Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005
Helgarblað TfV
Aintj/'tiuifcfchtna
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir „Ég mála mig
ekki mikið og myndi I rauninni alveg láta sjá
mig maskaralausa en ætli ég myndi ekki skella
honum á mig um leið og ég hefði tíma."
Gloss frá Body Shop
„Þetta er nettur bleikur gloss
sem ég nota á varirnar ef ég set
eitthvað á þær en ég er ekki vön að
nota mikið á varirnar."
Maskari frá Yves Saint
Laurent
„Þessi maskari lengir og þykkir
og ég nota hann daglega. Ég mála
mig ekki
mikið og«
myndi í
rauninni alveg láta sjá mig mask-
aralausa en ætli ég myndi ekki
skella honum á mig um leið og ég
hefði líma."
Gullpenninn frá Yves Saint
Laurent
„Ég nota þennan hyljara mjög
mikið enda er hægt að nota hann
úti um allt, fyrir ofan augun og alls
staðar."
Terra Cotta-púður
„Ég nota þetta sólarpúður yfir-
leitt á hverjum
degi í staðinn
fyrir að
nota
venjulegt
púður."
Gloss frá Body
Shop
Ég held að þetta
flokkist undir gloss
en ég nota þetta á
kinnarnar til að j
fríska aðeins upp á -
mig. Ég nota þetta á
hverjum degi en liturinn er voða-
lega eðlilegur."
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir er nýkjörin Ungfrú Reykjavfk. Unnur Birna stundar
nám f mannfræöi viö Háskóla Islands. „Mér Ifkar mjög vei f náminu og valdi
mér ööruvfsi og skemmtileg námskeið núna eftir áramót og ætla að geyma
þetta leiðinlega," segir Unnur Birna hlæjandi en hún útskrifaðist úr Mennta-
skólanum vlð Sund sfðasta vor. „Næst á dagskrá er að undirbúa mig fyrir stóru
keppnlna en keppnin um Ungfrú fsland fer fram eftir ca. mánuð." Unnur Birna
verður 21 árs á þessu ári. Hún segist ekki mála slg mikið hversdags og að hún
hafi ekki byrjað snemma að mála sig. „Ætli maður hafi ekki byrjað að fikta við
þetta f 9. eða 10. bekk."
Glæsileg Sigrun
Bender kynntist trim-
formi þegar hun æfði
fyrir keppnina Ungfru
Reykjavik og hefur
ekki stoppað siðan.
■
„Trimformið gerir herslumun-
inn," segir Sigrún Bender, fyrrver-
andi fegurðardrottning. Sigrún hef-
ur stundað trimform síðan hún
keppti í Ungfrú Reykjavík þar sem
hún stóð uppi sem sigurvegari í
fyrra. Hún segir trimformið hafa
hjálpað sér að komast í form og ætl-
ar sér ekki að hætta því þrátt fyrir að
vera hætt að keppa f fegurðarsam-
keppnum.
Ekki bara grenningarlausn
„Námið tekur mestallan tíma
minn núna en ég ætla að reyna að
halda mér í formi áffam. Veðrið er
líka að verða svo gott að maður fer
að fara meira út að hjóla og á línu-
skauta. Trimformið styrkir húðina
og hjálpar manni að ná þessu litla
sem maður er alltaf að berjast við í
rækthmi og allar konur þekkja.
Þetta tekur vel á og ég er oft með
harðsperrur eftir tímann," segir
Sigrún og bætir við að hún viti um
margar konur sem hafi einungis
breytt matarræðinu og stundað
trimform sem hafi umbreyst í vext-
inum. „Það er náttúrulega best að
hreyfa sig með þessu, drekka mikið
vatn og borða hollt. En þótt maður
sé ekki duglegur að mæta í ræktina
ber trimformið árangur. Þetta er
líka svo gott fyrir vöðvabólgu og
grindarbotninn, þetta er ekki bara
grenningarlausn heldur alhliða
þjálfun. Húðin á oft erfitt með að
fylgja þegar maður hefúr æft mikið
og trimformið örvar hana."
