Freyr - 15.02.1946, Side 6
SÖ
FílEYft
Erindi mitt að Bessastöðum er að sjá og
fræðast um búskapinn. Því sneyði ég hjá
forsetabústaðnum að þessu sinni og hitti
bústjórann að máli.
í jarðabók Árna Magnússonar og Páls
Vídalíns, sem skráð var á árunum 1702—
1712, segir svo um Bessastaði:
• „Bessastader.
Jarðarinnar dýrleiki þykjast menn heyrt
hafa að verið hafi xii c.
Eigandinn er kóngl. Majestat.
Hjer er amtmannsins residens og fóet-
ans þá so til hagar.
Landskuld er hjer engin nje hefur verið
í nokkur hundruð ár.
Leigukúgildi engin nje leignagjald.
Þar eru nú iii kýr, ásauður enginn, klár-
hestur i, sem skal vera af inventario, ii
reiðhestar, sem heyra Monsr. Beyer til.
Fóðrast kunna þar nú vi kýr og ekkert
meir.
Túnið segist að vera viii kýrfóðurs vellir
og er nú sökum áburðarleysis og annarar
vanræktar stórum af sjer gengið og víða
komið í mosa.
Heimilismenn eru nú xix sem eru:
Monsr. Beyer með hans fameliæ ..... 6
Ráðsmaður ......................... 1
Vinnumenn ......................... 7
Drengir ........................... 2
Vinnukonur ........................ 3
Sölvafjöru á jörðin lítilsverða inn vkð
Bessastaðanes, hvör þó ei brúkast.
Eldiviðartak af mó var til forna nægjan-
legt í Bessastaðanesi, en tekur nú mjög so
að rjena.
Engjar eru öngvar.
Túnið brýtur að sunnanverðu Lambhúsa-
tjörn, er gengur úr Skerjafirði.
Haglendíð brjóta flæðiskurðir, er gánga
úr Bessastaðatjörn norðanvert á Bessa-
staðaland.
Vatnsból er slæmt og erfitt og þrýtur
jafnlega á þerrasumrum og frostavetrum.
Heimræði brúkast ekki, en skipstaða
Bessastaðamanna er í Melshöfða.“
Þannig var búnaður og ástæður á Bessa-
staðabúi fyrir 240 árum síðan. Bústofninn
var 3 kýr, einn klárhestur, 2 reiðhestar og
engin sauðkind, en 19 manns1 í heimili.
Væri þetta nú á dögum vart talið
einkenni höfuðbóla fyrir annara hluta sak-
ir en fjölda heimilisfólks, en sá mælikvarði
á venjulega bújörð verður að teljast meira
en vafasamur.
En hvernig er ástatt með búskapinn þar
í dag? Því skal kynnast.
★
Ríkið á Bessastaði og búið með. Forsjá
þess og rekstur er undir yfirumsjón forseta
og landbúnaðarráðherra, en bústjóri stýrir
búi.
Núverandi bústjóri heitir Aðalsteinn
Þorgeirsson, ættaður úr Önundarfirði.
Kom hann að Bessastöðum sem yfir-fjósa-
maður vorið 1945, en tók við stjórn búsins
á síðastliðnu hausti til bráðabirgða, eða
þangað til annar bústjóri verður ráðinn
nú með vorinu.
Enda þótt aðaláhugamál bústjórans
varði búfjárræktina og hann tæki eigi við
búsforráðum fyrr en á haustnóttum, tókst
honum vel og greiðlega að leysa úr spurn-
ingum mínum viðvíkjandi þeim þáttum
búskaparins, sem framkvæmdir voru utan
hans verksviðs á síðastliðnu sumri.
Á Bessastöðum er unnið að framkvæmd-
um í engu minni mæli en gerizt á öðrum
bújörðum þessa lands. Allt er nú búið í
haginn til þess, að þar verði rekinn nýtízku
búnaður með hagkvæmum aðferðum um