Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Síða 21
BV Helgarblað LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 27 handrukkarar Tveir handrukkarar ganga lausir á Akureyri. Þeir heita Þor- steinn Haflrerg og Daníel Christensen. Um síöustu helgi tóku þeir 17 ára dreng, óku nieö hann út fyrir bæinn, létu hann afklæöast og skutu hann 11 skotum úr gasskamm- bvssu. Báðir voru þeir handteknir og \riö yfirheyrslur ját- uðu þeir brot sín. Á miðvikudaginn voru þeir þó báöir lausir og héldu áfram uppteknum hætti. Hótuðu mönn- um, stæröu sig af ofbeldisverkum og buðu dóp til sölu. Blaðamaður gaf sig á tal við Þorstein og Davíð á miðviku- dagskvöld. Þá voru þeir báðir lausir úr haldi og rúntuðu um miðbæ Akureyrar á bláum Subaro Impreza. Drengirnir lýstu ofbeldisverkum sínum í bílnum. Sögðust ætla að stúta Davíð Inga Guðjónssyni, fórn- arlambi síðustu helgar, þegar hann kæmi af spítala og sýndu enga iðrun; sögðu Davíð Inga bara „djöfulsins aumingja“ sem hefði átt þetta skilið. „Hann hleypur beint til lögg- unnar eftir að við hræðum hann aðeins. Ég hlakka til að sjá hann aftur í bænum," sagði Þorsteinn í bílnum. Hræðilegt atvik Meðan drengimir tveir ganga lausir býr móðir fómar- lambsins við stöðugan ótta á heimili sínu. Fyrst eftir árásina flúði hún heimili sitt. Fréttirnar í gær um að drengirnir tveir væm báðir lausir og héldu upp- teknum hætti komu illa við hana. „Þetta er hræðilegt," segir móðirin sem vildi þó sem minnst tjá sig um málið af ótta við hefndaraðgerðir. Hún segir ofbeldi á Akureyri færast í auk- ana. Ástandið verði sífellt verra og fréttir af handrukkunum tengdum dópviðskiptmn heyr- ist æ oftar. Flúði eigin heimili „Maður hlýtur að spyrja sig hvort allt sé í lagi þegar maður neyðist til að flýja út af eigin heimili," segir móðirin. „Nú er svo búið að sleppa báðum mönnunum og maður upplifir sig varnarlausa." Auk Davíðs Inga á móðirin tvö yngri böm. Hún segir at- burði síðustu daga koma niður á þeim. Þau séu saklaus fórnar- lömb. „Þetta hefúr nánast rú- stað fjölskyldunni. Það verður bara eitthvað að gerast," segir móðirin. Gróft ofbeldi Það var um síðustu hélgi sem Davíð Ingi sonur hennar var tekinn höndum af Þorsteini Hafberg og Dam'el Christensen. Þeir fóm með hann út fyrir bæ- inn, létu hann afklæðast og velta sér upp úr snjónum. Eftir að hafa hlegið að honum tóku þeir upp gasskammbyssu og skutu hann 11 skotum; jámkirl- um sem bmtu í honum bein og þurfti skurðaðgerð til að ná kúl- unum úr honum. Meðferð þeirra á Davíð Inga var bæði grimmileg og ómann- úðleg. 17 ára piltur, lítilmagni, var niðurlægður og beittur grófu ofbeldi. Flúði af spítala Lögreglan fann Davíð þar sem hann lá í blóði sínu. Hann Framhaldá næstuopnu ^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.