Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2005, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2005, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 Menning DV Strákar dansa Það hefur lengi staðiö íslenskum list- dansi fyrirþrifum hversu fáirstrákar sækja I dansinn. Þaö er þvf frétt til næsta bæjar aö íslenski dansflokkur- inn er um þessar mundir að vinna aö því verkefni ásamt Hlíðarskóla aö draga stráka í dans. Verkefnið byggir á þvi að efla áhuga stráka á dansi og gefa þeim greiöari möguleika á aö upplifa dans og fá aö spreyta sig. Áhugi stráka á dansi er til staðar. Það er frekar aðgangur, fyrirmyndir og möguleikar til aö læra dans innan um aöra stráka sem skortir. Meö þessu verkefni er vonast til aö bæta aögang íslenskra stráka að nútímadansi. Til að byrja meö verður unniö meö strákum í 9. og 10. bekk i Hlíöarskóla og efvel gengur munu fleiri skólar og strákar fá aö njóta. Karldansarar dansflokksins undir- bjuggu verkefnið og í gær og í dag koma 25 strákar úr 9. og 10. bekk Hlíð- arskóla i Borgarleikhúsið og vinna með dönsurunum. Þeim veröurskipt upp í tvo hópa, munu hafa tvo daga til aö semja og læra flott dansverk, þar sem nýttir verða hæfileikar strákanna á öðrum sviðum sem þeirþegar búa að. Þriðja daginn, 16. mars keppa þeir i skólanum sínum um hvorhópurinn á Strákar úr Hlíðarskóla dansa. betra verk, og fá áhorfendur, skólafé- lagarþeirra að velja vinningsverkið. Verkefnisstjóri er Karen Maria Jóns- dóttir Hannes Lárusson beinir í grein hér aö neðan spurningum til stjórnar Listahátíðar í Reykjavík um skipu- lag og fjárhag hátiðarinnar i vor Reykjovík Arts Festivd 2005 A14 Moy - 5 June þar sem uppi eru áætlanir um stærsta kynningarverkefni á ís- lenskri og erlendri samtímalist sem hér hefur sést. Skáldaspíru- kvöld með bíó og Ijóðasöng Það er komið að 31. Skálda- spírukvöldi á Kaffi Reykjavík í kvöld. Stórskáldið Sjón bók- menntaverðlaunaþegi Norður- landaráðs á dögunum les úr verkum sínum. Þá ætíar Gerður Kristný Guðjónsdóttir að stíga á stokk og lesa úr verkum sínum, Ófeigur Sigurðsson les ljóð úr „ væntanlegri bók og Kristín Eva Þórhallsdóttir sýnir ljóðræna stuttmynd eftir sig. Loks leikur Eydís Fransdóttir á óbó íslenskt verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttir sem er samið eftir ljóð Óskars Arna Óskarssonar og heitir: Ásjónur kvöldsins. Skáldspíru- kvöldin eru þannig að teygja sig í ólíkar áttir: kvikmyndalistina og ljóðasöng. Tveir bassar Tveir bassar og amiar með strengi er yfirskriftin á hádegis- hljómleikum dagsins fyrir þá sem búa og starfa nærri íslensku óper- unni. Þetta verða lokatónleikamir ( hádegistónleikaröð fslensku óper- unnar á þessu starfsári og þeir Dav- íð Ólafsson, bassi þenur raddbönd- in og Dean Ferrell, kontrabassi plokkar strengina. Þeim til aðstoðar verður Kurt Kopecky á pfanó. Svo skemmtilega vill til að bæði Mozart og Bach skrifuðu ástar- söngva fyrir kontrabassa og bassa- söngvara. Mozart skrifaði fjörlega konsertaríu um hina fallegu kven- hönd, Per questa bella mano. Bach samdi aftur á móti litla kantötu um svikular ástir, Amore traditore. Bæði em tónverkin fjömiikil og ein- stakt að fá að heyra þau saman á tónleikum. Að auki verða fluttar þekktar aríur þar sem kontrabass- inn fær aðeins að keppa við bassa- söngvarann. Hádegistónleikamir standa í um 40 mínútur, svo það er tilvalið fyrir þá sem starfa eða búa f nágrenni miðbæjarins að bregða sér á tón- leika í hádegishféi og halda svo á ný út í daginn endumærðir af fagurri tónlist. Hægt er að kaupa samlokur í anddyri Óperunnar fyrir eða eftir tónleikana, svo að enginn ætti að þurfa að fara svangur aftur út í eril dagsins. að er fyrir atbeina listanna sem fólk fær að leika sér. Leika sér með möguleika, góða og slæma, ímyndaða og raunverulega, setja lffið á svið og veita tungumálinu aðhald. Gefa valdinu og misbeitingu þess langt nef þegar öllum ofbýður en enginn þorir að tjá sig. Því í einhverjum skilningi em listimar lengst frá brauðinu af öllum athöfnum manna en engu að síður jafnmikilvægar vel- ferð þeirra og það. En til þess að list- irnar geti þrifist, frjálsar, þroskaðar og djarfar þurfa listamenn að eiga sér verðugan sess í samfélaginu. Um leið og listamenn eru flestir í augum landsmanna sakleysið uppmálað, yndislegir skemmtikraftar, útsjónar- samir dugnaðarforkar og ástmegir þjóðarinnar, geta þeir stundum reynst skeinuhættir og óútreiknan- legir vandræðagripir sem fyllstu gát ber að