Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Blaðsíða 23
r
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 23
shrottar ganga lausir
Hæstiréttur íjallar nú um mál handrukkarans Annþórs Kristjáns Karlssonar. Hann var dæmdur
fyrir að berja mann sem lá mjaðmagrindarbrotinn með stálröri. Áfrýjun Annþórs byggir á því að
fórnarlambið hafi breytt vitnisburði sínum skyndilega, bar fyrir dómi að hafa dottið niður stiga og
kannaðist ekki við að hafa orðið fyrir árás.
Handrukkari enn laus tveimur arum
eftir hrottafenuna árás
Annþór Kristján Karlsson, dæmdur handrukkari, gengur enn laus
meira en tveimur árum eftir að hann ruddist inn tíl Birgis Rúnars Bene-
diktssonar, vopnaður stálröri, og barði hann til óbóta. Birgir lá mjaðma-
grindarbrotinn í rúmi sínu og gat enga björg sér veitt. Hönd hans möl-
brotnaði þegar hann bar hana fyrb höfuð sér.
Annþór hefúr enn ekki setið inni
vegna þessarar hrottalegu árásar,
fyrir utan tuttugu og einn dag í.
gæsluvarðhaldi, þrátt fyrir að hafa
verið dæmdur í tveggja og hálfs árs
fangelsi fyrir árásina. Annþór áfrýj-
aði og er því laus á meðan Hæstí-
réttur hefur málið til umfjöllunar.
Breytti vitnisburði af ótta við
hefnd
Grundvöllur áfiýjunar Annþórs
er byggður á því að Birgir hafi dreg-
ið framburð sinn um árásina til baka
íhéraðsdómi. Sagðist þá hafa dottíð
niður stíga. Dómara þóttí þessi nýi
vitnisburður fjarstæðukenndur og
ótrúverðugur og dæmdi Annþór og
samverkamann hans, Ólaf Valtý
Rögnvaldsson, til fangelsisvistar.
Þetta er þó ekki í fyrsta skiptí sem
eitt fómarlamba Annþórs
breytir framburði sínum
fyrir dómi. Fyrir nokkrum
árum mættu nokkrir
félagar hans í
dómssal Héraðsdóms Vestfjaröa þar
sem fómarlamb Annþórs áttí að
bera vitni.
Nærvera mannanna virtíst vera
nóg til að fómarlambið breytti fram-
burði
Annþór Kristján
Karlsson handrukkari
Hæstiréttur réttaðiyfir
Annþóri i gær.
sínum verulega og fría Annþór frá
málinu.
„Hótuðu að drepa mig"
Aðeins tveimur dögum fyrir rétt-
arhöldin kom Birgir Rúnar í viðtal í
DV, sagðist vera búinn að fá nóg af
hótunum og ofbeldi. Hann vildi
segja sannleikann.
„Ég hef aldrei orðið eins hrædd-
ur á minni litlu ævi og þegar ég sá
þessi tröll koma inn," sagði Birgir
Rúnar Benediktsson um morguninn
þegar Annþór Kristján Karlsson og
Ólafur Valtýr komu inn í herbergi
hans. Hann sagðist hafa heyrt þá
sparka upp hurðinni og svo hafi
dunið á honum hótanir um ofbeldi.
„Þeir sögðu eitthvað um að ég
yrði drepinn ef ég borgaði ekld 500
þúsund fyrir fösmdag. Kærastan
mín stóð bara öskrandi og grátandi
á meðan. Þá kastaði Óli Valtýr þess-
um keramikdisk í hausinn á mér og
ég hoppaði af stað á einni löpp og
ætlaði út en komst bara
upp í rúm. Tveir þeirra
. vom með kylfur og ég
I man að Anni var með
1 svarta litla kylfu en ég
man ekki svo vel
eftír þessu.
Ég var allur í blóði, höndin, andlitið
og allt, og þegar ég horfði á höndina
mína stóð beinið út í loftíð. Óli Val-
týr sótti síðan handklæði til að ég
gætí þurrkað mér. Ég fór strax í að-
gerð þar sem ég var saumaður sam-
an,“ sagði Birgir Rúnar.
Hæstaréttar að meta trúverð-
ugleika
Þessi framburður í viðtalinu í DV
er samhljóða þeim framburði sem
hafður er eftir Birgi Rúnari í fyrstu
lögregluskýrslum. En þegar kom að
sjálfum réttarhöldunum hafði eitt-
hvað breyst. Birgir Rúnar haltraði
inn í réttarsalinn, settíst í vitnasætið
og áður en dómarinn hafði sagt
fyrsta orðið sagði Birgir Rúnar. „Eg
datt bara niður stíga."
Karl Georg Sigurbjömsson er
lögfræðingur Annþórs sem kærður
„Þegar ég horfði á
höndina mína stóð
beinið út í loftið."
hefur verið allt að 90 sinnum til lög-
reglu og dæmdur átta sinnum fyrir
ýmis brot. Aðspurður hvort það væri
fordæmisgefandi ef Hæstiréttur
tæki „sögu" Birgis gilda þar sem
augljóst væri að hún væri fengin
fram með hótunum um ofbeldi
sagði Karl að það væri Hæstaréttar
að meta hvort hin nýja frásögn væri
ótrúverðug eða ekki. „Ég get ekki
svarað því," segir Karl.
Símon Sigvalda-
son, dómari við,
Héraðsdóm
Reykjavíkur, felldi.
