Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Page 20
20 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 Helgarblað BV Sjónin var atvinnutækið Halldór hefur náð undraverðum bata en um þessar mundir eru fimm ár frá því að þetta skelfilega slys átti sér stað og honum var ekki hugað líf. Hann saknar sjónarinnar þótt hann sé þakklátur fýíir að vera á lífi. „Maður getur ímyndað sér hvemig Beethoven hefur liðið þegar hann missti heymina. Það er nátt- úrulega skelfilegt fyrir myndlistar- mann að missa sjónina. Þetta er at- vinnutækið manns og öll mín skynj- un sem myndlistarmaður tengdist sjóninni," segir Halldór sem heldur áfram að mála þótt hann sjái nánast ekki neitt. „Mér h'ður þokkalega i dag. Ég er valtur og á svolitið erfitt með mál. Úthaldið er lítið. Ég get ekki unnið nema þrjá tíma á dag." Aldrei séð verkin sín betri Hann segir sköpunarþörfina aldrei hverfa þrátt fyrir allt. „Það er auðvelt að fara út í horn og segja aumingja ég, það er hins vegar mik- ilvægt að reyna að nýta það sem maður hefur. Ég hlýt að hafa lært eitthvað á öllum þessum tíma. Spurningin er hvers vegna maður málar yfir höfuð. Ekki gerir maður það til þess að verða ríkur af því, heldur er þetta einhver sköpunar- þörf sem er alltaf til staðar. Hún er ennþá rík þótt ég sé orðinn blindur. Ég hugsa málverkin út áður en ég geri þau og þau verða til út ffá „Maður getur ímynd- að sér hvernig Beet- hoven hefur liðið þeg- ar hann missti heyrn- ina. Það er náttúru- lega skelfilegt fyrir myndlistarmann að missa sjónina. Þetta er atvinnutækið manns og öll mín skynjun sem mynd- listarmaður tengdist sjóninhi/' ástríðunni við að skapa. Hvort sem það er ást til lífsins, ást til guðs eða ást til ljóssins. Það er allavega ein- hver kraftur sem hjálpar manni við þetta, ef það er til guð þá er það væntanlega hann.“ Halldór heldur fast í húmorinn og ljómar af lífsgleði og þrá. „Ég man héma í gamla daga þegar ég var að hengja upp myndlistarsýningu með félaga mínum sem var búsettur í Frakklandi. Þá sagði hann eitt skipti þegar hann sá einhverja mynd: „Þetta er það besta sem ég hef aldrei séð.“ Ég get svolítið heimfært þetta GITARINN EHF. www.gitarinn.is STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 552 2125 gitarinn@gitarinn.is Tilboð TfLBQÐ NR. 1 MAPEX TROMMUSETT MEÐ ÖLLU RÉHVER0 79.900 TILBOÐSVERÐ TILBOÐ NR. 2 ÞJÓÐLAGAGÍTAR KR. 14.900 POKI, ÓL, STILLITÆKI 0G GÍTARNEGLUR TILBQO RR. 3 KLASSISKUR GÍTAR KR. 10.900 P0KI, STILLITÆKI 0G GlTARNEGLUR Sgtf 'SMs^ TILBOÐNR. 4 RAGMAGNSGÍTARTILBOÐ KR. 22.900 RAFMAGNSG. MAGNARI, P0KI, ÓL, SNÚRA, NEGLUR 0G STILLITÆKI TILBQÐ NR. 5 BASSATILB0Ð -2,900 BASSI, MAGNARI, P0KI, ÓL, SNÚRA, STILLITÆKI, NEGLUR 0G STANDUR ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ '^S^irkir-érkirikirirkiriri!r¥rkikikikirir^rmk upp á mína tilfinningu eftir að ég missti sjónina. Æth ég hafi nokkurn tímann séð verkin mín betri?" Heimsækir börnin á Spáni Halldór hafði búið á Spáni í um 12 ár þegar þessi hræðilegi atburður átti sér stað. Hann átti þar spænska sambýliskonu og þrjú böm. Halldór heldur góðu sambandi við bömin sín ytra. Bamsmóðir hans er skiln- ingsrík og á hveiju sumri fer hann í tvo mánuði út og býr á heimili þeirra. .