Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1987, Blaðsíða 164
skólanum á Akranesi (39), 52 frá Menntaskólanum á Egils-
stöðum (28), 37 frá Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki
(28), 40 frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ (39), 58 frá
Kvennaskólanum í Reykjavík (62), 23 frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands (28), 14 frá Fjölbrautaskóla Vestmannaeyja
(12), 35 frá Verkmenntaskólanum á Akureyri, en hann
brautskráði í fyrsta sinn stúdenta á árinu 1985.
Raforkumál
Mestu framkvæmdir Landsvirkjunar á árinu voru við
Blönduvirkjun, en þar var unnið samfellt allt árið við
jarðgangagerð. Lokið var við 808 m aðkomugöng, efsta
hluta stöðvarhússhvelfingar, hliðargöng og um þriðjung af
frárennslisgöngum, sem verða um 1.700 m. Steypt var
botnrás Blöndustíflu, lokuhús og lokuturn. Gerðir voru
samningar um vélar og rafbúnað fyrir virkjunina, og verða
vélar og rafbúnaður keypt frá Sumitomo í Japan. Starfs-
menn við Blönduvirkjun urðu flestir um 100. — Vinnu við
fjórða áfanga Kvíslaveitu lauk í byrjun október, en í honum
voru Eyvindarkvísl og Hreysikvísl stíflaðar. Ekki er ljóst,
hvenær hafizt verður handa um fimmta áfanga Kvíslaveitu.
Hinn 26. júlí var undirritaður samningur milli ríkisstjórn-
arinnar og Landsvirkjunar um Kröfluvirkjun. Festi Lands-
virkjun kaup á mannvirkjum og rétti til að hagnýta jarðhita
við Kröflu og skyldi kaupverðið vera 1.170 millj. kr., sem
greiðast skal á 25 árum. Ríkið tók hins vegar við skuldum,
sem taldar voru 3.200—3.400 millj. Raforkuframleiðsla
Kröfluvirkjunar er 25—30 megavött.
Vegna minnkandi eftirspurnar eftir orku var dregið úr
virkjanarannsóknum öðrum en vatnamælingum. Athugað-
ar voru fjórar leiðir fyrir væntanlega háspennulínu frá
Blönduvirkjun að byggðalínu við Finnstungu.
Heildarrafmagnsöflun Landsvirkjunar á árinu var 3.617
gígavattstundir eða 561 megavatt. Er það örlítil minnkun
frá árinu á undan. Helztu kaupendur raforku voru ísal með
155 megavött (176 árið áður), Rafmagnsveitur ríkisins 138
(162)