Bræðrabandið - 01.06.1979, Síða 14
leg eru þau svið, sem tengd eru lokastarfi friðþæging-
arinnar. Yfirþyrmandi eru þeir hagsmunir, sem þar er
um að tefla. Nú stendur yfir dómsuppkvaðning í
helgidóminum á himnum. Þetta starf hefur staðið í
mörg ár. . . I ægilegri návist Guðs verður líferni okkar
fyrr en varir tekió til rannsóknar. Á þeim tíma framar
öllu öðrum hæfir hverri sál að minnast hvatningar
frelsarans: Vakið og biðjið.“ Deilan mikla bls. 507.
I dæmisögunni um hinar fimm fávísu meyjar, þegar
brúðguminn kom, gengu „þær, sem viðbúnar voru .. .
með honum inn til brúðkaupsins, og dyrunum var
lokað.“ (Matt. 25, 10). Eins í dæmisögunni í Matteus
22, fengu aðeins gestirnir sem voru klæddir í brúð-
kaupsklæði að njóta gleði brúðkaupsins. „En Guð
tekur við öllum þeim, sem við athugun reynast
sannarlega vera í brúðkaupsklæðum, og þeir eru taldir
verðugir þess að ganga inn í ríki hans og setjast með
honum á hásæti hans. Þessi rannsókn hugarfarsins,
þessi ákvörðun þess, hverjir séu búnir undir inngöngu
í guósríki, er dómsrannsóknin, lokastarfið í helgi-
dómnum á hæðum.“ Deilan mikla bls. 443.
Það er ómögulegt að ýkja um alvarleik verksins sem
nú fer fram í helgidómi himinsins. Daníel spámaður sá
að þegar dómur byrjaði á himnum þá voru „bækurnar
opnaðar“ (Dan. 7, 10). Opinberarinn Jóhannes, þegar
hann lýsti hinum sama atburði, lýsti því yfir að ekki
væru aðeins bækurnar opnaðar heldur, „Og hinir
dauðu voru dæmdir, eftir því sem ritað var í bókun-
um, samkvæmt verkum þeirra" (Op. 20,12).
Bækur himinsins innihalda nákvæma skrá yfir líf
allra. „Andspænis hverju nafni í bók himnanna er
skráð með ógnvekjandi nákvæmni hvert illt orð, hver
eigingjörn athöfn, hvert óunnið skyldustarf og hver
dulin synd, öll undanbrögð, hversu slóttug sem þau
eru. Viðvaranir og áminningar sendar af himnum, sem
menn hafa daufheyrst við, augnablik, sem sóað hefur
verið, tækifæri, sem látin hafa verið ónotuð, áhrif, sem
beitt hefur verið til góðs eða ills, ásamt víðtækum
afleiðingum þeirra, — allt hefur þetta verið skráð af
hinum himneska ritara." Deilan mikla, bls. 498-499.
Þar sem við vitum að Guð heldur slíka skrá og að
hvert líf verður borið saman við Guðs heilaga lögmál
(samanber Préd. 12, 13. 14). Þá getum við ekki varist
því að taka þessu geysilega alvarlega, og skilið að eina
von okkar um sýknun er að setja traust okkar á Jesú.
Jesú dó fyrir okkur á Golgata. (Róm. 5, 8-10; 1. Kor.
15, 3; Heb. 9, 28). Hann þroskaði fullkomna lyndis-
einkunn, og hann býður okkur réttlæti (Heb. 5, 8. 9.
Christ’s Object Lessons, bls. 310-311). Hann er nú
meðalgöngumaður okkar á himnum, hann kemur
fram í okkar stað í dómnum frammi fyrir föðurnum.
(1. Tím. 2, 5; Heb. 7, 25; 8,1-2; 1. Jóh. 2,1).
Ellen G. White segir um hinn himneska helgidóm
og starf Krists þar: „Helgidómurinn á himnum er
þungamiðja starfs Krists fyrir mennina. Hann varðar
hverja lifandi sál á jörðinni. . . Meðalganga Krists
fyrir mennina í helgidómnum á hæðum er jafn nauð-
synleg endurlausnaráformunum og dauði hans á
krossinum. Með dauða sínum hóf hann það starf, sem
hann eftir upprisuna steig upp til að ljúka á himn-
um... Jesú hefur opnað leiðina að hástól föðurins, og
fyrir meðalgöngu hans er hægt að bera fram fyrir Guð
einlægar óskir allra þeirra, sem koma til hans í trú.“
Deilan mikla, bls. 505-506.