„Hún er komin með annan mann og ég fæ að sofa á milli," segir Halldór og hlær. „Sambandið við móðurina var eiginlega búið þegar þetta gerðist. Við eigum saman 12 ára tvíbura og sextán ára stúlku,“ segir Halldór og tekur firam myndir af börnunum sínum sem em honum augljóslega mjög kær. „Ég vona að hún sé hamingjusöm og hann sé góður við börnin. Það er það eina sem skiptir mig máli." Halldór á líka tvö börn á íslandi og eitt afa- barn. „Ég á fimm börn með þremur konum. Mað- ur varð að prófa þetta al- mennilega, það þýðir ekk- ert að vera að spara sig,“ segir hann og brosir. Halldór hafði lengi ætl- að sér að flytja heim til ís- lands áður en slysið átti sér stað. „Ég var eiginlega í frekar erfiðum aðstæð- um, ég gat varla flutt heim til fslands frá börn- unum mínum og bams- móðir mín vildi alls ekki fiytja hingað. Ég var kominn í mál sem ég vissi ekki hvernig ég átti að leysa. Ég sá fyrir mér að ég yrði áfram á Spáni við að gera veggmál- verk. Það er ekki óalgengt þama úti að ríka fólkið láti mála til dæmis englamyndir á loftin hjá sér þannig að það var ágætis peningur í því," segir Halldór. „Sambandið við móð- urina var eiginlega búið þegar þetta gerðist. Við eigum saman 12 ára tvíbura og sextán ára stúlku," Skrifar skáldsögu Þótt Halldór sé blindur er hann með sjónvarp í íbúð sinni og reynir að njóta þess sem það býður upp á með þeirri skynjun sem eftir er. „Ég sé nú lítið á þetta en það er góður hljómur í þessu og ég hlusta á sjón- varpið. Ég fer stundum í bíó og þá aðallega til þess að hlusta. Ég þakka fyrir að hafa góða tungumálakunn- áttu, enska, spænska og íslenska em tungumál sem em mér öll jafii töm," segir Halldór sem gerir sér margt annað en að mála til að fá útrás fyrir sköpunargleðina en honum þykir gaman að skrifa. „Ég hef fengið tölvukennslu en þyrfti að fá meiri aðstoð. Ég er að skrifa skáldsögu sem er byggð á æskuminningum mínum. Ég get ekki klárað hana fyrr en ég hef náð tökum á búnaðinum sem ég þarf til þess. Ég átti að fá kennslu en svo kom í ljós að það var ekki til fjármagn til þess. Ég þarf að fá meiri kennslu og tækifæri til að læra meira til þess að geta nýtt mér almenn hjálpartæki blindra,“ segir Halldór. Hann hefúr þó náð talsverðum árangri með því að fikra sig áfram upp á eigin spýtur en væri alveg til í að læra blindraletur og ann- að sem gæti auðveldað honum lífið myrkrinu. Með börnunum á Spáni Halldór var I tvo mdnuöi á Spdni slöasta sumar þar sem hann varmeö börnum sín- um, Indíönu Rós lödra og tvíburunum Emil- lu Leu og Hjálmari Ell sem eru 12 ára. Fallegu tvíburarnir Hjálmar Ell og Emilla Lea. Hagkaup kringla, Skeifan, Smáralind, spöngin og Akureyri, Lyfja og Lyf og heilsa, Perlusól Egilsstaðir, Apótekið vestmannaeyjum, Siglufjarðar Apótek, Silfurtorg Isafirði og Sauðarkróks Apótek,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.