Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1912, Qupperneq 26
Árið 1910 sáust tvær nýjar halastjörnur. Önnur þeirrft var
sú stóra skrautlega halastjarna, sera alt í einu birtist í Janúar og
líka sást á íslandi.
í sambandi við halastjörnurnar standa STJORNUHRÚP. þau
sjást á hverri heiðskírri nótt. En á vissum nóttum á árinu eru
þó meiri brögð að þeim en venjnlega. Slíkar nætur eru: næt-
urnar kringum 22. Apríl, 10. Agdst, 14. Nóvember og stundum
einnig 27. Nóvember.
Næsta ár, 1913, ber páskana upp á 23. Marts.
ÚR TILSKIPUN 3. FEBRÚAR 1836.
VII. atr. um almanök;
1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyfi, sem Kaup-
mannahafnar háskóla er veitt til að gefa út almanök,
annaðhvort með því að flytja til Islands eða selja útlend
almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20
til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í
Danmörku (op. br. 5. Ag. 1831); þau almanök eru og
upptæk, sem finnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þar
á ofan x/4 rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Helming sekta-
fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskólinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en
annar helmingur gengur til stjörnuturnsins í Kaup-
mannahöfn.
2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að
enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var talið.
3. gr. Öll mál, sem rísa af að einkaleyfi þetta er
skert, skal fara með sem opinber lögreglumál.
Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta.
Almanak þetta kostar óínnfest I o aura, en innfest 11
aura, alstaðar á Islandi og f Danmörku; en Gyldendals bóka
verzlan í Kaupmannahöfn, sem hefir sölu-umboðið, er skyld til
að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest á 9 aura, þeim sem
kaupa 50 eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt
að skila aptur óseldum almanökum, ef það er gjört innan árs-
loka 1912; verður þeim þá borgað andvirði þeirra, sem óslcödduð
eru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sem óinnfest; skyldir
eru þeir og að sýna reikninga bólcaverzlunarinnar, ef krafizt verður.