hafa á. Listin glens og gaman Þrátt fyrir glens og gaman sem oft er það sem við almenningi blas- ir frá hinum svokallaða listaheimi, og þótt listamennirnir virðist vera græskulaus og tiltölulega atkvæða- lítill hópur á landsvísu, þá stunda þeir ekld síður ákafa hagsmunabar- áttu og flokkadrætti en gengur og gerist á flestum öðrum sviðum. Fólk hjúpar sig æðruleysi og ber sig vel, stendur saman, talar digur- barkalega eða læðist með veggjum rétt eins og í annarri pólitík. Og pólitík snýst í aðalatriðum um stjórnun á aðstöðu og fólki, aðgengi að fjármagni og ekki síst tilkall til virðingar; - en þar verður mörgum hálast á svellinu. Gögn og gæði Eins og fólk í öðrum starfsstétt- um eiga listamenn undir heiðarlegri og skapandi meðferð á þeim gögn- um og gæðum sem notuð eru til að hlúa að atvinnugrein þeirra, hvort heldur þau gögn og gæði heyra til hins opinbera eða einkageirans svo- nefnda. Viðskipti með listaverk, af hálfu listamannanna sjálfra og kaupenda þeirra, eru gagnkvæm viðskipti, þar sem í raun hvorugur aðilinn er sterkari en hinn. Annar aðilinn á að vísu fjármagnið eða ígtídi þess en hinn aðilinn hefur í höndum hin ótvíræðu verðmæti sem í sköpunarverki hans felast. Mikilvægir atvinnuhagsmun- ir Á undanförnum mánuðum hefúr staðið yfir undirbúningur Listahá- tíðar 2005 sem sérstaklega er helguð myndlist. Til þessa mikla verkefhis, sem spannar gjörvallt starfssvið myndlistar í landinu auk erlendra sýnishorna, er ráðstafað svo miklu fé af hálfu hins opinbera og annarra styrktaraðila, að upplýsingar um ráðstöfun þess hljóta að þurfa að liggja fýrir. Af fenginni reynslu vita listamenn og landsmenn allir að erfitt getur reynst að eyða sömu peningunum tvisvar. Auk þess varð- ar verkefnið mikilvæga atvinnu- hagsmuni myndlistarmanna með tilliti til hugmyndafræði, stéttarvit- undar og menningarlegar ímyndar landsins út á við. Spurningar til stjórnar Eftirfarandi spurningum sem varða þetta verkefni er hér með beint til stjómar Listahátíðar í Reykjavík. Undirritaður er í litlum vafa um að í ljósi upplýsingalaga beri stjórn Listahátíðar að svara, en hér er um svo almenn og sjálfsögð atriði að ræða að með réttu ættu svörin þegar að liggja fyrir í að- gengilegu formi. Starfandi lista- menn og landsmenn sem þrátt fýrir allt „eiga" Listahátíð í Reykjavík bíða vafalítið spenntir eftir greinar- góðum svörum embættismanna sinna sem um stund hefur verið fal- in afar vandasöm meðferð verald- legra og andlegra verðmæta. Þegar þessum spumingum hefur verið svarað er allt eins víst að þeir sem hagsmuna hafa að gæta taki upp léttara hjal sem aftur leiðir af sér enn fleiri spurningar og fleiri svör. Fjárveitingar -Hvaða fjármagn er ætíað mynd- listarhluta Listahátíðar í Reykjavík 2005? Hvaðan kemur þetta fé? -Hvemig skiptist kostnaðaráætí- un verkeffiisins með tilliti til ein- stakra útgjaldaliða s. s. til stjómunar og nefnda, rannsókna, launa til listamanna, þóknunar til sýningar- aðila, o. s. frv.? Stjórnun/skipulag -Hver hefur yfimmsjón með Listahátíð 2005? Hver eða hverjir bera ábyrgð á listrænni stjórnun verkeffiisins? -Hvernig var staðið að ráðningu Jessicu Morgans til verkeffiisins? Var hún valin úr hópi umsækjanda? (þá hverra?) og/eða var hún valin á grundvelli meðmæla? (þá hverra?) Hvert er starfssvið Jessicu Morgan, liggur fýrir starfslýsing í þessu sam- bandi? -Hver skipaði í dagskrárneffid Listahátíðar 2005 og á hvaða grund- velli? Hvaða hlutverki gegnir þessi neffid og hvert er samband hennar við listrænan stjórnanda hátíðarinn- ar? -Hver réð Dorothée Kirch til verkeffiisins, á hvaða grundvelli og hvert er verksvið hennar? -Hver er þáttur og aðkoma Ólafs Elíassonar að verkefninu? -Hvemig hefur aðkoma hinna ýmsu félaga listamanna verið að verkefninu fram að þessu? Hver er þáttur og aðkoma innlendra sér- fræðinga, einstakra gallería og safoa í undirbúningi og þróun verkeffiis- ins? -Er starfandi hópur sérfræðinga og fagmanna á myndlistarvettvangi sem er stjómendum verkefnisins til ráðgjafar og stuðnings? -Með hvaða hætti tengjast fyrir- hugaðar sýningar á verkum Dieter Roth öðrum dagskrárliðum Listahá- tíðar 2005, annars vegar fjárhags- lega, hins vegar hvað varðar listrænt inntak? Upplýsingar og kynning -Hvar er að finna almennar upp- lýsingar og kynningu á verkeffiinu? -Hvaða einstaklingur eða stoffi- un hefúr með upplýsingamiðlun í tengslum við verkeffiið að gera? Hannes Lárusson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.