Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1987, Blaðsíða 198
vinnu, haldinn var útifundur á Lækjartorgi, opnuð kvenna-
smiðja o.fl.
Kvikmyndir. Hinn 28. janúar fékk Hrafn Gunnlaugsson
gullhrútinn sænska fyrir leikstjórn. - Kvikmyndin Hvítir
mávar var frumsýnd á Seyðisfirði 15. marz. Höfundar voru
Jakob Magnússon og Valgeir Guðjónsson. — 6. apríl var
frumsýnd kvikmyndin Skammdegi. Framleiðandi var Nýtt
líf og leikstjóri Þráinn Bertelsson. — Kvikmyndahátíð
Listahátíðar var haldin síðari hluta maí og voru sýndar 29
kvikmyndir. Meðal erlendra gesta var sænski rithöfund-
urinn Astrid Lindgren, en sýnd var mynd eftir sögu hennar
um Ronju ræningjadóttur. — Vinsælustu erlendar kvik-
myndir á árinu voru Löggan í Beverly Hills, en hana sáu
65.000 manns og Amadeus, á þá mynd fór 52.000 manns.
Listamannalaun o.fl. 110 fengu listamannalaun á þessu
ári, 89 fengu 30.000 kr. og 21 fékk 15.000 kr. — 93
rithöfundar fengu starfslaun eða viðbótarritlaun úr Launa-
sjóði rithöfunda. Þessir fengu sex mánaða laun: Einar Már
Guðmundsson, Einar Kárason, Guðbergur Bergsson,
Kristján Karlsson, Nína Björk Árnadóttir, Oddur Björns-
son og Ólafur Gunnarsson. — 24 rithöfundar fengu viður-
kenningu frá Rithöfundasjóði íslands. - 38 listamenn
fengu starfslaun þetta árið, og fengu fjórir þeirra tólf
mánaða laun. Peir voru þessir: Brynhildur Þorgeirsdóttir
og Guðrún Tryggvadóttir myndlistarmenn, Áskell Másson
tónlistarmaður og Karólína Eiríksdóttir tónlistarmaður. —
Ágúst Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður fékk bjart-
sýnisverðlaun Bröstefyrirtækisins danska þetta árið. —
Menningarverðlaun DV hlutu: Álfrún Gunnlaugsdóttir
(bókmenntir), Einar Jóhannesson (tónlist), Jón Gunnar
Árnason (myndlist), Hrafn Gunnlaugsson (kvikmyndir),
María Sigurðardóttir (leiklist), Stefán Örn Stefánsson,
Grétar Markússon og Einar Sæmundsson (byggingarlist).
— Þráinn Bertelsson fékk verðlaun Fræðsluráðs Reykjavík-
ur fyrir beztu frumsömdu barnasöguna, en hún heitir
Hundrað ára afmælið. Gunnar Stefánsson hlaut verðlaun
sömu aðila fyrir beztu þýddu barnabókina, sem nefnist
(196)