Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2005, Qupperneq 39
0V Siðast en ekki síst
Sýnið ekki kött éta dúfu!
Hinn heimskunni jugóslavneski
kvikmyndahöfundur Emir Kusturica
hótar að leggja bann við því að ný
kvikmynd hans verði sýnd í Bret-
landi. Ástæðan er sú að kvikmynda-
skoðun þar í landi vill klippa úr
myndinni atriði þar sem köttur nart-
ar í dauða dúfu.
Þessi litía frétt vísar í ýmsar áttir.
En fyrst til þess, að ritskoðun kemur
með margvíslegum hætti mun oftar
en menn halda við sögu á leið kvik-
mynda til áhorfenda.
Þegar minnst er á ritskoðun
halda flestir að hún hljóti að vera
pólitísk og einkum stunduð í ein-
ræðisríkjum. Það á oft við að því er
varðar prentað mál. En um kvik-
myndir gildir annað. Þar er jafnan í
gangi margskonar ritskoðun - sum-
part tengd hugmyndum um ríkjandi
siðferði, sumpart pólitískri við-
kvæmni - að svo ógleymdri ritskoð-
un markaðarins.
Krukkað í Eisenstein
Að því er varðar pólitíska ritskoð-
un var það rifjað upp á dögunum í
tengslum við kvikmyndahátið í
Berh'n, að þekktasta pólitíska kvik-
mynd sögunnar og um Ieið einhver
áhrifamesta mynd Ustgreinarinnar,
„Beitiskipið Potjomkin" eftír Eisen-
stein, hafi lengst af verið sýnd klippt
af einhverri ritskoðun. Þessi þögla
mynd var gerð í Sovétríkjunum 1925
og fljótlega var þar í landi kippt úr
henni tilvísun í byltingarforingjann
Trotskij sem komst í ónáð hjá Jósep
Stah'n. Myndin sýnir uppreisn
sjóliða á rússnesku herskipi árið
1905 - og hún var sýnd ritskoðuð
eða bönnuð víða um lönd vegna
þess að hún þótti sýna vont fordæmi
um vel heppnaða uppreisn gegn
valdhöfum.
Frakkar bönnuðu að hún yrði
sýnd opinberlega. Hún var alllengi
bönnuð í Bandaríkjunum vegna
þess að hún „væri sýnikennsla fyrir
sjóliða í því hvernig standa skyldi að
uppreisn". I Englandi var aðeins
leyft að sýna myndina í kvikmynda-
klúbbum. í Þýskalandi var her-
mönnum bannað að sjá myndina og
að auki klippt úr henni atriði þar
sem liðsforingjum er hent í sjóinn.
Reyndar er það svo, að þegar
mynd Eisensteins var sýnd á ný-
afstaðinni kvikmyndahátíð í Berh'n
var því haldið fram, að það væri
eiginlega í fyrsta sinn sem myndin
væri sýnd alveg eins og hún átti að
vera í upphafi!
Árni Bergmann
ræðir um ritskoðun
kvikmynda sem er
jafngömul listforminu
sjálfu.
Kjallari
Margar aðferðir
í Sovétríkjunum klipptu menn
út það sem taldist „borgaraleg" við-
horf í kvikmyndum - í Bandaríkjun-
um var forðast að láta nokkuð það
gerast í kvikmynd sem túlka mætti
sem vinstrimennsku. Þar vestra
ríkti að auki lengi vel smásmuguleg
siðferðileg ritskoðun sem þoldi ekki
einu sinni að karl og kona sæjust
uppi í rúmi saman. Fjarstýring á
kvikmyndum getur verið með mjög
margvíslegum hætti: t.d. hefur ný-
lega verið tölvert um það fjallað að
bandaríska leyniþjónustan CIA hafi
sjálf hönd í bagga með gerð kvik-
mynda þar sem hennar menn koma
við sögu og selji framleiðendum
sérþekkingu og fyrirgreiðslu gegn
því að þjónustan sé sýnd í jákvæðu
„Hvað er að ykkur
Englendingum? spyr
meistarinn. Dúfan var
reyndar dauð. Við
fundum hana úti á
vegi. Eruð þið ekki
viðkvæmir fyrir neinu
öðru en dauðum
fuglum?"
ljósi í myndunum. Markaðurinn
tekur og oft völdin af kvikmynda-
höfundum, ekki aðeins vegna þess
að hann lætur alis ekki fé í myndir
sem ekki teljast söluvænlegar held-
ur og með því að breyta handritum
með róttækum hætti allt eftir því
hvað er talið höfða til sem stærst
hóps.
Sakleysingjar og rándýr
En svo aftur sé vikið að kvik-
mynd Emirs Kusturica þá fór
breska ritskoðunin fram á að hann
fjarlægði örstutt atriði úr nýjustu
mynd sinni, „Lífið er kraftaverk",
þar sem köttur nartar í dauða dúfu.
