Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Side 8
8 LAUGARDAGUR 23. APRlL 2005
Fréttir DV
Síminn með
nýja lausn
Síminn hefur sett á
markað nýja lausn, Við-
skiptamiðju. Viðskiptamiðj-
an er virðisaukandi þjón-
usta ofan á IP-net Símans.
Lausnin hentar sérstaklega
þeim fyrirtækjum sem þurfa
að tengjast öðrum fyrirtækj-
um, stórum sem smáum í
rafrænum viðskiptum. Við-
skiptamiðja gerir fyrirtækj-
um kleift að senda við-
skiptaskjöl á milli viðskipta-
kerfa með einföldum, ör-
uggum og áreiðanlegum
hætti og án handvirkrar
skráningar á hverjum stað.
Algengt er að stærri fyrir-
tæki hafi byggt upp lausnir
sem henta þeirra þörfum en
til þess að geta tengst minni
fyrirtækjum þurfa þeir lausn
sem skilar þeim hámarksár-
angri.
Rætt um
Hitler og Che
Sagnfræðingafélag ís-
lands boðar til fundar um
tvær kvikmyndir
sem sýndar hafa
verið á alþjóðlegu
kvikmyndahátíð-
inni í Reykjavík að
undanförnu: Der
Untergang sem
fjallar um síðustu
daga Hitlers og liðsmanna
hans í Berlín 1945 og Diari-
os de motorcicleta sem
greinir frá ferðaiagi hins
unga Emestos Che Guevara
og vinar hans um Suður-
Ameriku árið 1952. Báðar
myndimar hafa hlotið mik-
ið lof en um leið hefur verið
spurt hvort þær gefi
raunsanna mynd af þeim
einstaklingum og atburð-
um sem fjallað er'
um.Fundurinn verður í
Norræna húsinu, þriðju-
daginn 26. apríl kl. 12:00-
13:15.
Ódýrlyfí
Rimunum
Mikill munur var á
hæsta og lægsta verði
nokkurra lyfseðilsskyldra
lyfja sem verðlagseftirlit
ASÍ kannaði verð á í apó-
tekum á höfuðborgar-
svæðinu sl. miðvikudag.
Rimaapótek í Grafarvogi
var í öUum tilvikum með
lægsta verðið á þeim
lyijum sem skoðuð vom.
Verðkannanir á lyfseðils-
skyldum iyfjum em unn-
ar í samráði við Land-
læknisembættið og
framkvæmdar þannig að
lagðir em fram lyfseðlar í
apótekum.
Óráösía í framkvæmdastjóramálum Sambands garðyrkjubænda var ástæða fram-
boðs nýs stjórnarformanns. Friðrik Eysteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
sambandsins, segir málið snúast um peninga og aðgang að þeim.
Gariyrlqiduendur múlbundnlr
í iurmannskjöri sambands síns
Friðrik Eysteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sambands
garðyrkjubænda, var dreginn inn í framboðsræðu nýkjörins
stjórriarformanns sambandsins. Friðrik gagnrýnir kjörið, og seg-
ir eignatengsl gera formanninn vanhæfan
„Þetta snýst um aðgang Sölufé-
lagsins að fjármunum hjá Sambandi
garðyrkjubænda," segir Friðrik
Eysteinsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Sambands garðyrkju-
bænda. Meint vandræði í samskipt-
um við hann sem framkvæmda-
stjóra, og forvera hans Hauks Sig-
urðssonar, hafi verið að þeir væru að
bremsa á peninga til Sölufélagsins.
Hann telur að Sölufélag garðyrkju-
manna ehf. vilji ráða hliðhollan
framkvæmdastjóra sem hindri ekki
aðgang þeirra í fjármagn.
