Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Blaðsíða 87
árlega og námsefni aukið, bætt við ensku og efná-
fræði. 1934 var staðfest ný reglugerð fyrir skólann.
Inntökuskilyrði voru þyngd. Héraðsskólaprófs, 2
vetra gagnfræðaprófs eða sem því svaraði, var nú
krafizt upp í 1. bekk. Æfingakennsla var aukin til
muna, einkum smábarnakennsla.
Meðal kennara hefur ætið verið mikill áhugi fyrir
aukinni menntun kennara. F'yrir nokkrum árum
komu m. a. fram raddir um það frá þeim, að undir-
búningsmenntun kennara skyldi fara fram í háskól-
amun að loknu stúdentsprófi. Árið 1943 voru sam-
]jykkt ný lög úm kennaraskólann. Aðalbreytingin var
sú, að bætt var við 4. ársdeild, einkum í því skyni að
auka uppeldis- og sálarfræðinámið og' kennsluæfing-
ar. Starfstími skólans er nú 8 mánuðir árlega.
x\rið 1932 voru samþykkt lög um próf íþróttakenn-
ara. Til þess að fullnægja þeim kröfum var stofnað-
ur iþróttaskóli að Laugarvalni, og annaðist Björn
Jakobsson kennsluna þar, en hann hafði um alllangt
skeið kennt leikfimi í menntaskólanum og kennara-
skólanum i Reykjavik. 10 árum siðar voru samþykkt
h')g um íþróttakennaraskólá íslands. Tók hann við af
áðurnefndum skóla undir stjórn sama manns. Náms-
tími er eitt ár. Inntökuskilyrði eru héraðs- eða gagn-
fræðapróf, helzt kennarapróf.
Húsmæðrakennaraskóli íslands var stofnaður árið
1942, samkvæmt heimild í lögum um húsmæðra-
fræðslu. Námstími er eitt ár, að loknu kennaraprófi
fyrir þá nemendur, er verða matreiðslukennarar í
barnaskólum, en 2 ár fyrir hússtjórnarkennslukon-
ur, enda hafi þær áður lokið gagnfræðaprófi eða
hlotið aðra hliðstæða menntun að minnsta kosti.
Helga Sigurðardóttir matreiðslukennslukona er
skólastjóri þessa skóla.
Handíðaskólinn var stofnaður í Reykjavík 1939
af Lúðvíg Guðnmndssyni og rekinn sem einkaskóli
(85)