Myndin er ástarsaga á dögum
stríðsins í Bosníu og Kusturica
fannst þetta atriði við hæfi til að
minna á það hve auðveld bráð sak-
leysingjar eru útsmognum rándýr-
um á átakatímum. En ritskoðarinn
lætur sig ekki og Kusturica er svo
reiður að hann vill helst banna að
mynd hans sé sýnd í Bretlandi.
„Hvað er að ykkur Englendingum?
spyr meistarinn. Dúfan var reyndar
dauð. Við fundum hana úti á vegi.
Eruð þið ekki viðkvæmir fyrir neinu
öðru en dauðum fuglum?"
Kusturica, sem lítur á sig bæði
sem Serba og múslíma, segir í
myndinni sögu af ástum serbnesks
hermanns og múslímastúlku í
miðju borgarastríði. Og næst ætlar
hann að ráðast í kvikmynd gegn
neysluhyggjunni og þeim „nýja
bolsévisma" sem hann telur sig sjá í
valdi stórfyrirtækja samtímans og
hann telur engu skárra en flokks-
ræðið sem áður ríkti í landi hans.
Ur myndinni „Beitiskipið
Potjomkin" Þekktasta pólitíska
mynd sögunnar og einhver
áhrifamesta mynd listgreinarinnar.
ALLT & SUMT MEÐ
HALLGRÍMITHORSTEINSSYNI ;
OG HELGU VÖLU HELGADÓTTUR'
Alla virka daqa kl. 15. É
T
ÞRIÐJUDAGUR 75. MARS 2005 39
1
Jakob Bjarnar Grétarsson
0 Árshátíð RÚV var
haldin með pompi og
prakt á Grand Hóteli
um helgina. Hafi ein-
hver ætíað að ólga
vegna nýs fréttastjóra
hefði slæm áhrif á
skemmtunina óð sá
sami í villu og svíma. Var gleðin við
völd og lék hljómsveitin Sólon fyrir
dansi. Markús öm Antonsson út-
varpsstjóri er umdeildur innan stofh-
unarinnar nú um stundir en lék vel úr
sínum spilum. Mætti en yfirgaf stað-
inn þó fljótlega eftir borðhald áður en
vínið tókvöldin...
• En Markús öm
stendur sem sagt í
ströngu og nú flýgur
saga um bæinn, meðal
annars hefúr blaða-
maðurinn Hilmar Þór
Guðmundsson komið
henni á framfæri við lesendur blaða-
mannavefjarins, þess e&ús að hann
verði ekki mikið lengur við stjómvöl-
inn hjá RÚV. Hihnar segir að arftaki
Markúsar sem nefndur hafi verið til
sögunnar sé Þoisteinn Pálsson, sendi-
herra og fyrrverandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins sem er á leið heim fiá
Kaupmannahöfn. Því líkt og Fram-
sóknarflokkurinn á fréttastjórastólinn
í útvarpinu þá er alveg fyrirliggjandi
að Sjálfstæðisflokkurinn á útvarps-
stjórastólinn...
• Fyrrverandi starfs-
maður RÚV, sjálfur
menntamálaráðherra
Þorgerður Katrín, er
ekki hátt skrifuð með-
al starfsmanna Rfkis-
útvarpsins nú eftir að
hafa varið með kjafti og klóm hina
furðulegu ákvörðun Markúsar Amar
að ráða Auðun Georg Ólafsson sem
fréttastjóra útvarps. Er það þrátt fyrir
að hún hafi sagt aðferðir við manna-
ráðningar innan RÚV hafa gengið sér
til húðar á þingi í gær. Rifja menn upp %
í því sambandi, fremur sárir, að þó svo
að Þorgerður sjálf hafi komið á mjög
svo svipuðum nótum til starfa hjá
stofnuninni og Auðun Georg, var
henni tekið opnum örmum þar.
Reyndar að undangengnum vægum
væringum og undirskriftarsöfriun...
• Menn velta nú mjög
vöngum yfir því hverjir
standiábakviðhið
ónafngreinda og
„óvinveitta" tilboð í
hlutabréfHaralds ,
Sveinssonar í Moggan-
um. Eitt nafii hefur borið á góma í því
sambandi og er það Sigurjón Sig-
hvatsson, athafnamaður og kvik-
myndamógúll með meim. Það sem
þykir skjóta stoðum undir þá kenn-
ingu er að Sigurjón flutti fyrir nokkm
öll sín viðskipti til íslandsbanka...
%
• Tónlistarsnillingamir KK og Guð-
mundur Pétursson vom hætt komnir
skömmu fyrir síðustu helgi þegar þeir
óku um Þvottárskriður á Suðaustur-
landi. Vildi ekki betur til en grjót
hmndi á bíl þeirra og bromaði aftur-
rúðan. Vom þeir á ferð við tónleika-
hald í skólum á Austurlandi. Þegar
blúsforkólfurinn Dóri
Braga spurði tíðindin
fékk hann hland fyrir
hjartað því ekki að-
eins þykir honum
vænt um þessa vini
sína heldur em þeir
KK og Gummi Pé lyk-
ilmenn í mikilli blúshátíð sem Dóri
stendur fyrir dagana 21. til 25 þessa
mánaðar...