Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1987, Blaðsíða 119
fyrirlestra. Hann hlaut Nóbelsverðlaun árið 1972. Þing
norrænna úrsmiða var haldið í Reykjavík í júní. Allmargir
Færeyingar heimsóttu Austurland í sama mánuði og
skoðuðu staði, þar sem þeir höfðu verið við fiskveiðar á
árum áður.
Sænski bókmenntafræðingurinn dr. Olof Lagercrantz
kom til íslands í byrjun júlí og flutti fyrirlestur um August
Strindberg. Um líkt leyti kom borgarstjórinn í Salzburg,
Josef Reschen, í heimsókn til Reykjavíkur. Donald Morri-
sen, prófessor í heimspeki við Harvardháskóla, kom til
íslands í júlí og hélt fyrirlestur við HÍ. Brezka strandgæzlu-
skipið Leeds Castle var í Reykjavík 5.-8. júlí. Ray Wil-
liams, yfirmaður rannsóknastofu New Scotland Yard í
Lundúnum, kom til íslands í júlí og flutti fyrirlestur. í sama
mánuði var norski listamaðurinn Guttorm Guttormsgaard
á ferð og sýndi verk sín. Hópur „víkinga“ frá Danmörku
kom til íslands um miðjan júlí. Þeir sýndu leikrit um
Hagbarð og Signýju, en sýning þeirra á Laugarvatni fór að
nokkru út um þúfur vegna óveðurs. Elísabet Knútsdóttir
Danaprinsessa var í íslandsferð um líkt leyti og var á
víkingahátíð á Laugarvatni. Um 160 Vestur-íslendingar
komu í júlí, og í þeim mánuði héldu norrænir laganemar
mót á Laugarvatni. í júlí kom seglskútan Soiovk til Reykja-
víkur frá Arkangelsk. Með henni voru sex Sovétmenn, og
komu þeir til þess að minna á siglingar um ísland til
Arkangelsk á árum síðari heimsstyrjaldar. Dr. Wisse Dek-
ker, forstjóri Philips, kom til íslands í júlí og flutti fyrirlest-
ur hjá Verzlunarráðinu. í sama mánuði kom dr. Robert
Charmichael, prófessor í jarðfræði við Iowaháskóla, og
flutti fyrirlestur við HÍ. Forystumenn norrænna garð-
yrkjubænda þinguðu í Reykjavík í júlí og einnig norrænir
heyrnleysingjaprestar. í sama mánuði kom Jacqueline Pi-
casso, ekkja málarans heimsfræga, til Reykjavíkur og ræddi
við forráðamenn Listahátíðar um sýningu á verkum Picas-
sos á Listahátíð 1986. Sænski harmóníkuleikarinn Lars Ek
kom til íslands í lok júlí og spilaði víða um land.
í byrjun ágúst var haldið í Reykjavík norrænt kristilegt
(117)