flugan
TlMARIT MM er komið út I ritstjórn Silju
Aðalsteinsdóttur. Rfflega tuttugu höf-
undar leggja þessu gamla og ágæta
tfmariti HÖ, en eins og oft áöur er um-
ræða fyrirferðarmikil íheftinu. Aldurtili
Ijóösins, sjálfsævisögur, iþróttirsem bók-
menntaþema, tiltrú
manna á Rússland
fyrr og siöar, Ijóð
og ritdómar, að
ónefndum fyrri
hluta bréfs Þór-
1 bergs til Mattías-
arJóhannessen.
Beittastar eru tvær
greinar, önnur eftir
Jónas Sen um Sinfóní-
una og hlutnú-
b'tnatónlist-
arsem er
I anda þeirra sjónarmiöa sem hann hefur
nýlega haldiö fram i Mogganum, hin eft-
ir Hugin Frey um fréttaflutning þess
sama blaðs afstrlðinu f Irak. Veröur fróð-
legt aö sjá fréttastjóra erlendra frétta og
ritstjóra snúa sig úrþeirri gagnrýni.
ISAMA hefti svarar Guömundur Andri
Thorsson Innan sviga
gagnrýni sem fram
hefur komiö á Náö-
arkraft sinn frá sið-
ustu jólavertíö: hann
er reyndar að skrifa
ágæta grein um
sjálfævisögur sömu
vertlðar: Þráinn, Jón
Kalman og Bjarna
Bjarnason en þar
segir þetta:,,... og
þóeittogannað
hendi þá er„ekkert
aö gerast" elns og
nútlmalesendur myndu
upplifa þaö, persónur
koma og fara án þess
aö þjóna„plottinu“
sem nútimalesendur
hafa þvi miöur vanið
sig á aö þurfa I frá-
sögnum rétt eins og
sykurimaf.Aftari
heftinu
skrifar
Þorleifur
Hauksson
jákvæöan
dóm um Náö-
arkraftinn en
endar á um-
kvörtun: pistlahöf-
undur taki við af
skáldi, sögulega grund-
völlun skorti. Sagan sé einföldun,„kyrr-
stæö", án„neinnar æsitegrar atburöa-
rásar". Þannig kallast menn á, en tala
ekki saman. Svo getum viö rætt hvort
„plottið“ er salt, sykur eða trefjar, sinar
eöa vöövar.
Sigurför Sellófan heldur áfram. Italía, Belgía og Svíþjóð hafa fengið að sjá verkið
og í síðustu viku var verkið frumsýnt í Kaupmannahöfn. Björk Jakobsdóttir var
viðstödd sýninguna og líkaði vel þótt hún hafi á köflum verið að fara á tauginni.
Frumsýning var á Sellófan í
Kaupmannahöfn á föstudag í síð-
ustu viku. Nú bíða menn milli vonar
og ótta eftir að dómar fari að
streyma úr dönsku pressunni sem er
þekkt fyrir harða gangnrýni. Verkið
var sviðsett af Charlottu Böving sem
þekkt er af sviðsetningu sinni á
Hinni smyrjandi jómfrú sem sýnt
var í Iðnó við góðar undirtektir
áhorfenda. Það er flutt í Folketeatret
sem hefur í nær heila öld skotið
skjólshúsi yfir alþýðusýningar og
nýtur mikillar virðingar meðal leik-
húsfólks í Kaupmannahöfn. Leik-
konan heitir Birgitta Simonsen og
verður verkið á fjölunum til 16.
október næstkomandi.
„Var á tauginni"
Björk Jakobsdóttir sagðist hafa
verið á tauginni. Hún væri ómögu-
legur áhorfandi að verki sem hún
hefði leikið sjálf tvöhundruð sinn-
um, skrifað og hugsað. Hún þekkti
það eins og lófann á sér og væri því
ekki marktæk. Henni hefði komið
mest á óvart eins og fyrr hvar út-
lendir áhorfendur hlógu. Það væri
hennar reynsla að hver menning
hefði sinn húmor og sínar hlátur-
rokur, en viðbrögð hefðu verið góð.
