Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2005, Blaðsíða 21
DV Útivist & ferðalög
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 21
Ráöstefna í Freysnesi
Dagana 5.-7. maí verður
haldin ráðstefna í Freysnesi í
Öræfum sem ber heitið Úti-
vist og heilbrigt líferni. Er hún
á vegum umhverfisráðuneyt-
isins og Norðurlandaráðs en
Landvernd sér um undirbún-
ing hennar. Verður að miklu
leyti fjallað um þjóðgarða og
útivistarsvæði og hvernig fólk
getur hlúð að og notið þessara
staða og um leið byggt upp
eigið heilbrigði með um-
gengni við náttúruna. Meðal
fyrirlesara verða Anna Sigríð-
ur Þórðardóttir umhverfisráð-
herra, Vigdís Finnbogadóttir,
Jack D. Ices og Roger Croft frá
Skotlandi. Um eitt hundrað
manns munu sitja ráðstefn-
una og þar af eru um 70-80 er-
lendir gestir.
París hefur vinninginn
„París er mín draumaborg,"
segir leikkonan Þórunn
Erna Clausen. „Ég bjó
þar í eitt ár eftir
stúdentspróf og
var þar að læra
ffönsku við Sor-
bonne-háskól-
ann og vinna í
Disneylandi. Það
skipti engu þótt ég
væri ein að labba um, alltaf
var ég í draumaveröld að mér
fannst.
Hún er
tví-
mæla-
laust
jafn
róm-
antísk
og af er
látið. Það
engin borg sem
stenst samanburðinn við París,
enda alveg yndisleg.“
, ' * ‘ :
lngunn Bjarnadóttir
Lét drauminn rætast og hef-
ur ferðast viða sem starfs-
maðurá lúxussnekkju.
með túrista út í dagsferðir. Maður
verður svolítið þreyttur á að eiga sér
engan eiginlegan samastað," segir
Ingunn.
En hvaða ráð skyldi hún hafa fyr-
ir þá sem finnst þetta heillandi líf og
vilja komast að, til dæmis á snekkjú.
„Fyrir fólk á íslandi myndi ég mæla
með því að fara til dæmis til Frakka-
lands eða Mallorca og fara persónu-
lega á bátana og tala við þetta fólk.
Það er auðveldast að koma á vet-
urna, þegar bátarnir eru í höfn. Þá
þurfa þeir mikið viðhald og viðgerð-
ir. Maður getur þá fengið vinnu til
dæmis við að mála, sandpússa eða
bóna. Þannig kemst maður inn í
þennan bransa, þú kynnistu fólki og
út firá því gefur það ef til vill mögu-
leika á starfssamningi fyrir sumarið.
Það eru ekki miklar líkur á að kom-
ast inn í gegnum atvinnuskrifstofur
því þær eru aðallega að leita að fólki
með reynslu. Best að treysta á sjálf-
an sig.“
Ingunn mælir hiklaust með slík-
um störfum. „Þetta er mikið ævin-
týri og það er um að gera að lifa líf-
inu og sjá sem mest. Þetta er frábært
fyrir þá sem vilja gefa sér nokkur ár í
að leika sér.“
eirikurst@dv.is
Fost við Jemen „Hanish-eyjar íRauðahafínu, utan við Jeme
umTiIfílr's Þe“areUarl'v*'-v'kur vegna brjálaðs veöurs
IrVlu hítllSe5Seleyja■Það var ekk<"-t * Þessum eyjum nema
' en veraþeirraþarvarhlutiafþjálfunþeirra I
gerð utlegð bara. Veiddum fisk handa þeim til að hafa þá góð
R.auðahafið „Við fengum
nokkra svona fallega daga inni
á milli stórsjós og storma."
10. apríl: Þingvallagangan: 5. hluti
Fimmta og síðasta Þingvallagangan hefst
við Arnarfell og liggur með Þingvallavatni.
EfaðstseðUr leyfa vegna snjóa eða hálku
verður gengið á Miðfell en annars að Mjóa-
nesi og undir Múla við suðurenda Miðfells.
Þingvallagöngunni lýkurslðan á sama stað
og hún hófst 13. febrúar, við útfall Sogsins.
