Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1987, Blaðsíða 80
Smástirnin
Fjöldi þekktra smástirna: um 2200.
Meðalfjarlægð frá sólu: 2,7 stjarnfræðieiningar.
Meðalumferðartími um sólu: 4,5 ár.
Samanlagður massi: 1/2500 af massa jarðar.
Vetrarbrautarkerfið
Breidd: 100 þúsund ljósár (1 ljósár = 9,5 milljón milljón km).
Fjarlægð sólar frá miðju vetrarbrautarinnar: 28 þúsund ljósár.
Brautarhraði sólar um miðju vetrarbrautarinnar: 220 km/s.
Umferðartími sólar um miðju vetrarbrautarinnar: 240 milljón ár.
Meðalfjarlægð milli stjarna í vetrarbrautinni: 5 Ijósár.
Fjöldi stjarna í vetrarbrautinni: hundrað þúsund milljónir.
Alheimurinn
Meðalfjarlægð milli vetrarbrauta: 5 milljón ljósár.
Útþensla alheimsins: 20 km/s fyrir hver milljón ljósár.
Fjarlægðin til endimarka hins sýnilega heims: 15 þús. milljón ljósár.
Fjöldi vetrarbrauta í hinum sýnilega heimi: hundrað þús. milljónir.
Aldur alheimsins: 15 þúsund milljón ár.
BIRTUFLOKKUN STJARNA
Þeim fastastjörnum sem sýnilegar eru berum augum var að fornu
skipt í sex flokka eftir birtu. Björtustu stjörnurnar töldust í 1. flokki en
þær daufustu í 6. flokki. í nútíma stjörnufræði er þessi hugmynd lögð
til grundvallar en birtustigin skilgreind með nákvæmni eftir mældum
ljósstyrk. 1. stigs stjarna er sem næst 2,5 sinnum bjartari en 2. stigs
stjarna, sem er aftur 2,5 sinnum bjartari en 3. stigs stjarna, o. s. frv-
Til að tákna millistig eru notaðar brotatölur, t. d. 1,5 eða 2,7. Sam-
ræmis vegna hefur orðið að gefa nokkrum björtustu stjörnunum
stigatölur sem eru lægri en 1, jafnvel lægri en 0 (mínusstig). Hærri
stigatölur en 6 eru hins vegar notaðar um stjörnur sem eru svo daufar
að þær sjást aðeins í sjónauka.
Fjöldi fastastjarna í mismunandi flokkum er u. þ. b. þessi:
Birtustig: —1012 3 4 5 6
Fjöldi stjarna: 2 7 13 69 190 600 1800 5400
Tilgreint birtustig miðast ávallt við að stjarnan sé beint yfir athug-
anda. Sé hún lægra á lofti, deyfist ljósið vegna þess að það þarf að fara
lengri leið gegnum gufuhvolf jarðar. Deyfingin er allbreytileg en nem-
ur á að giska 0,1 birtustigi þegar stjarnan er í 45° hæð, 1 stigi við 10°
hæð, 2 stigum við 4° hæð, 3 stigum við 2° hæð, 4 stigum við 1° hæð og 6
stigum við sjónbaug.
(78)