Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1987, Blaðsíða 122
íslenzka kristniboðið í Eþíópíu. Pýzki fiðlusnillingurinn
Anne-Sophie Mutter lék á tvennum tónleikum í Reykjavík
í nóvember við mikinn fögnuð áheyrenda.
í desember kom Johan Hendrik Poulsen, forstöðumaður
Föroyamálsdeildar Fróðskaparseturs Föroya, og flutti fyrir-
lestra. í sama mánuði kom Glenn R. Cella, yfirmaður
rannsóknardeildar vestur-evrópskra málefna í bandaríska
utanríkisráðuneytinu og talaði um öryggismál á Norður-
Atlantshafi. f desember kom dr. Kaoru Yamamoto, pró-
fessor í uppeldisfræði við ríkisháskólann í Arizona, til
íslands og flutti fyrirlestur.
Hervarnir
Um mánaðamótin janúar—febrúar lét Ronald E. Narmi
aðmíráll af störfum sem yfirmaður Varnárliðsins. Við tók
commander Anderson. McDonald, yfirflotaforingi herja
Nató, kom til íslands um mánaðamótin október—nóvem-
ber. Þetta var kveðjuheimsókn, því að hann lét af störfum
1. desember.
í janúar efndi DV til skoðanakönnunar um ratsjárstöðv-
ar. Reyndust 50,4% vera á móti fjölgun slíkra stöðva í
landinu, en 49,6% voru því hlynntir að reisa nýjar. í marz
barst sú frétt til landsins, að hollenzkar flugvélar af gerðinni
Orion P-3 yrðu sendar til Keflavíkur og látnar stunda þaðan
gæzluflug. Hinn 23. maí var samþykkt samhljóða á Alþingi
yfirlýsing um, að á íslandi verði ekki staðsett kjarnorku-
vopn. Ákveðið var, að endurnýjaður yrði flugvélakostur
Varnarliðsins, og 2. júlí komu tvær fyrstu Phantom F 15
þoturnar til Keflavíkur. Þær eiga að vera 18 alls. í júlí kom
til deilu um kjötinnflutning Varnarliðsins, þar sem fjár-
málaráðuneytið taldi hann ólöglegan, en utanríkisráðuneyt-
ið taldi hann löglegan. Framleiðsluráð landbúnaðarins
studdi sjónarmið fjármálaráðherra, og var um tíma rætt um
að vísa málinu til dómstóla.
Rainbow Navigation málið var til umræðu allt árið, en
(120)