Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1987, Blaðsíða 66
REIKISTJÖRNURNAR 1987
Teikningin á næstu síðu sýnir hvenær björtustu reikistjörnurnar eru í
hásuðri að sönnum sóltíma árið 1987. Sólin er alltaf í hásuðri kl. 12 að
sönnum sóltíma, hvar sem er á landinu, og ferill hennar fylgir því jaðri
myndarinnar (hægri eða vinstri jaðrinum, sem eru í rauninni sama
línan). Myndin gefur til kynna fjarlægðir milli sólar og reikistjarna á
himinhvolfinu á vikufresti og hvort reikistjörnurnar eru á morgun-
himni (vinstra megin á myndinni, til hægri við sól), eða á kvöldhimni
(hægra megin á myndinni, til vinstri við sól). Á myndina hafa verið
dregnar línur til að gefa vísbendingu um, hvenær auðveldast sé að sjá
reikistjörnurnar. Er það á þeim tveimur svæðum, sem línurnar af-
marka, og merkt eru „dimmt“ á myndinni. Á svæðinu, sem merkt er
„bjart“, eru reikistjörnurnar annaðhvort mjög nærri sól (innan við 45
mínútur í stjörnulengd) eða koma ekki upp í Reykjavík meðan dimmt
er.
Ef við viljum t.d. vita, hvaða reikistjörnur verði sýnilegar í
aprílmánuði, lítum við á þann reit, sem liggur þvert yfir kortið og
afmarkast af stöfunum APR til hægri og vinstri. Þá sjáum við strax, að
Mars er langt til hægri, á kvöldhimni, ekki fjarri jaðrinum (sól), en þó
á dimmum himni. Lengra til vinstri, á morgunhimni, er Satúrnus. Enn
lengra til vinstri (austar) eru Venus, Júpíter og Merkúríus, en þær
stjörnur eru allar á svæðinu, sem merkt er „bjart“ og sjást því ekki.
Við vinstri jaðar myndarinnar erum við aftur komin að sól.
Á eftir hverjum mánuði í dagatalinu (á bls. 7, 11 o.s.frv.) eru töflur
sem eiga að gera mönnum auðveldara að þekkja björtustu reikistjörn-
urnar. Skýringar við töflur þessar er að finna á bls. 3. í töflunum er
hæð yfir sjóndeildarhring tilgreind í gráðum, sem reiknast frá 0 við
sjónbaug upp í 90 í hvirfilpunkti. Ef reglustiku er haldið lóðrétt í
útréttri hendi, svarar hver sentimetri nokkurn veginn til einnar gráðu.
Pví er unnt að gera grófa hæðarmælingu með því að láta núllpunkt
kvarðans nema við láréttan sjóndeildarhring og lesa síðan sentimetra-
fjöldann upp á við.
Þótt fyrrnefndar töflur miðist við Reykjavík, má yfirleitt nota þær
annars staðar á landinu án mikillar skekkju. Tölurnar sem sýna
hvenær reikistjörnurnar eru í hásuðri, verður þó að leiðrétta um 4
mínútur fyrir hverja gráðu sem munar á lengd staðarins og lengd
Reykjavíkur (bæta við, ef staðurinn er vestar en Reykjavík, en draga
frá, ef hann er austar).
Til frekari glöggvunar fer hér á eftir mánaðarlegt yfirlit um stöðu
þessara björtustu reikistjarna eins og þær munu sjást frá fslandi á árinu
1987. Stjörnurnar eru (talið frá sól): Merkúríus, Venus, Mars, Júpíter
og Satúrnus. Á eftir þessu yfirliti er svo fjallað sérstaklega um hinar
daufari reikistjörnur, sem eru lengra frá sól: Úranus, Neptúnus og
Plútó.
(64)