Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Blaðsíða 52
herjarmót f. S. í. fór fram i sambandi við þjóShátíð-
ina. K. tt. vann mótið á stigum. Helztu sigurvegarar
voru: Oliver Steinn, Þorkell Jóhannesson, Kjartan
Jóhannesson, Gunnar Huseby, Skúli GuSmundsson,
HörSur Hafliðason, Sverrir Magnússon, Jóel SigurSs-
son, Óskar Jónsson, Indriði Jónsson og Jón Hjartar.
Tvö afrek á mótinu vöktu sérstaka eftirtekt og mega
teljast ágæt, þó að mælt sé á heimsmælikvarða. Þau
voru kúluvarp Gunnars Husebys og þrístökk Skúla
GuSmundssonar.
íþróttakennarar úr skólum Reykjavíkur og ná-
grennis hennar efndu til skólasýningar. Sýndu þar
22 flokkar fimleika.
MikiS kvaS aS fjallgöngum á árinu. Um páskaleyt-
iS gekk margt manna á jökla. Um þær mundir gengu
4 menn þvert yfir landið á skíSum.
Margir íþróttaflokkar fóru um landið og sýndu
fimleika eða tóku þátt í íþróttamótum. Flokkur karla
og kvenna úr í. II. fór um nokkurn hluta VestfjarSa.
Flokkur karla og kvenna úr „Ármanni“ fór um Vest-
firði alla og glímuflokkur um Austfirði.
Þorgeir Sveinbjarnarson var ráðinn l'ramkvæmda-
stjóri til í. S. í. Siðar á árinu tók Þorgeir við stjórn
Sundhallarinnar í llvík, er Sigríður Sigurjónsdóttir
lét af því starfi.
íþróttanefnd ríkisins úthlutaði á árinu 472 000 kr.
úr íþróttasjóði. Hlutu 70 umsækjendur styrk. Runnu
301 000 kr. til sundlaugabygginga. 5 nýjar sundlaug'-
ar voru teknar til afnota á árinu. 0 nýir fimleikasalir
voru teknir í notkun. Auk þess voru sundlaugar
stækkaðar (t. d. á Reykjanesi) og nýir skiðaskálar
reistir. 250 409 manns sóttu Sundhöll Rvíkur á árinu.
1 Súgandafirði hefur sundlaug nú verið starfrækt í 10
ár, og eru þar 41.5% af íbúunum syndir. Stúlka ein
synti yfir EyjafjörS á árinu. Sundkunnátta bjargaði
mörgu fólki frá drukknun á árinu.
(50)