Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1987, Blaðsíða 192
Jón Helgason af formennsku í verkalýðsfélaginu Einingu á
Akureyri, en hann hafði verið formaður í 12 ár. Við tók
Sævar Frímannsson varaformaður.
Vísitala
Vísitala framfærslukostnaðar var hinn 1. nóvember á
fyrra ári 111,79 stig, og fór hún hækkandi á árinu 1985 sem
hér segir: Hinn 1. febrúar var vísitala þessi 126,48 stig, 1.
maí var hún 134,87 stig, 1. ágúst var hún 144,91 stig og 1.
nóvember 1985 var vísitala framfærslukostnaðar 155,32
stig.
Ýmislegt
Áfengisvenjur. í könnun á vegum Gallupstofnunarinnar
á áfengisvenjum í ýmsum löndum kom í ljós, að 82%
íslendinga, 18 ára og eldri, segjast neyta áfengis. Einnig
kom í ljós, að áfengisneyzla veldur erfiðleikum í 32%
fjölskyldna.
Auglýsingastríð. Ríkissjóður gerðist stórtækur í auglýs-
ingum á fyrstu mánuðum ársins. Voru spariskírteini auglýst
grimmt og einnig var brýnt fyrir fólki að borga skatta sína.
Bjórinn. í skoðanakönnun Helgarpóstsins í janúar vildu
71,5% leyfa bjór, en 28,5% voru á móti. í febrúar var
kunngert, að forsætisráðherra hefði látið kanna, hversu
mikið ríkið gæti haft í tekjur af bjórsölu og reyndist það
vera um 900 millj. kr. á ári. Bjórfrumvarp var samþykkt í
neðri deild alþingis 15. maí með 25 atkvæðum gegn 14, en
það dagaði uppi í efri deild. Frá 15. september var bönnuð
sala á svonefndu bjórlíki. Taldi dómsmálaráðherra slæma
reynslu af sölu þess, t.d. aukningu ölvunaraksturs.
Blöð og tímarit. Samkvæmt könnun Hagvangs kom þetta
fram um lestur dagblaða: Morgunblaðið lásu 62,5% að-
spurðra daglega, DV 43,4%, NT 15,8%, Þjóðviljann
12,4% og Alþýðublaðið 3,6%. í upplagseftirliti Verzlunar-
ráðs íslands kom í ljós, að upplag Morgunblaðsins á tíma-
(190)