Göngutími er 4-5 timar. Nánari upþlýsingar
á utivist.is.
10. aprfl: Göngugarpar f Hafnarfirði
Idag munu Göngugarpar hittast við Fjarð-
arkaup kl 10 og ganga gamla þjóðleið frá
Hafnarfirði út á Álftanes. Meðal annars
verður komið við hjá Gálgakletti. Göngutími
er 3-4 tímar.
11. aprfl: Útivistarræktin
I dag er farið frá Toppstöðunni við Elliðaár
og farinn hringur íElliðaárdalnum. Gengið
er upp I gegnum hólmann I ánni og vestan
megin við ána upp að Vatnsveitubrú, þar
sem farið er austuryfir ána. Stansað er I ná-
grenni Árbæjartaugar og haldið haldið nið-
ur með Elliðaánni að austan. Gönguferðinni
lýkur á sama stað og hún hófst rúmri
klukkustund fyrr. Hópurinn hittist kl 18 og
eru allirvelkomnir.
Sendu okkur póst
Viltu koma til okkar skilaboðum um ferð
sem er á dagskránni? Sendu okkur póst á
netfangið ferdir@dv.is.
Malta „Á leiðút höfnina I
Velletta, höfuðborg Möltu".
Á gðngu
um landið
Þegar þú gengur er gott að hafa eftir-
farandi i huga:
Haldið höfðinu hátt en þó afslöþpuöu.
Hakan á að vera lá-
rétt eða halla örlítið
niðurað bringunni.
Axlir afslappaðar
og maginn inn-
dreginn. Verið bein í
baki án þess að
vera stlfeða sperrt.
Gleymið ekki önd-
uninni. Andið djúpt
niður imaga, inn um nef, út um munn.
Efþið eruð með bakpoka munið aö hafa
hannrétt stilltan. Bestu bakpokarnir eru
meðstillanlegum ólum fyrir mjaðmir og
bak. Meginþunginn á að hvíla á mjöðm-
um og því er best að ólin sé vel bólstruð.
Gott er að teyja á vöðvum eftir göngu en
passa skal upp á að llkaminn sé vel heitur.
Upplýsingarnar eru fengnar afvefslðunni
ganga.is en þar má finna margs konar
skemmtilegar upplýsingar og fróðleik um
útivist sem tilvalið er að nýta sér við und-
irbúning á ferðalögum sumarsins.
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi í Reykjavík
í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til
kynningar tillaga að breytingu Aðalskipulagi Reykjavíkur
2001 - 2024.
Einnig er hér með birt leiðrétting á auglýsingu um
deiliskipulag sem birtist þann 18. mars sl.
Reitur 1.230, Bílanaustreitur.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur, 2004 -
2024, vegna reits 1.230, Bílanaustreitur.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að mörk miðsvæðis (M5) og
íbúðabyggðar við Borgartún-Sóltún breytast þannig að
svæði fyrir íbúðabyggð stækkar til norðurs og miðsvæði
minnkar sem því nemur en lóðin Borgartún 30 mun til-
heyra miðsvæðinu í stað íbúðabyggðar. Einnig er bætt við
þéttingarsvæði nr. 14 á mynd 1 í greinargerð aðalskipu-
lagsins þar sem gert er ráð fyrir allt að 250 íbúðum.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
08:20 - 16:15, frá 6. apríl til og með 11. maí 2005. Einnig
má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru
þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að
kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við
hana skal skila skriflega eða á netfangið skipuiag@rvk.is,
til skipulagsfulltrúa, merkt viðkomandi svæði og undir-
ritað skilmerkilega, eigi síðar en 11. maí 2005.
Reitur 1.230, Bílanaustreitur, leiðrétting á
orðalagi auglýsingar.
[ auglýsingu stóð áð tillaga væri breyting á deiliskipulagi
en rétt er að tillaga er að nýju deiliskipulagi fyrir Bílanaust-
reit. Að öðru leyti eru upplýsingar í auglýsingu óbreyttar.
Athugasemdarfrestur við ofangreinda tillögu er óbreyttur,
til og með 4. maí 2005.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 6. apríl 2005
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219