Líst vel á arftakann
Sigrún segir að allar stelpumar
sem hafi keppt með henni í fegurð-
arsamkeppninni hafi stundað trim-
form. „Ég mæli hiklaust með þessu
enda er Gunna hjá Trimformi Berg-
lindar svo frábær. Það er ekki að-
eins gott fyrir líkamann að kíkja til
hennar heldur líka sálina því hún er
eins og sálfræðingurinn manns,"
segir Sigrún hlæjandi.
Sigrún krýndi arftaka sinn um
síðustu helgi þegar Unnur Bima
Vilhjálmsdóttir var kjörin ungfrú
Reykjavík. „Mér líst alveg ljómandi
vel á hana og efast ekki um að þessi
stelpa eigi eftir að vera frábær full-
trúi Reykjavíkur og svo er hún nátt-
úrulega með þetta í genunum."
indianaSdv.Ís
Auður I. Ottesen smiður og garðyrkjufræðingur gefur út blaðið Sumarhúsið og garðurinn með eiginmanni
sínum. Auður er einnig forsprakki áýningarinnar Sumarið 2005 sem haldin var í Fífunni um síðustu helgi.
Lá beint við að starfa sjálfstætt
„Við erum búin að vinna saman
í átta ár,“ segir Auður I. Ottesen en
hún og eiginmaður hennar Páll
Pétursson gefa út blaðið Sumar-
húsið og garðurinn. Auður og Páll
héldu auk þess sýninguna Sumarið
2005 í Fífunni um síðustu helgi en
þetta er fjórða árið í röð sem þau
standa fýrir þessari sýningu.
Auður er garðyrkjuffæðingur og
smiður og er frá Hveragerði en Páll
er frá Vík í Mýrdal. Þar var Páll með
blaðið Sumarhúsið en eftir að þau
kynntust stofnuðu þau Rit og rækt.
„Ég fór síðar að gera rannsókn um
gróður við sjávarsíðuna og því
bjuggum við til blað sem hét Við
ræktum. Þessi skýrsla sem ég hafði
unnið að var mjög viðamikil og ég
vildi ekki að hún myndi enda uppi í
hillu og því byrjuðum við að gefa út
þetta rit.“
Auður segir það hafa legið beint
við að starfa sjálfstætt en hún var
einnig sinn eigin herra þegar hún
einbeitti sér að smíðunum þar sem
hún smíðaði leikföng og húsgögn
fýrir börn. „Þetta bara gerðist en
maður hefur alveg þurft að hafa
fyrir þessu öllu saman. Árið 2000
sameinuðum við svo blöðin og
fýrsta blaðið af Sumarhúsinu og
garðinum kom út.“
Auður viðurkennir að sýningar
af þessu tagi séu afar stór batterí.
Þau hjónin séu með hugann við
þetta allt árið en í október séu þau
fjögur sem eru í fullri vinnu við
sýninguna. „Við höldum hugar-
flugsfundi, köllum til fagmenn og
hugmyndasmiði og sjáum hvað við
getum gert betur. Eftir að hafa
haldið fjórar sýningar erum við
orðin sjóaðri í þessu en þegar sýn-
ingunni líkur ár hvert er maður
mjög þreyttur en svo tekur bara
næsta verkefni við. Maður fer ekk-
ert á heilsuhæli þótt mann langi til
þess," segir hún brosandi og bætir
við nú séu þau að gefa út bókina
Garðurinn allt árið. „Það er ekkert
verið að hangsa. En sem betur fer
erum við með ffábært fólk með
okkur í þessu sem skiptir öllu máli.
Börnin okkar og fleiri sem hafa ver-
ið með frá upphafi gera þessa
vinnu svo miklu auðveldari. Það
skiþtir öllu máli að vera með gott
fólk og þetta eru æðislegir krakk-
ar.“ indiana@dv.is
Auður I. Ottesen „Þaðerekkert
verið að hangsa. En sem betur fer
erum við með frábært fólk með
okkur í þessu sem skiptir öllu máli