Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 3
Spaugstofan íyrst á staDinn í „frátlaleit"
Glott í glugga Pálmi Gestsson i miðjum
hópi mótmælenda f Spaugstofubilnum.
Meðan framhaldsskólanemendur öskruðu sig hása vegna
styttingar á námi þeirra keyrir rúta Spaugstofunnar framhjá
og leitar frétta. Kumpánalegan svip má greina á andliti Pálma
Gestssonar bak við gler rútunnar.
„Við vorum í tökum þarna niður frá og þurftum að keyra
þarna framhjá, vorum nú ekki að taka upp þama samt,“ seg-
ir Pálmi spurður um rúntinn framhjá Alþingishúsinu.
„Reyndar hringdi Útvarp Versló í mig og spurði hvers vegna
við hefðum verið þarna; hvort við hefðum verið að ljá þeim
lið,“ segir Spaugstofuliðinn sem kveðst ekki hafa verið að
taka þátt í mótmælunum. „Þetta var á fimmtudegi en þá daga
erum við alltaf á ferðinni og svo er legið yfir blöðum og frétt-
um þess á milli til að ná í efni,“ segir Pálmi sem var mitt á
milli gerva þegar DV truflaði hann á föstudag, enda undir-
búningur næstsíðasta Spaugstofuþáttar vetrarins í fullum
gangi.
Pálmi segir aðspurður um þátttöku sína í mótmælum fyrr
og nú að hann hafi nú alltaf haft sterkar skoðanir á þjóðmál-
um. „Ég veit nú samt ekki hversu mikill mótmælamaður ég
er, þó að við reynum auðvitað að kljúfa þjóðmálin í frétta-
skýringaþætti okkar,“ segir hann.
Aðspurður um hvort til fréttastjóramálið margfræga hafi
náð inn á fréttastjórn Spaugstofunnar, sagði Pálmi, leiftur-
snöggt: „Hér er enginn Spaugstofustjóri þannig að við slepp-
um við að ráða fréttastjóra, að minnsta ekki eins og gert var
hér í húsinu," bætir Pálmi við í ísköldu vestfirsku háði.
Spurning dagsins
Hefurðu lent í slagsmálum?
Missti heyrnina
áöðrueyra
„Já, ég hefnú nokkrum sinnum lent í
slagsmálum. Einu sinni var það nokkuð
alvarlegt en þá missti ég heyrnina á
öðru eyra, það var nú ekki nógu gott.
Hákon Önnuson, kokkanemi
„Það heldég
hafi aldrei lent
í. Það eru
reyndar mörg
ársíðan ég var
unglingur en
ég held ég hafi
ekki lentí
neinu, man alla vega ekki eftir
því,"
Snorri Snorrason, borstjóri
„Nei, ég hef
aldrei lent í
slagsmálum,
ég er svo góð
stelpa."
Katrín Páls-
dóttir, starfs-
maður
Bakkavíkur
„Nei, ég hef
aldrei lent í
slagsmálum.
Það geturnú
verið að ég hafi
lentí einhverj-
um pústrum á
leikskóla, það
hefur þá ekki verið alvarlegt því
ég man ekkert eftir því."
Baldur Jónsson, nemi
„Nei, aldrei lent
í neinu slíku,
ekki einu sinni
verið nálægt
því."
Sif Péturs-
dóttir, nemi
Um síðustu helgi voru nokkrar líkamsárásir í miðbæ Reykjavíkur.
Flestir hafa einhverntíma lent í einhverjum áflogum..
Bræður spila saman
„Já, ég man mjög vel eftir
þessu. Við spituðum oftsam-
an við Jón, hann sló okkur
bræðrunum við með nikkuna
áður en hann veiktist,"segir
Gylfi Ægisson en gamla myndin að
þessu sinni er frá árinu 1975 þegar
bræðurnir Jón og Gylfi voru að æfa sig á
harmonikku heima hjá þeim siðarnefnda.