þungan dóm yfir
Annþóri, eða tvö og'
hálft ár. Hvort hann
muni standa mun
Hæstiréttur
þurfa að,
dæma um.
andri@dv.is j
Karl Georg Sigurbjörnsson,
lögfræðingur Annþórs
Er verjandi eins frægasta glæpamanns
landsins.
Lögreglan ætlar ekki að yfirheyra Fazmo-
klikuna fyrr en eftir helgi
Fazmo-klíkan á
djammið um helgina
Dyraverðir reknir af Hverfisbarnum
Hallgrímur Andri
Ingvarsson Lögreglan
hefur enn ekkiyfirheyrt
| hann.
Þrátt fyrir þijár kær-
ur, íjölda vitna og það
sem næstum má kalla
játningu ofbeldismann-
anna sjálfra á heimasíðu
þeirra, hefur lögreglan
enn ekki rætt við neinn
meðlim Fazmo-klík-
unnar um ofbeldis-
verkin við Hverfis-
barinn um síðustu
helgi.
Fjórir meðlimir
klikunnar em grun-
aðir um árásimar en lögregla seg-
ist ekki ætla að ræða við neinn
þeirra fyrr en eftir helgi. Lögreglan
segist enn vera að ræða við vitni og
vilja ljúka þeirri vinnu áður en rætt
er við þá grunuðu.
Því liggur fyrir að meira en vika
mrm h'ða frá árásunum sjálfum og
þar til nokkur þeirra sem grunaðir
em um þær verður kallaður til
skýrslutöku. Fjöldinn allur af vitn-
Hörður Jóhannesson yfir-
lögregluþjónn Segirekki
sjdlfgefið að setja svona
menn I gæsluvarðhald.
um hefur staðfest frá-
sögn DV af atburðum
síðusm helgar. Það
hafa Fazmo-liðar einn-
ig sjálfir gert með skrif-
um sfrmm á heimasíðu
sinni. Þar var til dæmis
ítarleg lýsing á bar-
smíðum hópsins á
manni en sá var sak-
aður um að hafa
kastað glasi í átt að
einni af grúppíum
sem þeir fullyrða að
fylgi hópnum. Þetta var á föstu-
degi en kvöldið eftír var Fazmo-
hópurinn aftur kominn á stjá. Þeg-
ar þeir komu aðvífandi að röðinni
við Hverfisbarinn það kvöld fór
mikið fyrir þeim. Vitni segja að
fólki hafi verið ýtt til hliðar og hóp-
urinn hafi komið sér fyrir fremst í
svokallaðri V.I.P.-röð. Einum gesta
varð það á að biðja mennina að
sýna kurteisi og uppskar að
launum hnefahögg og rotaðist
hann samstundis. Því næst hófu
þrír til fjórir menn að sparka í
hann þar sem hann lá.
Nökkvi Gunnarsson var í röð-
inni þegar þetta áttí sér stað. Hann
stökk á mann sem tók þátt í
árásinni í von um að skakka leik-
inn en var fljótt yffrbugaður af
Fazmo-mönnum. Honum voru
greidd allnokkur hnefahögg, skellt
í jörðina og var sparkað og stappað
einum tuttugu sinnum á höfði
hans.
Lýsing Fazmo-klrkunnar á at-
burðunum vom í hæðnislegum
tón: „Einhver meiddi sig í röðinni
á Hverfisbamum í gær" og einn
Fazmo-manna kvartaði yffr
eymslum í hnúum.
Eitt fórnarlamba sem DV ræddi
við á mánudag sagði að sig svim-
aði í hvert skipti sem hann stæði á
fætur - líklega afleiðing ítrekaðra
höfuðhögga. andri@dv.is
Eigandi Hverfisbarsins, Rósant
Freyr Birgisson, rak í vikunni þrjá
dyraverði skemmtistaðarins
vegna Fazmo-ofbeldisins sem átti
sér stað síðastliðin föstudags- og
laugardagskvöld. Vitni segja að
dyraverðir hafi
staðið aðgerðar- -------------—
lausir hjá á meðan
meðlimir Fazmo-
klíkunnar réðust á_____________
tvo menn sem
biðu í röð fyrir utan staðinn. Rós-
ant Freyr segir að Hverfisbarinn
hafi ailtaf kappkostað að tryggja
Hverfísbarinn í Reykjavík
Hérna börðu Fazmo-drengirnir
tvo menn til óbóta.
öryggi hinna fjöl-
mörgu gesta staðar-
ins. „Við leggjum áherslu á að allir
skemmtí sér vel á Hverfisbarn-
um,“ segir Rósant.
Myndabrengl í fyrri grein
Þau lelðlnlegu mistök urðu IDVI
gær að myndabrengl urðu með þeim
afleiðingum að röngu nafni var skeytt
við mynd affórnarlambi handrukkar-
anna, Davíð Inga Guðjónssyni. Móðir
Davíðs segir að þetta hafi komið illa
við fjölskylduna, enda hafí sonur
hennar verið fórnarlamb en ekki ger-
andi. DV biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
Það voru Þorsteinn Hafberg og
Daniel Christensen, nefndur Danni
danski, sem stóöu fyrir skotárásinni á
Davið Inga. Hins vegar var Danni
danski rangfeöraður i blaðinu i gær,
hann er eins og áður segir Christensen
en ekki Snorrason.
tVIBSTÚTUM
HOHIUM BARA
ÍÞEGAR HAN!
KEMUR ÚT
Davíð Ingi Guðjónsson Varfórnar-
lamb handrukkaranna Daníels Christen-
sen og Þorsteins Hafberg.