Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1987, Blaðsíða 120
stúdentamót, og voru þátttakendur um 300. Um líkt leyti
þinguðu Evrópusamtök lýðræðissinnaðra stúdenta í bæn-
um. í ágúst kom Larry R. Rettenhouse, prófessor frá
Colorado, til íslands og skoðaði ástand beitilanda. í sama
mánuði kom bandarísk sundkona, Lynn Cox, og synti yfir
Mývatn frá Geiteyjarströnd við Vagnbrekku. Alheimsfor-
seti Lionshreyfingarinnar, Joseph L. Wroblewski, kom til
íslands í ágúst og heimsótti lionsmenn. Um miðjan ágúst
var haldið norrænt ljóstæknimót í Reykjavík, og voru þátt-
takendur rúmlega 200. Um líkt leyti var haldið norrænt
þing safnmanna og sóttu það um 80 erlendir gestir. Þá var
haldið þing norrænna beitarsérfræðinga á Hvanneyri. í
ágúst voru í Reykjavík skipin Sirius og Sea Shepherd, og
var erindi þeirra að mótmæla fyrirhuguðum hvalveiðum
íslendinga í vísindaskyni.
í byrjun september var haldið þing um arfgeng æðamein í
miðtaugakerfi. Þátttakendur voru frá mörgum löndum.
Um líkt leyti hélt norræni fjárfestingarbankinn fund í
Reykjavík. Jesse L. Byock, prófessor í norrænum fræðum
við Kaliforníuháskóla, kom til íslands í byrjun september
og flutti fyrirlestur um tengsl milli þjóðfélagsgerðar á ís-
landi á þjóðveldisöld og íslendingasagna. Þá kom dr. Sven
Sandström, prófessor í nútímalistasögu við háskólann í
Lundi og hélt fyrirlestur við HÍ. Norrænir bankamenn
funduðu í Reykjavík í september. Þar var haldin fyrsta
norræna ljóðlistarhátíðin í sama mánuði. Hans J. Eysenck,
sálfræðingur frá Oxford, kom til íslands í september og
flutti fyrirlestur við HÍ. í sama mánuði kom Olav Grue,
forstjóri danska iðnlánasjóðsins, og flutti erindi. Um miðj-
an september kom Norodom Sihanouk prins, fyrrverandi
þjóðarleiðtogi Kambódíu, til íslands í einkaerindum. Hann
skýrði málefni lands síns fyrir íslenzkum áhrifamönnum.
í byrjun október kom Senja, eitt af varðskipum norsku
strandgæzlunnar, til Reykjavíkur í stutta heimsókn. Um
líkt leyti komu kvikmyndaleikstjórarnir Margarete von
Trotta frá Þýzkalandi og Agnes Varda frá Frakklandi og
voru heiðursgestir á kvikmyndahátíð kvenna. Edward F.
(118)