Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2004, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2004, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 Fréttir DV Vinurspyr: SæU. Um daginn tjáði ágætis vinur minn mér að hann finni stundum fyrir mikilli þörffyrirað girða niður um sig á almannafæri en hann hefur reyndar aldrei gert það. Hon- um virtist líða mjög illa og sagði mér þetta senni- lega bara af því að hann var drukkinn. Hann býr einn og hefur alitaf verið svo- lítið sérstakur. Er hann svona “flassari’’ eins og maður heyrir stundum talað um og af hverju eru menn svona? Sæll, ég á kannski erfitt með að fullyrða hvort vinur þinn er “flassari”, eins og þú nefnir það, út frá þessum iýs- ingum. Hins vegar get ég frætt þig aðeins um hvernig sál- fræðin/geðlæknisfræðin skil- greinir vandamál þar sem fólk hefur kynferðislega þörf fyrir að "girða niður um sig”. Þetta nefnist sýnisþörf (exhibitionism), en einstaklingar sem eiga við þetta vandamál að etja eru í dag- legu tali oft kallaðir “flassarar”. Sýniþörf felur í sér löngun ein- staklingsins að sýna kynfæri sín ókunnugum. í flestum tilfellum þarf “fómarlambið" að vera ókunnugur, þannig að einstakl- ingar með þessa þörf fá ekki kyn- ferðislega örvun ef þeir "flassa” gagnvart fólki sem þeir þekkja. Þegar einstakiingur með sýniþörf “flassar” stundar hann ósjaldan sjálfsfróun, en reynir nánast aldrei að fara lengra í einhverskonar kynferðislegri hegðun gagnvart viðkomandi og nauðgar þar af leiðandi ekki fórnarlambi sínu. Hluti af örvuninni, sem einstakl- ingurinn upplifir, verður við að sjá áfallið og undrunina hjá þeim sem hann sýnir kynfæri sín. Auk þess vonar "flassarinn” að fórnarlamb- ið upplifi sjálft kynferðislega örv- un við að sjá kynfæri hans. Flestir sem þjást af þessu virðast vera karlmenn og fórnarlömbin em í meirihluta konur eða börn. Þó að talið sé að flestir sem greinast með sýniþörf séu karlmenn þá er þetta eitt að þessum vandamálum sem erfitt er að hafa fulla yfirsýn yfir og því erfitt að fullyrða um hlutfall kvenna og karla. Margir hafa t.d. ályktað að konur með sýniþörf leiti að “viðurkenndri” leið tfi að sýna sig eins og vinna sem “stripparar”. Þjást af skömm og sektarkennd Það ber venjulega fyrst á sýni- þörf fyrir 18 ára aldur og erlendar tölur um handtökur benda til að það dragi úr sýniþörfinni eftir fertugt. Það er mikilvægt að taka það fram að margir þjást af sýni- þörf og bregðast ekki allir við henni með því að “flassa”, sumir bæla þörfina niður og enn aðrir reyna að láta sér nægja kynferðis- lega draumóra um að “flassa”. Margir þeirra sem upplifa sýni- þörf þjást af mikilli skömm og sektarkennd. Vanlíðanin er oft það mikil að það truflar vinnu og félagsleg samskipti. Þá virðist sýniþörfin vera að einhverju leyti aðferð til að draga úr streitu. Það hafa ýmsar kenningar verið settar fram um orsök sýniþarfar. Ein þeirra er sú að fólk sem upplifir í barnæsku einhverskonar óeðli- lega kynferðislega hegðun telji t.d. “flassarahegðun” eðlilega. önnur kenning felur í sér að fólk sem nær ekki að tengjast öðrum og upplifa eðlilegt kynlíf, leiti eft- ir öðrum leiðum til að svala kyn- ferðlegri þörf, t.d. með því að “flassa”. Enn önnur kenning feiur í sér lífeðlislega skýringu. Til að aðgreina ýmsa aðra hegðun frá því sem við nefnum „Hluti aförvuninni, sem einstaklingurinn upplifir\ verður við að sjá áfallið og undrun- ina hjá þeim sem hann sýnir kynfæri u sin. hér sýniþörf, þá má í rauninni segja að margir upplifa einhvers- konar sýniþörf á mismunandi aldurstigum án þess að það falli undir þessa greiningu. Hér á ég við t.d. lítið barn sem gengur í gegnum tímabil að sýna kynfæri sín gestum og gangandi, ungling- ar að sýna á sér afturhlutann ("moona”) og fólk sem klæðist Spyrjið sálfræðingana DV hvetur lesendur til að senda inn spurningar til Eyglóar og Björns. Þau svara spurningum