„Við vorum að fara að spila i Eyjum
sem við geröum svo oft. Við vorum lika
saman i hijómsveit. Ég man eftir þvi einu
sinni þegar við vorum að spila á balli i
Eyjum, ég á orgel en Jón á gitar. Ég sneri
baki i hann en þegar það átti að koma
gitasóló þá gerðist ekki neitt. Ég leit út i
sal og þar varJón þar að vanga við ein-
Sagt er aðmenn fari í humátt á eft-
ir einhverjum þegar þeir elta ein-
hvern úrhæfílegri fjarlægð. Erþetta
talið komið aforðinu
hámót sem er samsett
og þýöir hæll ogmót.
Merkir humátt þannig að fylgja í
fótspor annars manns.
færi.
hverja dömu. Lagið sem
var spilað hét einmitt Siö-
asti dansinn þannig að
hann hefur bara viljað nýta
tækifærið," segir Gylfi og
hlær. Hann segist enn í dag
gripa til nikkunnar við hvert tæki-
ÞAÐ ER STAÐREYND...
...að hjarta
meðalmanns slær
3 milljarðs
sinnum um ævina
Málið
.La cfrúm bakk uppi
rúmi / áca. sumcr-
daginn fyrstc og
hcrföi aðúifega á
kmfáyfxinqcr og
hnéði kæHgræiunn;. Siv Friðleifsdóttir
alþingismúður i dagbóksínni á siv.is
ÞEIR ERU FRÆNDUR
Fráttahaukurinn & fyrrum framkvæmdastjórinn
Kristinn Hrafnsson, fyrrum fréttamaður áRÚV,Stöð2og
fréttastjóri DV, og Aðalbjörn Sigurðsson, fyrrum frétta-
maður á Stöö 2 og framkvæmdastjóri AFLS Starfsgreina-
félags á Austurlandi, eru bræðrasynir. Hrafn og Sigurður,
feður tvimenninganna, eru hálfbræður, ættaðir austan af
fjörðum. Kristinn starfar nú við kvikmyndagerð og er
meðal annars með heimildarmynd um.frelsun" Bobby
Fischer í smíöum en hann er handhafi blaðamannaverö-
launanna fyrir umfjöllun sína um málefni Arons Pálma
Ágústssonar I fangelsi ÍTexas.
EÍtt líf
njotum þess
Queen
152*203cm.
I
Betra
Viking Base
3 litir af botnum og SquareAlu fætur
Signature Brown
Signature rúm með
Sprina Air heilsudýnu
Þrjár gerðir ar göflum í boði (Signature, Laay og Vikii
Viking),
Lady white
The y....... ..^
NeverTurrr
__ Mattress
Spring Air Never Turn heilsudýnan
Dynan meo tvíherta stálgormakerfinu „Torsion II*.
806 gormar í Queen stærðinni (152x203 cm).
Steyptar hliðarstyrkingar auka svefnsvæði um allt að 30%.
100% náttúruleg gæðaefni.
Laserskorin ConformaFoam yfirdýna.
Komdu i verslun okkar að Faxafeni 5 og við hjálpum þér
að finna réltu dýnuna fyrir þig á tilboði með gafli og öllu tilheyrandil
þrír litir og þrír stífleikar á dýnu.
Athl aukahlutir á myndum ekki innifaldit í verði.
Tilboðsverð
Signature gafl, botn og Spring Air Natures Comfort heilsudýna
Heiti Stærð VerS kr
SIGNATURE NATURES COMF. Queen 153 x 203 129.900 kr
SIGNATURE NATURES COMF. Cal. King 183 x 213 162.900 kr
SIGNATURE NATURES COMF. King 193 x 203 162.900 kr
Betra
BAK
Faxafeni 5 • RcykjaviU • Simi 588 8477 • bctrabak@betrabak.is • www.betrabak.i
Opib virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-16