Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Blaðsíða 123
(Framh. frá 2. kápusíðu.)
fáir af' hinum mörgu kaupendum ritanna nú geta átt þess
kost að eignast svo um muni af þeim. Með því að kaupa
sem mest af gömlum árgöngum, auka þeir verðmæti þess
safns af ritunum, sem þeir eiga eða eignast, svo að nemur
margfalt meira fé en gömlu árgangarnir kosta nú.
Það borgar sig því margfaldlega að verja nokkrum
(ugum króna til þess að eignast sem mest af gömlum
argöngum Almanaksins og Andvara. Sé keypt í einu
kað, sem til er af ritum þessum, hvoru fyrir sig, frá
upphafi og fram til 1939 — eða þótt skemur sé, ef um
félagsmenn er að ræða, sem eiga eldri árganga, — þá
kostar árgangurinn aðeins eina krónu.
Ný félagsrit.
Um Ný félagsrit gegnir líku máli og um Andvara, en
hann má skoða beint áframhald þeirra. Enn er til nokkuð
þeim, þótt þar séu líka óbætanleg skörð. Einstakir ár-
gangar af þessu fræga timariti Jóns Sigurðssonar, er
hefur að geyma margar beztu ritgerðir hans, kosta aðeins
eina krónu.
Ævisaga Jóns Sigurðssonar
eftir dr. Pál Eggert Ólason. I.—V. bd.
Þetta stórmerka ritverk gengur nú óðum til þurðar.
Þykir ekki ástæða til, eins og verðlagi háttar nú, að
seUa það við lækkuðu verði. Verður það selt eftirleiðis
V1® upphaflegu verði, 35 kr. öll 5 bindin, meðan upp-
laSið endist.
Bókasafn þjóðvinafélagsins I.—IX.
Aðeins fáein eintök eru enn til af safni þessu. Kost-
ar það aðeins 25 kr., ef öll bindin eru keypt í einu.
Um önnur rit félagsins, einstakar bækur og hefti og
verð þeirra, skal vísað í bókaskrána í Almanaki 1941.