Jólagjöfin - 24.12.1922, Síða 51

Jólagjöfin - 24.12.1922, Síða 51
Blindi maðurinn og bróðir hans Saga eftir Arthur Schnitsler. — Stefán frá Hvitadal þýddi. || Geronimo blindi stóö upp af bekknum og tók sítarinn í hönd sér, er lá albúinn á borSinu fyrir framan hann hjá vinglasinu. Hann haföi heyrt ökuhljóð fyrsta vagnsins í mik- illi fjarlægð. Svo fálmaði hann sig kunnuglega fram til dyranna og gekk niður mjóa riðið, er lá niður í þakportið. Bróðir hans fylgdi honum. Þeir staðnæmdust báðir öðrum- megin við riðið og sneru bökum að veggnum, til að skýla sér gegn hráslaga-næðingi, er lék um opið portið. Gegnum þennan hálfdimma port-geim í gamla veitingáhús- inu urðu allir vagnar að aka, er áttu leið um Stilfser-skarðið. Þetta var síðasta áfangastöð ferðamanna undir fjallinu, ú leið frá ítaliu til Tyrols. Til langdvalar var staðurinn ekki vistlegur, því einmitt hér liggur vegurinn fremur lágt milli naktra hæða og útsýni ekkert. Blindi maðurinn og Carlo bróðir hans máttu heita heimilisfastir hér sumarmánuðina. Póstvagninn ók að, og rétt á eftir honum komu fleiri vagn- ar. Ferðamennirnir sátu flestir kyrrir í vögnunum, dúðaðir í ferðasjölum og regnkápum; nokkrir stigu þó niður og gengu óþreyjufullir fram og aftur um portið. Veður fór síversnandi, kalt regn hraut úr lofti. Heiðríkja hafði verið um langt skeið, en nú virtist haustið í aðsigi. Það kom of snemma og óvænt. Blindi maðurinn söng og lék sjálfur undir á gítarinn. Rödd- in var óþjál og oft skyndilegt hvell og fölsk, eins og jafnan, er hann hafði neytt víns Hann leit öðru hvoru upp fyrir sig; andlitið minti á vonlausa bæn. En þetta andlit með svörtu skeggbroddana og bláu varirnar var alveg svipbrigðalaust. Naerri hreyfingarlaus stóð eldri bróðirinn við hlið hans. Þeg- ar einhver lét mynt falla í hattinn hans, þakkaði hann meö hneiging og horfði snöggvast hálf-flóttalega í augu gefandans: svo leit hann strax aftur hálí-kvíðafullur undan, og starði úi í bláinn eins og bróðir hans. Það var eins og augu hans skömmuðust sín fyrir ljósið, er honum var veitt, — ljósið, sem hann gat ekki látið bróður sinn njóta neinnar glætu af.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Jólagjöfin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólagjöfin
https://timarit.is/publication/872

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.