Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Blaðsíða 4
4 LAUCARDAGUR 23. APRÍL 2005 Fréttir DV Fyrrverandi úr íslendinqa bók íslensk erfðagreining má ekki skrá upplýsingar umfyrrver- andi maka fólks inn í ætt- fræðigrunninn íslendingabók sé fólkið sjálft því andvígt. Þetta er niðurstaða Persónuvemdar eftir að kæra barst frá manni sem sætti sig ekki við að nafn fyrrverandi eigin- konu hans var tengt nafni hans í íslendingabók. Fyrir- tækið hafði neitað honum um að fjarlægja nafti eigin- konunnar fyrrverandi. Mað- urinn taldi tengsl sín við konuna eingöngu einkamál- efni en ekki ættfræðiupplýs- ingar enda hefðu þau ekki eignast böm saman. Meira kapp enforsjá Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskól- ans á ísafirði, segir margar rangfærslur hafa komið fram í umræðu um málefni skólans að undan- förnu. Ólína skrifaði greinávefbb.isí gær og segir þar m.a.: „Stór orð hafa fallið og digrar yfir- lýsingar um stjórn- unarhætti, stöðu- veitingar, sam- skipti og fleira. Því miður hefur sú umræða öll ein- kennst meira af kappi en forsjá og margar rangfærsl- ur verið hafðar í frammi sem æra myndi óstöðugan að elta aflar uppi. Skólans vegna get ég þó ekki látið hjá h'ða að leiðrétta nokkur atriði sem fram hafa komið síðustu daga.“ Styrkir tónlistarfólk Menntamálaráðuneytið hefur að tillögu tónhstar- ráðs úthlutað styrkjum úr tónhstarsjóði og er það í fyrsta sinn að úthlutað er úr sjóðnum. Alls bámst 123 umsóknir auk þess sem tek- in var afstaða til 6 umsókna sem bámst áður en auglýst var eftir umsóknum. Akveðið hefur verið að veita styrki til 59 verkefna og þar af em þrír starfs- styrkir til þriggja ára. Á fjár- lögum 2005 em 50 millj.kr. til tónlistarsjóðs og nema styrkveitingar að þessu sinni um 35 miflj.kr. Síðar á árinu verður auglýst aftur eftir umsóknum. Arnar Óli Bjarnason, tvítugur Hafnfirðingur, kveikti í sex bílum við tvö hús í Hafnarfirði nótt eina í september vegna þess að kærastan hafði haldið framhjá honum. Arnar hafði rifist við stúlkuna kvöldið fyrir íkveikjuöldu sína og hellti sig fullan í kjölfarið, fékk sér bensín í bjórflösku og lagði eld að bíl. Sagður heill á geði en stríða við gríðarlega flkn. Kveikti iuilur í fjölda híla til að hefna fvrir framhjáhald Björgvin Jónsson, lögmaður Arnars Óla, sagði óákveðið hvort dóminum yrði áfrýjað. Ef mið er tekið af refsiramma lagabók- stafsins sem Arnar er sakfelldur fyrir verður þó að telja líklegt að svo verði ekki. Arnar er sagður hafa stofnað í hættu heilsu og lífi íbúa annars hússins sem hann kveikti í við. Saga gerandans er sága ungs manns sem festist í viðjum vímuefna og afbrota og sýpur nú seyði af því með fangelsisrefsingu. Arhar Óh játaði að hafa kveikt í bílum við Fjörukinn og Strandgötu septembernótt í fyrra um leið og lögregla hafði hendur í hári hans. Faðir fyrrverandi kærustu hans hafði þá tjáð lögreglu að hann óttað- ist að Arnar hefði látið verða af hót- unum um að hefna sín á stúlkunni, sem samkvæmt dómsorði hafði haldið framhjá honum. Fullur og reiður Eftir því sem fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjaness hafði Arnar setið að drykkju kvöldið fyrir árásina og stuttu fyrir miðnætti mun hann hafa sagt vini sínum frá því að hann hygðist kveikja í,“ eins og það er haft eftir vitninu. Mun Arnar hafa yfirgef- ið samkvæmi hjá vini sínum með bjórflösku í hendi; sýnilega reiður og ölvaður. Bjórflöskuna fyllti hann síðém af bensíni og hélt að Lækjar- götu 34 þar sem hann hellti bensíni yfir bíl og bar eld að. Eldurinn náði að festa sig í tveim- ur öðrum bifreiðum í kjölfarið og þótti sannað að með því hefði Arnar skapað hættu fyrir íbúa. Hann lét þó ekki þar við.sitja heldur kveikti hann líka í annarri bifreið við Fjörukinn í Hafnarfirði og náði sá eldur að ber- ast í nærliggjandi grindverk. Fíknin talin ástæðan Geðlæknir mat geðheilbrigði Arnars og skilaði skýrslu fyrir dóm- inn. Samkvæmt því mati var Arnar