Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Blaðsíða 11
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 11
Örn Sigurðsson
Segir að brottnám hraðahindrana eigi
eftirað vega að öryggi vegfaranda.
Eldri konur
barðartil
bana
Fertugur karlmaður
var í gær handtekinn í
Texas í Bandaríkjunum,
vegna gruns um að hafa
myrt tvær eldri konur og
ráðist á þá þriðju. Lík
kvennanna tveggja fund-
ust í vikunni, hvor á sínu
heimili, og hafði þeim
verið troðið inn í skápa
heima hjá sér. Konan
sem ráðist var á og lifði
gat borið kennsl á árás-
armanninn. Hann hefur
ekki verið tengdur við
morð á þriðju konunni
sem fannst á mánudag-
inn Iátin í skáp heima
hjá sér eftir hafa verið
barin til óbóta.
Stríðið kostar
18 billjónir
Kostnaður Bandaríkj-
anna vegna stríðsreksturs
og uppbyggingastarfs í
Afganistan og írak steftiir
nú í að ná rúmlega 18,6
billjónum íslenskra króna
(18.600.000.000.000). Þess-
ari tölu var náð eftir að
báðar deildir Bandarikja-
þings samþykktu aukin
fjárframlög, upp á fimm
billjónir, til þessa mála-
flokks. Enn er þó mismunur
á áherslum deildanna hvort
meirihluti peninganna eigi
að renna tQ hersins eða í
uppbyggingarstarf. George
W. Bush, forsetí Bandaríkj-
anna, hefur hvatt deildirnar
til að leysa deilumál sín.
Vinsamlega athugið að ekki er hægt að ganga út frá því vísu að
verslanir hafi allar þessar tegundir af skóm í boöi.
Þú færð ECCO skó í öllum helstu skóverslunum landsins.
Kýlds mann á
Góða dátanum
Maður á Akureyri hefur
verið dæmdur í fangelsi fyr-
ir að kýla annan mann tví-
vegis í andlitið þar sem þeir
voru staddir á veitingahús-
inu Góða dátanum. Árás-
armaðurinn játaði verknað-
inn en sagðist hafa slegið í
neyðarvörn. Fórnarlambið
hlaut áverka á nefi. Maður-
inn var á árunum 1995 til
2000 dæmdur sex sinnum
fyrir brot á hegningarlögum
og umferðarlögum. Að
þessu sinni fékk hann
tveggja mánaða fangelsis-
dóm, skilorðsbundinn til
þriggja ára.
Sigurjón verði
morgunhani
Talstöðvar
Illugi Jökulsson
útvarpsstjóri hygg-
ur nú á uppstokkan-
ir á Talstöðinni.
Þannig flytur Jj
hann hinn gam-
alreynda Sigurð
G. Tómasson
frá því að vera
við hanagal á
tímann milli 10 og
12. Samhliða þessum breyt-
ingum tekur Fréttablaðið,
undir forystu hauksins Sig-
urjóns M. Egilssonar, við
tíma Sigurðar frá klukkan
sjö að morgni með frétta-
pakka að hætti hússins.
Höfuðborgarsamtökin gagnrýna aðgerðir Strætó bs.
Hraðahindranir fjarlægðar úr íbúahverfum
Þann 24. ágúst síðastíiðinn sam-
þykkti Samgöngunefnd Reykjavíkur
nýtt leiðakerfi sem í felst að fjarlægja
þarf 35-40 hraðahindranir í Breið-
holti, Seláshverfi og Grafarvogs-
hverfl.
„Það hefur sýnt sig og sannað að
engar aðrar ráðstafanir koma í veg
fyrir hraðakstur en hraðahindranir.
Þetta býður bara upp á að fólk auki
hraðann á svæðum þar sem há-
markshraði er 30 kflómetrar," segir
Örn Sigurðsson arkitekt sem er í for-
svari fýrir Höfuðborgarsamtökin.
Hann leggur áherslu á að á þessu
svæði sem þessar hraðahindranir
verða fjarlægðar ganga þúsundir
bama til skóla á degi hverjum.
Stjórn Strætó sagði í vikunni Höfuð-
borgarsamtökin fara með rangt mál
þegar þau fullyrtu að veruleg óvissa
ríkti um hugsanleg áhrif nýs leiðar-
kerfis. Örn segir þó þessa óvissu vera
fullkomlega á rökum reist.
„Þrátt fyrir að strætóbílstjórar
vilji losna við hraðahindranirnar
vegna hættu á bakmeiðslum þegar
keyrt er yfir þær þá er hættan á
aukningu á slysum enn meiri því
það eru ekki bara strætísvagnarnir
sem munu auka hraðann heldur all-
ir aðrir bílar líka. Sú hætta vegur
þyngra en hættan á bakhnykk bíl-
stjöranna," segir Örn. Hann bendir á
að 90% slysa sem rakin eru til stræt-
isvagna gerast þegar fólk er á leið-
inni úr eða í strætó en ekki í strætís-
vagninum sjálfum.
RÉTTUR STUÐNINGUR VIÐ ILINA I
GOTT GRIP í MILLISÓLA ■
«-■ GOTT OG STDÐUGT
RÉTTUR STUÐNINGUR VIÐ ILINA
PU
S/ATNSPÉTT
GORE-TEX®
MJÚKT hábæca leður
SEM HLUIR AÐ
■ 6-PUNKTA MÚTSTAÐA
FYRIR FRÁSRA SVEIFLU
ALLIR HELSTU GOLFSPILARAR LANDSINS NOTA ECCO
HERRAR
Nr. 39784
Stærðir: 40 - 47
Nr. 38334
Stæröir:40 - 47
Nr. 38324
Stærðir: 40 - 47
Nr.39264
Stærðir: 40 - 47
Litir: svart/hvítt
Stærðir: 40 - 47
Litir: svart/hvítt
4$
HERRAR
Nr. 39124
Stærðir: 40 - 47
Nr. 39124
Stærðir: 40 - 47
Nr. 39224
Stæröir: 40 - 47
Litir: svart/hvítt
DDMUR
Nr. 39543
Stærðir: 35 - 42
Nr. 39543
Stærðir: 35 - 42
' ÍÉÍÍS
DGMUR
Stærðir: 35 - 42
Litir: svart/hvítt
Nr. 39883
Stærðir: 35 - 42
Litir: svart/hvítt/ljósbrúnt
Nr. 39883
Stærðir: 35 - 42
Litir: svart/hvítt/ljósbrúnt
Nr. 39953
Stærðir: 35 - 42
Nr. 39953
Stæröir: 35 - 42
Birgir Leifur
Ólðf María
Magnús Lárusson
Vignir Andersen
Sigurður Hafsteinsson
Björgvin Sigurbergsson
Eyjólfur Kristjánsson
5D BOLTAR FRITT!
ecco-;
%
t
i
ALLIR ERU VELKOMNIR I BASA
ECCOES OF THE WORLD
ecco
www.ecco.com
- Með fyrirvara um |