Vanhæfur
Friðrik segir
sambandið
ráða yfir um
25 milljóna
króna sjóð
til að styrkja
ýmis mál-
efni garð-
yrkju-
bænda, svo
sem vöru-
þróun. Sölu-
félag garð-
yrkjumanna
ehf. hafi mik-
ið sótt um
styrki £ sjóðinn
en verið tregt til
að afhenda rétt
gögn svo
vinna
mætti
Friðrik Eysteinsson Skildi við
Samband garðyrkjubænda í frið og
spekt en er nú dreginn inn í stjórn-
arformannskjör sambandsins.
sóknirnar. „Til dæmis sótti Sölufé-
lagið of seint um í ár og sendi inn
ófullnægjandi gögn. Þeir höfðu þó
umsóknina í gegn með hótunum við
fyrrverandi stjómarformann um að
honum yrði komið frá,“ upplýsir
Friðrik.
Friðrik er lítt hrifinn af kosninga-
baráttu starfsfólks Sölufélagsins fyr-
ir hönd Þórhalls. Hann segir garð-
yrkjubændur múlbundna gagnvart
Sölufélaginu. Þeir séu með einhliða
innleggssamninga við fyrirtækið og
það ákveði hvað mikið og
hvenær það kaupi.
Bændur séu í
raun beittir
félagsleg-
um og
efna-
hags-
legum
þrýst-
ingi.
Þá
bendir
Friðrik
líka á
augljósa
hags-
munaá-
rekstra.
„Þórhallur
er vanhæfur
í öllum mál-
efiium sem
snúa að Sölu-
félaginu
vegna eigna-
tengsla."
Vill ekki tjá sig
„Það er rétt að ég gagnrýndi
hvemig haldið hefur verið á ráðn-
ingum framkvæmdastjóra hjá sam-
bandinu," segir Þórhallur Bjarna-
son, nýkjörinn stjórnarformaður
Sambands garðyrkjubænda. Hann
segist hins vegar ekki tilbúinn í að tjá
opinberlega sig nánar um það í
hvetju sú gagnrýni sé falin. Hann er
hissa á ásökunum um að ástæðan sé
að fyrri framkvæmdastjórar hafi ekki
verið nógu liðlegir við að veita Sölu-
félaginu aðgang að fjármagni.
Þórhallur segist hafa farið fram
þar sem margir hafi hvatt sig til þess.
Hann taldi sig hafa stuðning til að ná
kjöri og hefði ekki farið fram hefði
hann þurft að strrnda kosningabar-
áttu. Hann neitar að hafa vitað um
að starfsmenn Sölufélagsins hafi
stundað kosningabaráttu fyrir sína
hönd. „Ég heyrði fyrst
af því eftir fund-
inn frá fyrrver-
andi for-
manni," full-
yrðir Þór-
hallur. Að-
spurður
hvort slíkt
atferii væri
réttlætan-
legt gagn-
vart bænd-
um vildi
Þórhallur
ekki tjá sig
frekar, honum
sé ekki kvmnugt
að slíkt hafi gerst
heldur.
„Þetta orkar ekki tví-
mælis. Ég skil ekki
hvernig á að útiíoka
bændur vegna eignar
ísölufélaginu."
Ekki bara einyrkjar
Varðandi ásakanir um hags-
munatengsl og vanhæfi segist Þór-
hallur ekki hafa gert upp hug sinn og
ný stjórn eigi eftir að ræða þau mál.
Hann segist hins vegar vita til þess
að til dæmis hafi Sighvatur Haf-
steinsson, fyrrverandi stjómarmað-
ur, vikið af fundi þegar hans eigin
umsóknir vom ræddar.
Honum finnst ekkert óeðlilegt
við það að sinna formannsstarfinu
þrátt fyrir verulega eign í Sölufélag-
inu með fjölskyldu sinni. Hann
sér ekki af hverju það ætti
að útiloka hann. „Þetta
orkar ekki tvímælis.