meðvitaður um gjörðir sínar umrætt kvöld en er það jafhffamt tekið fram að áralöng vímuefnaneysla hafi sett mark sitt á skapgerð Amars og gjörðir. Hann sé þunglyndur vegna neyslu sem hann hafi ítrekað reynt að binda enda á með meðferðum Kveikti í Sannaö þótti að Arnar hefði I annaö skiptið sem hann bar eld að bll við, hús I Hafnarfirði stefnt Ibúum íhættu. sem lítinn árangur hafi borið. Saka- feriil Amars staðfestir þetta en hann hefur áður hlotið fimm dóma vegna brota tengdum vímuefrianeyslu eða fjármögnun hennar og í því skyni sætt sex mánaða fangelsi vegna þjófhaðar árið 2003, auk tveggja dómssátta vegna fíkniefnabrota. Ákvæði ekki nýtt Eins og fyrr segir sagði Björgvin Jónsson, lögmaður Arnars, ekki ákveðið hvort þessum tveggja ára dómi sem Arnar hlaut yrði áfrýjað, enda var honum gerð lægsta mögu- lega refsingu við broti sínu. Athygli vektu í þessu máli sem og öðrum sambærilegum að þótt skýrsla geðlæknis taki af allan vafa um veikindi Amars tengd fíkniefna- neyslu, sá dómarinn, Finnbogi Alex- andersson, ekki ástæðu til að nýta ákvæði í lögum sem heimila dómur- um að dæma menn til meðferðar samhliða fangelsinu en slfkt ákvæði er raunar h'tið notað nema með svokölluðu áfengisskilorði, sem skil- orðsbindur dóma við það að sak- borningar hangi þurrir meðan á skil- orði stendur. heigi@dv.is Arnar ÓHFerl tveggja ára fangelsi fyrir að kveikja í sex bllum í Hafnarfirði. Geðlæknir sagði ástæðu viðbragða Arnars við framhjá- haldi kærustunnar eiga sér skýringu i mikilli neyslu á flkni- efnum. Sá hær best sem síðast hlær Sykurinn var búinn þegar Svart- höfði hallaði karinu yfir cheeriosið. Vonbrigði hfsins fullkomnuð. Þýðir vindar sumars þerra ekki tár sumra. Þeir auka á. Stétt hinna hlæjandi manna hefur yfirtekið landið og á meðan gráta hinir sorg- mæddu. Svarthöfði hefúr fengið þau skila- boð frá mannanafnanefnd að nafn hans sé ólöglegt. Honum er hafriað. En þeir sem heita kjánalegum nöfn- um sér einungis til skemmtunar eru samþykktir. Jón Gunnar má heita Jón Gnarr, af því það þykir fyndið. Og Þorsteinn Guðmundsson má m. Svarthöfði heita Þorsteinn Hilaríus Guð- mundsson, því það er fyndið. Hver ákvað að grínistarnir hefðu meiri réttindi en við hin? Kannski er það einhver lýðræðiskapítahsk ákvörðun því það er meiri eftirspum eftir fyndnum en þeim sem tárast fremur af sorg en hlátri. Og hvers vegna hlær enginn að sumum en alhr að hinum? Það er ekkert jafnrétti. Sjálfur bruggaði Svarthöfði ógeðsdrykk í ungdómi sínum og Hvernig hefur þú það? Ég hefþað djöfull gott," segir Sverrir Ólafsson myndlistarmaður.„Er orðinn Óðalsbóndi á Esju- bergi og vorverkin að byrja. Þetta er bærinn sem Esja settist að á sama tíma og IngólfurArnar- son nam land. Hún var helvíti göldrótt og sagt að hún tældi viö sig unga sveina. Ætli hún sé ekki enn aö þvi ég vakna stundum við skrýtnar kenndir á nóttinni. Það verður snöggt risí Ég er samt ekki með neina konu sem stendur. Bara landnámshænurnar og drauginn hana Esju." hefur vart beðið bætur fyrir. Verra var þegar hann beraði á sér rassinn, því hann hafði í bamslegu sakleysi sínu orðið fyrir áhrifum af grínist- um. Það skyldi eftir sig ör sem aldrei gróa. Allt hefúr legið niður á við eftir áhættuhegðun hins saklausa bams sem Svarthöfði var. Æskan kom eins og orsök á undan afleiðingunni: kvalafúllum fullorðinsárum. En gagnárás Jiinna þunglyndu, ófyndnu og áhyggjufullu er hafin. Vopn okkar er kvíðaröskunin. Við getum sagt að grínistamir séu hættulegir, því börn gætu hegðað sér eins og þeir. Þau gætu stórskað- að sig og sýnt ómælda áhættuhegð- un ef þeir horfa á húmoristana. Þau gætu berað sig, dottið niður stiga eða hlaupið á hurðir í hermileik óvitans. Ahyggjur okkar smitast út um samfélagið eins og klamydía kynóðs heljarmennis. Enginn skal hlæja lengur, því ef fólk lyftir munn- vikunum þá er það að undirrita ör- kuml barnanna sinna. Svaithöföi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.