Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Blaðsíða 105
ingur á tónlist hafi aukizt mjög á 2 síðustu áratug-
um. Auk þeirrar menntunar, er Tónlistarskólinn i
Reykjavík og einstaklingar hafa veitt á þessu sviði,
nnin mega þakka Rikisútvarpinu hinn mikla skerf,
er þáð hefur lagt til þessara mála með tónlistarflutn-
ingi sínum undir stjórn Páls ísólfssonar.
Námsflokkar o. fl.
Um og eftir 1930 var komið á leshringastarfsemi í
Reykjavík og víðar. Var þar stuðzt við erlendar fyr-
irmyndir. Smáhópar völdu sér ákveðið efni til þess
að lesa um og ræða svo sín á milli. Oftast mun þar
hafa verið um að ræða bókmenntir fagurfræðilegs
og þjóðfélagsfræðilegs efnis. Nokkur þátttaka mun
hafa verið í starfsemi þessari um skeið, en lítið mun
um hana nú.
Ágúst Sigurðsson cand. mag. kynntist starfsemi
námsflokka á námsárum sínum í Danmörku og Sví-
þjóð. Stuttu eftir að hann kom heim, eða um 1940,
hóf hann starfsemi þessa í Reykjavík, og síðustu árin
hafa nokkrir staðir bætzt við. Kenndar eru ýmsar
námsgreinar eftir ósk og þörfunx þeirra, er njóta.
Víðast hvar fer kennslan fram á kvöldin, enda er
hún aðallega ætluð þeim, er störf stunda á daginn,
en vilja auka þekkingu sína. Nernendur taka þátt í
einni eða fleiri námsgreinum eftir vild.
Um nokkurt skeið hefur Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga veitt fræðslu viðs vegar um landið með
„bréfaskóla“ í ýmsum greinum.
I>á hefur Ríkisútvarpið haldið uppi útvarpskennslu
í inörg ár. Aðallega hefur þar verið um tungumála-
kennslu að ræða.
Menntaskálar.
Hinn lærði skóli i Reykjavík, eða latínuskólinn,
eins og hann var venjulegast kallaður, dafnaði vel í
(103)