lesenda í DV á miðvikudögum. Netfangið er kaerisaliiEdv.is. Börnum sem sofa með Ijósin kveikt hættara við hvítblæði Breskir vlsindamenn vöktu nýlega athygli á því að börnum sem sofa með Ijós kveikt I herbergjum sfnum sé hættara við að fá hvítblæði en þeim sem sofa í myrkri. Vísindamennirnir hafa komist að því að tikam- inn þarfað vera í myrkri tii að framieiða meiantónin, efni sem hann notar meðal annars til að vinna gegn krabbameini. Þeir segja að heitinn hætti að framleiða efnið um leið og tjós sé kveikt. Það að kveikja Ijósið á kiósettferðum næt- urinnar eða vaka frameftir nægi til að stöðva framleiðslu melantóníns. Það gerist einnig þegar farið eryfir timabelti i fiug- vélum og visindamennirnir segja að götuljós að kvöldlagi geti iíka stöðvað framleiðsiu melantóníns. Mengunin ikil á börum „Andrúmsloftið á börum og veftingastöðum þar sem reykingar eru leyfðar hefur helmingl meira af krabba- meinsvaldandi efnum en umferðargata f stórborg á háannatfma," segja banda- rfskir sérfræðingar. Þetta gildir þrátt fyrir að staðirnir hafi loftræstingu Hins veg- ar breytist allt þegar búið er að banna reykingar stöð- unum. Sérfræðingar könn- uðu andrúmsloftið á sex börum, einni ballskákstofu og einu spilavfti með þriggja mánaða millibili, áður en reykingabann tók gildi og sfðan aftur eftir að það tókgildi. Indverjar þróa lyfja- hlaup Indverskum sérfræðing- um gengur vel í að þróa lyijahlaup sem gæti leyst piÚur, hylki og sprautur af hólmi í framtíðinni. Mörg- um finnst vont að gleypa pillur og hylki, meðal ann- ars börnum og einnig kvíða margir sprautum. Sérfræð- ingarnir segja að meðal annars gæti indverska lyfja- hlaupið breytt lífi sykur- sýkissjúklinga sem þurfa að sprauta sig daglega og sjúk- linga sem þjást af ýmsum meltingarfærasjúkdómum. 1 í Markinu stendur yfir golfútsala og eru vörurnar með 20 til 70% afslætti. Burðarpokar kosta frá 3.960 kr. og kerru- pokar frá 5.450 kr. Barna- og unglingagolfsett í poka kosta frá 10.740 kr. og stakar kylfur, pútterar kosta frá 1.440 kr„ kylfur úr járni frá 1.950 kr. og úr tré frá 2.240 kr. Golfskór kosta frá 6.230 kr. • í Múrbúðinni eru allar málning- arvörur á tilboði. Tíu lítar af akríl- innimálningu með gljástigi sjö kosta 2.695 kr. Þar fást einnig grunnar, akrillökk, viðarvörn og þakmálning. • Af- skorin blóm eru nú á lægra verði í Blómaportum verslunum Blómavals. • Dermasoft blautklútar eru með 20% afslætti þessa dagana í verslun- um Lyfja og heilsu. Þá er til kynn- ingar nýr heilsudrykkur frá Heisal Aloe með aldinkjöti úr Aloe Vera plöntunni og viðbættu kalki. Drykk- urinn er góður fyrir magann, melt- inguna og húðina. • Þjóðlagagítar með poka kost- ar 14.900 kr. í Gítarnum við ögrandi fatnaði en sem telst innan eðlilegra marka í okkar samfélagi. Meðferð í stað refsingar Ef vandinn er hins vegar við- varandi (yfir 6 mánuði) og um kynferðislega örvun er að ræða við að sýna kynfærin, fellur það undir sýniþörf og mikilvægt er að leita sér aðstoðar. Því miður er það þannig að, eins og með mörg önn- ur vandamál sem valda mikilli sektarkennd, fólk heldur þessum vanda gjarnan fyrir sig og leitar sér sjaldan aðstoðar. Ef einstaklingur hefur enn ekki “flassað” en aðeins haft draumóra um það er ekki um refsivert athæfi að ræða og því ætti að vera auðveldara að leita sér aðstoðar. Sumsstaðar erlendis, þar sem dómstólar geta kraflst meðferðar r stað refsingar, virðast það helst vera þeir sem handtekn- ir eru við að “flassa” sem eru í ein- hvers konar meðferð við vandan- um. Meðferðin tekur oft töluverð- an tíma en hægt er að vinna bug á þessari þörf með mismunandi sál- fræðilegum meðferðarleiðum. Einnig hafa lyf, sem draga úr kyn- ferðislegum draumórum og kyn- hvöt, verið notuð. Gangi þér vel. Bjöm Harðarson sálfræðingur Sýniþörí á mismunandi aldursskeiðum ráö til aö viðhalda saarhei

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.