Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2005, Blaðsíða 37
DV Sjónvarp
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 37
Það virðist gerast með reglu-
legu millibili að hrollvekjan nái að
vinna virðingu áhorfenda um
stutta stund og þá hrúgast yfir
mann misgóðar ræmur í kvik-
myndahúsunum. Þetta er önnur
hrollvekjan á stuttum tíma sem
De Niro leikur í, hin fyrri var hin
slappa Godsend en annars hefur
hann ekki leikið í hryUingsmynd
síðan í Frankenstein hér um árið.
Það er kannski líka bara ágætt því
að þær hafa nú ekki verið beint
frábærar þessar sem hann hefur
leikið í.
Hér leikur hann David CaUaway
sem flytur upp í sveit með dóttur
sinni eftir að eiginkona hans fremur
sjálfsmorð. Sálarástand stúUoxnnar
ungu er í henglum eftir atburðinn og
á hún erfitt með að aðlagast breyttu
umhverfi. Fljódega segist hún hafa
eignast nýjan vin sem enginn annar
sér. Virðist þessi vinur hafa ansi
sjúkt ímyndunaraU og verður það tíl
þess að David heldur að dóttir sín sé
algerlega gengin af göflunum. Ekki
er hægt að fara mikið meira í sögu-
þráðinn, því að hann er hreinlega
ekki mikið meira en þetta og svo er
ekki að leika aieir
ákveðin flétta í lokin sem á víst að
koma á óvart.
Myndin byrjar ágætlega og fer
rólega af stað. Reynt er að byggja
upp umhverfið sem eitthvað ógn-
vekjandi og nota stóra húsið þeirra
dl hins ítrasta. Persónur eru kynntar
sem eiga að vekja grun hjá okkur en
formúlan vaknar tíl lífsins í lokakafl-
anum og þá missir myndin flugið.
Sagan nær ekki að halda athygU
manns og vekur ekki upp hjá manni
nógu mikla spennu tíl þess að virka
sem góð hroUvekja.
Hide And Seek
Sýnd i Regnboganum, Smára-
bíói og Laugarásbíói.
Leikstjóri: John Polson.
Aðalhlutverk: Robert
De Niro, Dakota Fann- ^m...
ing, Famke Janssen, ilfiX
Elisabeth Shue.
★★ E-
Ómar fór í bíó
Leikarar standa sig með prýði.
Fanning sýnir enn og aftur hversu
fantagóð leUckona hún er en De Niro
röltir í gegnum myndina á sjálfstýr-
ingu. Hann virðist bara hættur að
reyna.
Ég var svoh'tið spenntur fyrir
þessari mynd í fyrstu enda er gmnn-
hugmyndin góð og með þetta lið á
bakvið hana hefði maður haldið að
hún ætti geta orðið skemmtUeg. Því
miður nær hún ekki að klóra sig upp
úr meðalmennskunni og það er svo
skítt.
Ómar öm Hauksson
Steintryggur
herjará Evrópu
Tónleikastaðurinn Vega i Kaupmanna-
höfn er vettvangur Spring Break, litils
raftónlistarfestivals helgina 7. til 9.
april. Fulltrúar Islands verða President
Bongo og Buckmaster úr Gus Gus og
hlómsveitin Steintryggur, sem spilar d
norræna kvöldinu á laugardaginn.
Steintrygg skipa slag-
verksleikararnir
Sigtryggur
Baldurssanog
Steingrímur
Guðmunds-
son.Þeir
kynnaDia-
log-diskinn
sinn.sem
komútdls-
landi 2003 en
erumþessar
mundir aðkomaútí
Evrópu. Með þeim koma
fram fíðluleikarinn Roland Hartwell,
sem starfar með Sinfóníuhljómsveit
Islands, og Hadji Tekbilek, tyrkneskur
tónlistarmaður sem leikur á ýmis
framandi hljóðfæri. Steintryggur ætlar
að spila víðarí ferðinni og endarjafn-
vel á Hróarskelduhátiðinni, enda er
Spring Break-hátíðin haldin afþeim
sem standa að þeirri stórhátíð. Næsta
plata Steintryggs ersvoi undirbúningi
og er áætlað að hún komi út seinna á
árinu.
Dró sig út úr
American Idol
Hinn vinsæli Mario Vazquez dró sig út
úr keppni i American Idol d sunnu-
daginn og bar við persónulegum
ástæðum fyrirþeirri ákvörðun sinni.
Ekki fengust frekari upplýsingar um
brotthvarf Vazquez sem er 27 ára og
var talinn líklegur til sigurs í keppn-
inni af mörgum.
Sjónvarpsstöðin Fox valdi í staðinn
Nikko Smith, son hafnaboltahetjunn-
ar Ozzies Smith, en hann fékk fleiri
atkvæði en Travis Tucker þegar þeir
voru báðir kosnir út á miðvikudaginn
i síðustu viku. Smith, sem er 22 ára og
frd Louis i Missouri, sagði i viðtali eft- >
ir að hann var kosinn út að það hefði
ekki komið honum á óvart.
Vazquez er ekki fyrsti keppandinn
sem óvænt hættir keppni, en fáir hafa
reyndar gert það með eigin vilja. I
fyrra var einn keppandi kallaður aft-
ur inn eftir að annar var tekinn fyrir
ölvunarakstur. Árið 2003 var svo
þremur sparkað úr þáttunum, tveim-
ur fyrir að hafa haldið leyndum upp-
lýsingum um sakaferil og einum fyrir
að sitja nakinn fyrir á vefsíðu.
Sigrún Bender komst í 12 manna úrslit í Ungfrú Evrópu
Glæsilegur árangur hjá Sigrúnu
„Þetta var alveg ótrúleg lífs-
reynsla og rosalega skemmti-
legt að taka þátt," segir Sigrún
Bender sem komst í 12 manna
úrsUt í fegurð arsamkeppninni
Ungfrú Evrópa 2005. „Eg átti
ekki von á þessum árangri en
stúlkumar í ár vom aUar mjög
faUegar og ég vissi ekki á
hverju ég ætti von. Ég var samt
ekki eins stressuð og þegar
keppnin var heima en það er
aUt annað að taka þátt í svona
keppni þegar maður veit af
fjölskyldu og vinum úti í sal,
þá er maöur aðeins stress-
aðri.“ Kærasti Sigrúnar, Ragn-
ar Ingason, var að vonum
ánægður með árangur Sigrún-
ar. „Hann er aö springa úr
stolti," segir Sigrún hlæjandi.
Ég held aö hann hafi verið
Sigrún Bender
Varsannarlega
glæsilegur full-
trúi Islands.
■)
stressaðri en ég á meöan á
keppninni stóð." Sigrún segir
að hópurinn hafi verið góður
en hún hafi kynnst vel Ungfrú
Bretlandi, írlandi, Spáni, Portú-
gal, PóUandi og Danmörku, og
hún gerir ráð fýrir að stelpumar
haldi áfram að vera í sambandi.
„Stelpumar em aUar famar
heim en við höfum verið að
skiptast á sms-um í dag. Svo
ætlum við að senda hver ann-
arri myndir frá keppninni."
Sigrún kemur heim í dag
ásamt Ragnari kærasta sínum.
„Ég hlakka mikiö til að koma
heim enda er ég búin að vera
heflan mánuð úti við undirbún-
ing svo það verður eflaust gott
að koma heim." Við óskum
Sigrúnu tfl hamingju með
árangurinn.