Þegar Kristur fór upp til himins eftir að hafa unnið
sigur á Satan, og gert frelsun mögulega fyrir alla þá
sem vilja taka við henni í trú, þá byrjaði hann hina
prestlegu þjónustu í hinu heilaga, eða fremri hluta
hins himneska helgidóms.
En í 1844, þegar dagurinn sem að friðþægingardag-
urinn benti fram til byrjaði, hóf Kristur starf sitt í
hinu allra helgasta. Þá byrjaði hann á lokakafla
þjónustu sinnar, lokastarfi friðþægingarinnar, rann-
sóknardómnum.
„Nú lifum við á hinum mikla degi friðþægingarinn-
ar. Meðan presturinn var að friðþægja fyrir fsrael í
þjónustu eftirmyndarinnar, var öllum gert skylt að
hirta sál sína með iðrun syndanna og auðmýkja sig
fyrir Drottni, til þess að þeir yrðu ekki afskornir frá
lýðnum. Á sama hátt skyldu allir þeir, sem eiga nöfn
sín skráð á lífsins bók, á þeim fáu dögum, sem þeim
eru eftir skildir, hirta sálir sínar fyrir Guði með því að
hryggjast yfir syndum sínum og iðrast af hjarta. Djúp
og einlæg könnun hjartanna verður að fara fram. Sá
léttúðugi lausungarandi, sem svo margir játendur
kristinnar trúar ástunda, verður að hverfa. Örlagarík
styrjöld vofir yfir öllum þeim, sem vilja leitast við að
bæla niður þær illu hvatir, sem berjast til yfirráða.
Undirbúningsstarfið verður hver einstaklingur að
inna af höndum á eigin spýtur... Þó að allar þjóðir
eigi að koma fyrir dóm Guðs, þá mun hann þó
rannsaka mál hvers einstaklings með jafn mikilli
nákvæmni og væri hann einn á jörðinni. Hver og einn
verður að þola rannsókn og dæmast flekklaus og án
ávirðinga." Deilan mikla, bls. 507.
Sérstakt starf
í Opinberunarbókinni 14, 6-12 skráði Jóhannes
sérstaka boðskapi, sem á að boða heiminum á þessum
alvarlega tíma, er rannsóknardómurinn, og starf frið-
þægingarinnar á sér stað. Þessir boðskapir draga
athyglina að skaparanum, dómstarfinu og hinum
miklu úrslitaatriðum sem maðurinn verður að horfast
í augu við, þegar hann velur hverjum hann ætlar að
þjóna. Boðskaparnir gefa til kynna aó á meðan að
dómurinn fer fram á himnum, þá reynir Guð að gera
sérstakt starf fyrir fólk sitt til þess að undirbúa það
fyrir lok reynslutímans.
„Meðan rannsóknardómurinn fer fram á himnum,
meðan syndir hinna iðrandi trúenda eru fjarlægðar úr
helgidómnum, á að fara fram sérstakt hreinsunarstarf
meðal lýðs Guðs á jörðu, þannig að hann segi skilið
við synd. “ Deilan mikla, bls. 440.
En hvað þessi tími er alvarlegur! Erum við trú í
notkun hæfileika okkar? Notum við tíma okkar, huga
okkar, hendur okkar, raddir okkar, peninga okkar og
áhrif okkar Guði til dýrðar og mannkyninu til hjálp-
ar?
Nú er tíminn til að játa syndir okkar og sigrast á
göllum í lunderni okkar. „Sá, sem dylur yfirsjónir
sínar, verður ekki lángefinn, en sá, sem játar þær og
lætur af þeim, mun miskunn hljóta." (Orðs. 28,13).
Satan er stöðugt „að leitast við að blekkja fylgjend-
ur Krists með þeirri hættulegu kenningu, að syndirn-