Freyr - 15.02.1946, Qupperneq 24
68
FRE YR
minna en 2000 krónur á mann. Hver styrk-
ur kann aS fást til slíkrar farar verður ekk-
ert um sagt á þessu stigi málsins.
Þeir menn úr bændastétt — eldri eða
yngri •— sem eygja möguleika eða hafa
vissu, fyrir því að geta gerzt þátttakendur
í slíkri för, ættu að tilkynna þetta sem
allra fyrst og gera grein fyrir afstöðu sinni
til málsins.
Allir, sem áhuga hafa fyrir félagsför til
Norðurlanda skrifi hið fyrsta til fram-
kvœmdastjóra Stéttarsambands öænda,
Pósthólf 1023, Reykjavik. Þegar fengin er
vissa fyrir áhuga manna um þetta efni,
verður málið tekið til athugunar og fram-
kvæmda, ef hæfileg þátttaka í slíkri för
er auðsæ.
G.
Samvinnu þvotta h ús
Nýtt átak félagssamtakanna í uppsiglingu
Samvinnuþvottahús í Svíþjóð.
Laust fyrir stríðið fór af stað hreyfing
um sveitir Svíþjóðar þess efnis, að leita
þyrfti hjálparmeðala til þess að létta hús-
mæðrum sveitanna fataþvottinn. í bæjun-
um voru víða möguleikar fyrir hendi til
þess að senda þvottinn á þvottahús og í
kjöllurum stórbygginga eru oft þvottahús
fyrir íbúana.
Til þess að leysa þetta mál eftir þörfum
sveitanna var gengist fyrir stofnun sam-
vinnuþvottahúsa. Tókst lausn málsins svo
vel, að á 6 árum hafa verið reist um 200
samvinnuþvottahús vítt um byggðir lands-
ins. Flest eru þau útbúin með tilliti til þess,
að húsmæðurnar komi sjálfar með þvott-
inn sinn, en spáð er, að flestar muni hverfa
frá því fyrirkomulagi og senda tauið til
þvotta er frá líður.
Er sú aðferð sums staðar notuð nú þegar.
Eru þá áætlunarbifreiðar og mjólkurflutn-
ingabílar notaðir til flutninga á tauinu
fram og aftur.
Hverju þvottahúsi stýrir forstöðukona,
en fjöldi starfsfólks er annars háður því
hve mikið af fatnaði er sent þangað til
þvotta. Stærð þvottahúsanna er að sjálf-
sögðu sniðin með tilliti til fjölda heimila,
sem standa að stofnun þeirra. Talið er að
ekki sé ráðlegt að stofna til svona fyrir-
tækis — með öllum nýtízku útbúnaði —
nema að minnsta kosti 50—80 fjölskyldur
sameinist um verkefnið.
Aðalkosturinn við að þvo á svona stað,
eru hin fullkomnu tæki, því með aðstoð
þeirra er lokið þvotti og þurrkun á fjórum
til fimm stundum í stað þess að áður töldu
húsmæðurnar sig þurfa 2 daga til sama
starfs og meira, er erfiðlega gekk að
þurrka.
Kostnaðurinn við þvottinn er breytileg-
ur, en jafnvel á minnstu húsunum er hann
minni en í heimahúsum. Þvottahús fyrir
200—400 fjölskyldur eru talin af hæfilegri
stærð. Á þeim húsum hefir kostnaðurinn
við að þvo hvert kg. reynzt 35—45 aur-
ar, en 50—60 aurar ef konan kemur ekki
sjálf til aðstoðar við þvottinn.