Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Blaðsíða 72
íands. Andvirði innfluttra vara frá Bandaríkjunum
nam 104.8 millj. kr. (árið áður 105.0 millj. kr.), frá
Bretlandi 51.4 millj. kr. (árið áður 59.1 millj. kr.),
l’rá Kanada 27.0 millj. kr. (árið áður 22.1 millj. kr.),
frá Sviss 2.1 millj. kr. (árið áður 1.5 millj. kr.), frá
Brasilíu 1.2 millj. kr. (árið áður 2.6 millj. kr.). Inn-
flutningur frá öðrum löndum var mjög lítill. And-
virði útfluttra vara til Bretlands nam 228.3 millj. kr.
(árið áður 190.3 millj. kr.), til Bandaríkjanna 22.9
millj. kr. (árið áður 39.8 millj. kr.), til Spánar 1.1
raillj. kr. (árið áður 1.7 millj. kr.). Nokkur útflutn-
ingur var einnig til Norður-Afríku, Færeyja ír-
lands og Kúba. Verzlunarjöfnuður var hagstæður.
Verðmæti útfluttra vara nam 253.8 millj. kr. (árið
áður 233.2 millj. kr.), en verðmæti innfluttra vara
247.0 millj. kr. (árið áður 251.3 millj. kr.). Innieign-
ir íslendinga í útlöndum jukust enn. Voru þær um
503 millj. kr. í árslok (um 440 millj. kr. i árslok
1943).
Verðmæti isfisks nam tæpum helmingi af verð-
mæti heildarútflutningsins. Verðmæti freðfisks nam
tæplega V-, af heildarútflutningnum. Er það miklu
meira en árið áður. Aðrar mikilvægar útflutnings-
vörur voru síldarolía, lýsi, síldarmjöl, freðkjöt, gær-
ur og' saltsíld. Af innfluttum vörum kvað mest að
vélum, álnavöru, trjáviði, kolum, málmum, korni,
pappírsvörum, skófatnaði, olíu og ávöxtum.
Gengi íslenzkrar krónu hélzt óbreytt (1 sterlings-
pund = 20 kr. 22 aurar og 1 dollar = 0 kr. 50V-i
eyrir). Vísitala framfærslukostnaðar var í ársbyrj-
un 259 stig, en i árslok 273 stig.
[Ýmsar af tölunum um búnað, útveg og verzlun
eru bráðabirgðatölur, og kunna að breytast lítið eitt,
l>egar endanlegar skvrslur eru fyrir hendi.]
Vinnumarkaður. Nokkuð kvað enn að setuliðsvinnu,
einkum í Bvík og nágrenni hennar. Mikill skortur var
(70)