Bræðrabandið - 01.06.1979, Blaðsíða 24
Komin er út hjá forlaginu
bókin DAGLEGT LÍF eftir Ellen GWhite.
Hún hefur aó geyma hugvekju fyrir
hvern dag ársins ásamt ritningargreinum.
24. janúar Biblían í lifi mínu Job 22, 22
FJÁRSJÓÐUR í HJARTA MÍNU
Taká móti kenning afmunni hans, festþér orð hans i hjarta.
Það er afar þýðingarmikið að þú rannsakir ritningarnar
sífellt, birgir hugann upp af sannindum Guðs. Þaó getur verið að
þú verðir útilokaður frá samfélagi kristinna og settur þar sem
þú nýtur ekki þeirra forréttinda að koma sam^ö; meó bornum
Guðs. Þú þarfnast þess að fjársjóðir Guðs séu fólgnir í hjarta '
þér.61
A víð og dreif um alla Biblíuna eru gullkorn spakmæli
visku Guðs. Ef þú ert hygginn munt þú safna saman þessum
dýrmætu sannleikskornurn. Gerðu fyrirheit Guós að þinní eign.
Þessi fyrirheit munu verða þér uppspr§|ta himneskrar huggun-
ar, þegar reynslur og erfiðleikar koma.62
Freistingarnar virðast óft ómótstæðilegar vegna þess að fyrir
vanrækslu á Biblíulestri og bæn getur sá sem fyrir freistingu
verður ekki munaó fyrirheit Guðs og mætt Satan með vopnum
ritningarinnar. En énglar Guðs erú umhverfis þá, sem eru fúsir
til að taka uppfræðslu í guðlegum efnum og þegar nauðsynihl
krefurrainna þeir þá á einmitt þau sannieiksatriði sem þörf er á.
Þannig verður það aó „þegar óvinurinn kemur eins og vatnsflóð,
mun andi Drpttins reisa hermerki á móti honuni."63
Hjartað, sém hefur aó geýma hin dýrmætu fyrirheit orðs
Guðs, er styrkt gegn freistingum Satans. gegn óhreinum hugs-
unum og vanheilögum gjörðum.64
Haltu þérfast við ritningarnar. Því meirsem þú rannsakar og
útskýrir orðið þeim mun styrkari verður hugur þinn og hjarta af
hinum blessuóu orðum uppörvana og fýrirheita. 65
Við skulum leggja þessi dýrmætu fyrirheit á minnið svo við
getum átt orð Guðs þótt við séum svift Biblíum okkar. 66
hr. 5400