Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1987, Blaðsíða 165
(142), Rafmaensveita Reykiavíkur 94 (90) og íslenzka járn-
blendifélagið 79 (79).
Hagnaður á rekstri Landsvirkjunar var 253 millj. kr. og
er það bezta afkoma síðan 1977.
Samgöngur og ferðalög
97.443 útlendingar komu til íslands á árinu (árið áður
85.190). Af þeim voru 31.633 Bandaríkjamenn (27.293),
9.946 Danir (7.659), 9.720 Bretar (9.398), 9.419 Vestur-
Þjóðverjar (9.615), 8.167 Svíar (6.699), 7.665 Norðmenn
(6.055), 4.483 Frakkar (4.846), 2.755 Svisslendingar
(2.697), 2.596 Finnar (2.003), 2.235 Austurríkismenn
(1.473), 1.653 Hollendingar (1.610), 1.286 Kanadamenn
(1.001), 1.170 ítalir (1.037). Samkvæmt þessum tölum voru
rúmlega 32% ferðamanna á íslandi bandarískir, tæp 30%
frá Norðurlöndum, 10% brezkir og tæp 10% vestur-þýzkir.
95.662 íslendingar ferðuðust til útlanda á árinu (89.728
árið áður).
Flug. Hagur Flugleiða var heldur lakari en árið áður og
nam hagnaður 196,9 millj. kr. (227,9 millj.). Félagið flutti
266.348 farþega í Norður-Atlantshafsflugi (248.349 árið
áður), 219.518 í Evrópuflugi (194.486), 244.027 í innan-
landsflugi (217.112), 18.153 í leiguflugi (12.408) og 36.455 í
pílagrímaflugi (35.016). Heildarfarþegafjöldi var því
784.501 og er það 10,9% aukning frá árinu á undan. - Á
árinu bættist ein DC-8 flugvél við í flota félagsins. Sú
breyting var gerð á áttunum, að settur var í þær hljóðdeyfi-
búnaður til þess uppfylla kröfur um slíkt í Bandaríkjunum.
Kostnaður við þessa breytingu nam u.þ.b. 380 millj. kr.
Áætlunarflug til Björgvinjar hófst 1. júní. Elzta þota félags-
ins og fyrsta þota íslendinga, Gullfaxi, var seld úr landi á
árinu. Hún kom til íslands 24. júní 1967. — Áfram varð tap
á rekstri Arnarflugs og nam það 69,4 millj. kr. (64,5 árið
áður). Farþegaflutningar félagsins voru mjög svipaðir og á
fyrra ári, en þó varð aukning um 1%.
Siglingar. Nokkur halli varð á rekstri Eimskipafélags
(163)