Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1987, Blaðsíða 169
kvæmdastjórn og miðstjórn Framsóknarflokksins frá sér
fara yfirlýsingar um vilja flokksins til þess að halda áfram
stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Hinn 18. sept-
ember samþykktu þingflokkar stjórnarflokkanna tillögur
ríkisstjórnarinnar um afgreiðslu fjárlaga. Sættu tillögur
þessar harðri gagnrýni á fundi þingflokks og framkvæmda-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins í Stykkishólmi nokkru síðar. í
desember deildu stjórnarflokkarnir um meðferð utanríkis-
mála.
Skoðanakannanir á fyrri hluta ársins bentu til þess, að
Alþýðuflokkurinn hefði mjög aukið fylgi sitt og þá einkum
á kostnað Sjálfstæðisflokksins. Þetta virtist snúast aftur við
síðari hluta árs. Fylgi Alþýðubandalags, Framsóknarflokks
og Bandalags jafnaðarmanna mældist yfirleitt minna en í
síðustu kosningum, en fylgi Samtaka um kvennalista virtist
svipað eða meira en í síðustu kosningum. Samkvæmt
könnun DV í janúar var fylgi stjórnmálaflokkanna sem hér
segir: Alþýðuflokkur 20,1%, Framsóknarflokkur 13,2%,
Bandalag jafnaðarmanna 6,0%, Sjálfstæðisflokkur 37,3%,
Alþýðubandalag 13,5% og Samtök um kvennalista 10,07o.
Sambærilegar tölur í september voru þessar: A 14,5%, B
13,8%, C 6,2%, D 44,3%, G 14,2%, V 5,9%. Aðeins eru
taldir þeir, sem tóku afstöðu, en um 40% aðspurðra eða
fleiri sögðust ekki hafa skoðun eða vildu ekki svara.
Landsfundur Bandalags jafnaðarmanna var haldinn í
Reykjavík í byrjun febrúar. Var þar kosin landsnefnd
flokksins, og var Kristófer Már Kristinsson formaður henn-
ar en Valgerður Bjarnadóttir varaformaður. Þau sögðu
bæði af sér í október. — í febrúar var haldinn stofnfundur
Málfundafélags félagshyggjufólks. — Á aðalfundi Komm-
únistasamtakanna í marz var ákveðið að leggja samtökin
niður. Þau höfðu starfað frá 1980. - 26. landsfundur
Sjálfstæðisflokksins var haldinn í Reykjavík dagana 12,—
14. apríl. Þorsteinn Pálsson var endurkjörinn formaður og
Friðrik Sophusson varaformaður. Davíð Oddsson fékk flest
atkvæði í kjöri til miðstjórnar. — Miðstjórnarfundur Fram-
sóknarflokksins var haldinn í Reykjavík í apríl, og voru allir
(167)