Bræðrabandið - 01.06.1979, Side 19
ust trúuðum í leit hinnar dýru perlu“ (Sama).
6) Övinir urðu talsmenn. Sumir, eins og Sál frá
Tarsus sem áður höfðu verið meðal hinna bitr-
ustu óvina safnaðarins tóku trú og urðu forvígis-
menn hans. (Sama).
7) Pétur sagði að hvítasunnan væri uppfylling
spádómsins í Jóel 2, 28-32 (sjá Post. 2, 16-21); en
það var ekki fullkomin uppfylling, það finnst
hvergi nefnt að táknin á himnum sem nefnd eru
af Jóel hafi verið uppfyllt þá.
Athugulir kristnir menn í dag bíða eftir, hinni
annari hvítasunnu, sérstakri veitingu andlegrar náðar
í frábærum mæli þegar dregur að lokum sögu þessarar
jarðar. Tilgangurinn er að búa „frækornið“ undir
„lokauppskeruna".
Vegna þess að rætt er um vorregnið og haustregnið
á tvennan mismunandi hátt í hinum innblásnu ritum,
þá hafa sumir kristnir menn ruglast í sambandi við
þetta þýðingarmikla atriði.
Sögulega séð þá átti vorregnið sér stað á hvítasunn-
unni og haustregnið mun eiga sér stað þegar dregur að
lokum sögu þessarar jarðar. Á þessum grundvelli þá
er það ómögulegt fyrir hinn kristna einstakling að
eiga hlut í báðum reynslunum, þar eða allt að því
tvær aldir líða á milli þessara tveggja atburða.
En varðandi reynslu einstaklingsins, þá er það ekki
bara að hver frelsaður kristinn einstaklingur geti
heldur verður hann að eiga hlut í bæði vor- og
haustregninu.
Á þessum grundvelli þá táknar vorregnið endurfæð-
inguna spírun hins andlega sæðis, byrjun hins fyrsta
vaxtar, og áframhald þess frá einum áfanga til hins
næsta.
Þegar að uppskerunni kemur, þá mun haustregnið
undirbúa kornið fyrir ljáinn, það lýkur verki náðar í
hjartanu, það fullkomnar hina siðferðislegu mynd
Guðs í lyndiseinkuninni, og hinn kristni er þar með
algjörlega ummyndaður í þessu loka átaki í að ná
fullum þroska.
Til þess að geta öðlast reynslu haustregnsins, þá
verður hinn kristni að uppfylla fjögur skilyrði: Fyrst
verður hann að hafa reynt vorregnið og halda áfram
að njóta þeirrar reynslu. I öðru lagi þá má hann ekki
bíða í aðgerðaleysi, heldur verður hann að vinna
ötullega fyrir Krist daglega, þar sem hann er staddur.
í þriðja lagi, hann verður að biðja sérstaklega -um það
með trú í bæn, „á tímum haustregnsins“ Sak. 10, 1;
Sama bls. 55-56. Og í fjórða lagi, þá verður hann að
bíða í eftirvæntingu.
Það eru að minnsta kosti fimm ástæður fyrir því að
nauðsyn er á reynslu haustregnsins í kirkju Guðs í
dag:
1) Vera djarfari i að bera vitni. Opinberunarbókin
18, 1-4 lýsir „hrópaði sterkri röddu“ til alls
mannkyns í lok tímans, og varaði þá við örlögum
þeirra ef þeir færu ekki út úr „Babylon". Það
getur verið að hugsað sé um haustregnið sem
orsökina, og hróp sterku raddarinnar sem af-
leiðinguna. Það kemur „til að gefa kraft hinni
sterku röddu þriðja engilsins" Early Writings,
bls. 86.
2) Til að undirbúa uppskeruna. „Þroskun fræ-
kornsins lýsir fullkomnuðu verki náðar Guðs á
hjartað... Við eigum að verða algjörlega um-
mynduð í líkingu Krists.“ Testemonies to Mini-
sters bls. 606.
3) Til að vernda hinn kristna á þrengingartíman-
um. „Þegar meðlimir líkama Krists nálgast tíma
hinnar síðustu deilu, tíma þrengingar Jakobs, þá
munu þeir vaxa í Kristi og njóta úthellingar
Anda hans. Þegar hinn þriðji boðskapur mun
verða að sterku hrópi, og dýrð og kraftur munu
verða til staðar í lokastarfinu, þá munu hinir
trúföstu í Guði njóta þeirrar dýrðar. Það er
haustregnið sem lífgar okkur við og styrkir þá er
fara í gegnum þrengingartímann. Andlit þeirra
munu lýsa með þeirri dýrð sem fylgir þriðja
englinum.“ The SDA Bible Commentary, Skýr-
ingar Ellen G. White á Opinberunarbókinni 18,
1. bls. 984.
4) Til þess að búa fólk Guðs undir að standast er
hinar sjö síðustu plágur falla. Reynsla haust-
regnsins mun styrkja „leifarnar" til að standast.
„Og það skal verða svo mikil hörmungatíð, að
slík mun aldrei verið hafa, frá því er menn urðu
fyrst til og allt til þess tíma“ (Dan. 12,1). Deilan
mikla bls. 640; Testimonies, 1. bindi bls. 235.
5) Til að búa okkur undir ummyndunina. „Ein-
staklingar eru prófaðir og reyndir um tíma til
þess að sjá hvort þeir munu fórna átrúnaðargoði
sínu, og fara eftir vitnisburði hins Sanna Vottar.
Ef þeir vilja ekki verða hreinsaðir með því að
hlýða sannleikanum, og sigrast á sjálfselsku
sinni, stolti og illum löngunum, þá munu englar
Guðs ... taka til starfs síns, skilja þá eftir með
sitt illa eðlisfar ósigrað, á valdi illra engla. Þeir
sem standast hvern áfanga, standast hverja
prófun, og sigra, hvað sem það kostar, hafa fylgt
vitnisburði hins Sanna Vottar, og haustregnið
mun búa þá undir ummyndun." Spiritual Gifts,
2. bindi bls. 226.
Dagurinn í dag — föstudagur — er kallaður í
Biblíunni „undirbúningsdagur“. Hann er ekki aðeins
gefinn okkur til unddirbúnings fyrir hvíldardaginn;
heldur til þess að búa okkur undir komu frelsarans.
Vinnur þú ötullega að undirbúningsstarfinu? Er
daglegur undirbúningur þinn svipaður hinna 120 sem
undirbjuggu sig fyrir hvítasunnuna?
Bænaviku þessa árs er næstum lokið. Eftir morgun-
daginn tilheyrir hún fortíðinni. Hvernig vegnar sálu
þinni í dag? Eru syndir þínar enn ójátaðar, og
ófyrirgefnar, skrifaðar við nafn þitt í bókum himins-
ins? Ert þú að reyna að standa gegn bæn Heilags
Anda, að láta af einhverri kærkominni synd, einhverju
„átrúnaðargoði“ sem getur kostað þig eilífa lífið? Ert
þú að reyna að komast undan að gera einhverja
skyldu sem Drottinn hefur lagt á hjarta þitt?
„Því að hvað mun það stoða manninn, þótt hann
eignist allan heiminn, en fyrirgjöri sálu sinni?“ (Matt.
16, 26).
Þar sem við nálgumst lok þessarar bænaviku, þá
skulum við taka í hendi Krists, prests okkar og
konungs taka við krafti hans og verða sigurvegarar
fyrir náð hans og styrk.