Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1986, Page 135
drengjalandsliðinu í Evrópukeppni, báðir gegn Dönum.
Ísland-Danmörk 1-0, Danmörk-ísland 1-1. — Engir
kvennalandsleikir voru á árinu, en leikið var við bandarískt
úrvalslið. — ÍA, ÍBV og KR tóku þátt í Evrópukeppni
félagsliða og voru öll slegin út í fyrstu umferð. Akurnesing-
ar kepptu við belgísku meistarana Beveren, gerðu jafntefli
2-2 í Reykjavík, en töpuðu útileiknum 0-5.
Vestmanneyingar kepptu við Wisla Krakow frá Póllandi.
Þeir töpuðu útileiknum 2-4 og heimaleiknum 1-3, en hann
var leikinn á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. KR-ingar
fengu enska liðið Queens Park Rangers í UEFA keppninni
°g töpuðu báðum leikjum sínum, 0-3 í Reykjavík og 0-4 í
London. — Á þingi KSÍ var Ellert B. Schram endurkjörinn
formaður og hann var líka kjörinn einn af varaforsetum
UEFA.
Kraftlyftingar. íslandsmót yngri manna (undir 23 árum)
var haldið í Hveragerði í febrúar. Hjalti Árnason (KR)
vann bezta afrek mótsins. Fyrsta íslandsmót félagsliða fór
fram í Reykjavík í marz. Sveit íþróttabandalags Akureyrar
sigraði. íslandsmót var haldið í Reykjavík í apríl, og voru
sett 11 met. Kári Elísson (ÍBA) vann bezta afrekið. Hann
vann til silfurverðlauna á Evrópumóti í maí. Tveir íslend-
lngar tóku þátt í Norðurlandamóti unglinga í Járfálla í
Svíþjóð í júní. Par setti Torfi Ólafsson (KR) fjögur heims-
met unglinga. Landskeppni íslands og Skotlands var í júlí
°g sigruðu Skotar 42-37. Jón Páll Sigmarsson setti Evrópu-
net í réttstöðulyftu í 125 kg flokki. Hann lyfti 370 kg.
Körfuknattleikur. Njarðvíkingar urðu íslandsmeistarar í
karlaflokki en íþróttafélag stúdenta í kvennaflokki. KR-
mgar urðu bikarmeistarar karla, og Haukar sigruðu í bikar-
keppni kvenna. KR sigraði. Val í úrslitaleik 94-79, og
Haukar unnu ÍS 69-57. — íslenzka karlalandsliðið tók þátt í
C'riðli Evrópukeppninnar, sem fram fór í Ósló í apríl.
fslendingar urðu í fjórða sæti af fimm. Þeir sigruðu Skota
96-95 en töpuðu fyrir Dönum 76-80, Portúgölum 59-65 og
Norðmönnum 63-84. Jón Sigurðsson (KR) lék í keppninni
sinn síðasta landsleik, en hann hafði þá leikið 120 lands-
(133)