Áhorfendur hefðu nú sem oft áður
kannast við sjálfa sig í aðalpersónu
verksins, það er að segja konurnar.
Karlarnir eru víst ekki eins mikið fyr-
ir að trana sér fram og lýsa yfir að
þeir þekki gersamlega þær aðstæður
sem ung kona í karríerklift með tvö
börn, karl og móður finnur sig í.
Útrás atvinnuveganna
Sellófan er eitt nokkurra íslenskra
verka sem náð hefur dreifingu á er-
lendum mörkuðum. Englaböm eftir
Hávar Sigurjónsson verður frumsýnd
í vikunni í Kaupmannahöfn og hefur
það ekki gerst áður að tvö nýleg
íslensk verk séu frumsýnd í borginni
með nokkurra daga millibili.
Og Sellófan er á fleygiferð: verkið
var fyrr á árinu ffumsýnt á Ítalíu og í
Belgíu, í fyrra var það leikið í Zurich
og framundan er frumsýning í
Örebro í Svíþjóð. Pólskir aðilar em að
vinna að undirbúningi sýningar og
fleiri leikhús hafa lýst áhuga.
Hádegisverðarfundur
Annars má Björk ekkert vera að
því að tala við DV. Hún er á leið á
hádegisverðarfund ásamt stöllum
sínum úr 5stelpum. Þær em að ráða
ráðum sínum fyrir væntanlega upp-
töku þeirrar sýningar á Broadway þar
sem leikhúsgestir geta notið veitinga
meðan farið verður með eintöl úr
sýningunni. „Svo bætum við ein-
hverju við sem er að gerast, því sem
við viljum taka á og svona," segir
Björk á leiðinni í kápuna. „Ertu
greidd?" spyrjum við nærfæmislega.
„Djö.....!“
Óperuhúsið í Sydney loksins klárað fjörutíu árum eftir að það var vígt
Sigla himinfley
Eitt þekktasta hús í hinum vest-
ræna heimi er Óperuhúsið í Sydn-
ey. Það var lengi í byggingu og hafði
nær sett Sydney-borg á hausinn
þegar það var reist. Höfundur að
byggingunni var danskur arkitekt,
Jörn Utzon. Hann sagði sig frá
byggingunni eftir miklar deilur við
borgaryfirvöld 1966. Sjö ámm síðar
var húsið vígt og höfðu þá ástralsk-
ir arkitektar klárað ffágangsteikn-
ingar að húsinu að innan. Húsinu
var formælt og því talið allt til for-
áttu. Utzon hélt áfram að starfa
víða um heim og varð eitt af stóm
nöfnunum í arkitektúr tuttugustu
aldar. Óperuhúsið óx hægt og ör-
ugglega í áliti og er nú tahð helsta
sérkenni borgarinnar.
Það þóttu því tíðindi þegar
Utzon sem er orðinn hálfníræður
og býr á Mallorca fékkst til að klára
húsið. Hefur sú vinna staðið frá
1999. Móttökusalur hússins er ger-
breyttur. Eldri innréttingar vom
rifnar og Utzon hannaði nýja lýs-
ingu, breytti gólfum og áferð á bit-
um hússins, hannaði húsgögn, ljós
og gríðarstórt veggteppi í sahnn úr
pappír byggt á Hamborgarsinfóníu
Bachs. Var salurinn vfgður á
fimmtudag í síðustu viku og em
allir í skýjunum.
Jörn Utzon er
hins vegar harður
prinsippmaður. Hann
hefur ekki séð húsið síð
an hann hvarf ffá Sydn-
ey 1966 og því
verður ekki breytt.
Hann mætti ekki í
boðið.
r