Ég skil ekki hvemig
á að útiloka bænd-
ur vegna eignar f
sölufélaginu," seg-
ir Þórhallur og
bendir á að þá
væm einungis ein-
yrkjar og smá-
bændur með lítinn
sem engan eignar-
hlut til greina. Sér
fyndist það ekki
f réttíátt.
Þórhallur Bjarnason Hefur ekki tfma í
þessa umræðu þar sem hann er að rúða
nýjan framkvæmdastjóra og vinna að raf-
mangssamningum fyrir garðyrkjubændur.
Sigurður G. Guðjónsson, Karl Garðarsson og Steinn Kári Ragnarsson stofna blað
Sjónvarpsmenn stofna dagblaðið „Blaðið'
Aðstandendur nýs blaðs, „Blaðs-
ins", hafa viðurkennt stofnun nýs
blaðs. „Það hefur alltaf verið mfn
regla að klára hlutina áður en greint
er frá þeim," segir Sigurður G. Guð-
jónsson stjórnarformaður fjölmiðla-
fyrirtækisins Ár og dagur sem hyggst
gefa út blaðið sem verður dreift frítt
á höfuðborgarsvæðinu.
Sigurður er fyrmm forstjóri
Norðurljósa og með honum í undir-
búningi hefur verið Karl Garðarsson
sem áður var fréttstjóri Stöðvar 2 og
svo Steinn Kári Ragnarsson fyrrver-
andi sjónvarpsstjóri Popp tíví. Frá
Hvað liggur á?
þessu var greint í DV fyrir tæpum
tveimur vikum en forsprakkarnir
ýmist neituðu að tjá sig eða vísuðu
því ranglega á bug að til stæði að
stofna blað.
Sigurður G. sagðist í samtali við
blaðið ekki hafa hugmynd um þetta.
Karl Garðarsson, sem hefur veg og
vanda að undirbúningnum, svaraði
með misvísandi hætti. Hann sagðist
hafa verið í blaðamennsku í tuttugu
ár og spurði á móti hvort það væri
ekki bara ágætur tími.
DV hafði heimildir fyrir því að hið
nýja fyrirtæki hefði keypt stelpu-
tímaritið Orðlaus sem kemm út
„I augnablikinu er ég að drffa mig að fara að mynda fyrir verkefni sem ég er að
vinna," segir Ólafur Freyr Númason hönnuður.„Þetta er sérstakt persónulegt
verkefni fyrir sjálfan mig þar sem ég var að hanna fatnað sem ég þarfað mynda á
módeium. Svo eru náttúrulega prófin að byrja í Háskólanum á Akureyri og mér
liggur auðvitað á að fara að undirbúa mig."
mánaðarlega. Hrefna Björk Sverris-
dóttir ein aðstandenda Orðlauss
sagði alltaf gaman þegar bærinn
færi að slúðra. „Ég hafiia þessu alfar-
ið." í gær barst hins vegar tilkynning
sem bar til baka fyrri svör aðstand-
endanna.
Aðspurður um hverjir bakhjarlar
útgáfunnar væru sagði Sigurður G. í
gær það enga risa á fjármálamark-
aði. „Bara venjulegir menn eins og
ég og Kalli. Engir risar. Mér er illa við
í þeim sögusögnum sem gengið
hafa um blaðið hefur fylgt sög
unni að hugmyndin sé að reka
samhliða sjónvarpsstöð.
Þessu hafiiar Sigurður
alfarið.
Til stendur að
fyrsta tölublaðið komi
út í maí og komi þá út
fimm daga vikunnar.
jakob&dv.is
Sigurður G. Guðjonsson
Hann segir bakhjarla útgáf-
unnar venjuíegt fóik eins og
sig og Kari Garðarsson.„Engir
risar. Mér er illa við risa.“
Karl Garðarsson Þegar DV
greindi fyrst frá tiiurð blaðsins
svaraði Karl út f höttog virðist
sem lögð hefur verið griðarieg
áhersia á að leynd hvildiyfir
undirbúningnum.