Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 23. APRlL 2005 Helgarblaö DV Duglegur að hjálpa honum með lærdóminn IIIIU lii Úí z T"tI JUNI 24 25 28 29 30 segir r Borgþórs- son kennaranemi sem á soninn Höskuld Ama sem er sjö ára. og meira á sumrin. Þeir eiga heima (lítilli fjarlægö £rá hvor öðrum og Höskuldur segir mikinn samgang á milli heimilanna. Aðspurður seg- ist hann afar duglegur að hjálpa Höskuldi Arna með lærdóminn enda stefni hann á að verða kenn- ari. „Ég er gríðarlega duglegur enda forum við djúpt í sálræna þætti lærdóms ungra barna í skólan- um," segir Höskuldur brosandi og bætir við að kærastan hans, Unnur Þóra, sé oftast með þeim feðgum þegar þeir geri eitthvað saman enda komi henni og Höskuldi Ama afar vel saman. Bökuðu saman piparkökur „Vanalega sæki ég hann á fimmtudögum eftir fimleikaæfing- amar og skutia honum svo í skól- ann á mánudögum,1' segir Hösk- uldur og bætir við að þeir séu duglegir að heimsækja afa hans og ömmu. Höskuldur Arni æfir fim- leika, fótbolta og handbolta. Hösk- uldur pabbi hans segir að hann hafi íþróttaáhugann að einhverju leyti frá honum en auk þess æfi fósturpabbi hans fimleika. „Hann hefur því þennan áhuga frá báð- um heimilum." Höskuldur Ami var hjá pabba sínum tun síðustu helgi. Þá not- uðu þeir tímann og fóm í sund og í heimsókn til ömmu hans og afa. „A sunnudeginum bökuðum við svo piparkökur og buðum allri Qölskyldunni í kaffi," segir hann og viðurkennir að finna alltaf til tóm- leika þegar hann skili honum af sér efdr helgina. Mikilvægt að halda friðinn Höskuldur segir afar mikilvægt að halda góðu sambandi milli for- eldranna og sérstaklega barnanna vegna. „Það er náttúrulega skelfi- legt þegar fólk getur ekki komist að sameiginlegri niðurstöðu. Þetta er alls ekki svo flókið og mér finnst það mikil eigingirni þegar fólk er að rífast um börnin sht." Feðgar og nafnar „Á sunnudeginum bökuöum viö svo piparkökur og buö- um allri fíölskyldunni I kaffí. Bára Guðbjartsdóttir hefur verið greind með heilaglöp. Hún ætlar ekki að gefast upp og ætlar að reyna að láta drauma sína rætast á sama tíma og hún er meðvituð um að minni hennar fjarar smám saman út. Liflr hvern dag sem bann síðasta „Ég lifi hvern dag eins og hann sé minn síðasti og nýt lífsins. Ég veit ekki hvað ég hef langan tíma til að gera það sem ég vil því ég á alltaf á hættu á að ég geti það ekki lengur," segir Bára Guðbjarts- dóttir frá Melhúsum í Hafiiarfirði. Bára segir það ekki koma til mála að fresta því sem hún geti gert í dag til morguns. Hún viti ekld hvað morgundagurinn beri í skauti sér og hún ætli ekki að missa af neinu. Bára hefur verið greind með heilaglöp sem lýsir sér á svipaðan hátt og alzheimer. Hún fékk heilablóðtappa fýrir tíu árum og líklega hefur komið drep í heilann þá. Eftir það hefur Báru hrakað en það er ekki langt síðan læknar greindu hvað væri að. Minnið fjarar út „Þetta lýsir sér þannig ég gleymi því sem ég á að muna, ég get ekki reiknað og stundum þeg- ar ég er í kunnuglegu umhverfi, þekki ég mig ekki og veit ekki hvar ég er. Auk þess er jafiivægi mitt ekki gott og þarf ég að gæta þess að falla ekki um koll um ójöfnur," segir Bára sem lét draum sinn rætast eftir að hún veiktist og fór að mála. Að undanförnu hefur hún málað af krafti og er komin með hundrað myndir. Einu sinni hefur hún haldið sýningu á verkum sín- um í Hafnarborg en hefur nú ver- ið boðið að setja upp málverka- sýningu í Safnahúsinu í Borgar- nesi. Hún var opnuð á sumardag- inn fyrsta og stendur yfir til 2. maí. Fjölskyldan stendur með henni Bára segir að eiginmaður hennar og uppkomin böm komi fram við hana eins og venjulega manneskju og beri virðingu fýrir sjúkdómi hennar. Maðurinn hennar hefur viljað vernda hana talsvert en Bára hefur ekki kært sig um það og sendi hann í frí svo hún gæti sýnt'fram á að hún gæti bjargað sér sjálf. „Það hefur geng- ið mjög vel og ekkert hefur komið upp á sem valdið hefur mér vanda. Ég gleymi ekld að slökkva undir pottunum eða einhverju viðlíka sem gæti skaðað mig. í það minnsta ekki ennþá," segir Bára sem rak verslun í Hafnarfirði í tíu ár. Nú málar hún sér til ánægju en það hefur lengi verið draumur hennar að geta einbeitt sér að listsköpun. „Það er einmitt einn af draumum mínum sem ég lét rætast en ég læt veikindin ekki stöðva mig í því að gera það sem mig langar," segir hún. Hamingjusöm þrátt fyrir veikindin Bára tekur lyf sem hafa reynst vel en læknar vita ekki hver fram- vinda sjúkdómsins verður. Henni getur hrakað hratt en svo gæti hún verið óbreytt lengi. Hún læt- tu engan bilbug á sér finna, fylgist vel með því sem er að gera í þjóð- félaginu og fer á pólitíska fundi og spyr spurninga. Hún segist hafa mikinn áhuga á stjórnmálum, einkum sjávarútvegsmálum og meðal annars hafi hún svör við því hvernig efla eigi Hafrann- sóknarstofnun. Bára er ánægð og hamingju- söm þrátt fyrir veikindin og hefur frá fýrsta degi ekki látið neitt stöðva sig í að gera það sem hana langar. „Maður á val, ég hef valið að gefast ekki upp. Það er svo ein- falt að hætta bara en ég trúi að ef maður geri það þá geti maður bara gleymt þessu öllu og lagst fyrir. Það geri ég ekki fyrr en í fulla hnefana," segir hún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.