Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005
Helgarblað DV
Barnamorð-
ingiyfir-
heyrður
vegna 27 ára
ináls
Barnamorðing-
inn Robert i
Black hefur ver- V'4fe>
ið yfírheyrður MiíS
vegna hvarfs
Genette Tate
sem hvarffyrir
27 árum síðan.
Lík hennar hef-
ur aldrei fundist en Genette var 13
dra þegar hún hvarf. Black, sem er
58 ára, afplánar tífaldan lífstíðar-
dóm en hann er talinn einn versti
barnamorðingi Bretlands. Þrátt
fyrir að lögregluþjónar hafi tvisv-
ar yfírheyrt hann hefur hann ekki
sagt eitt einasta orð. Faðir
Genette hefur grátbeðið Black um
sannleikann.„Hún hefði orðið fer-
tug d þessu ári. Segðu okkur allt
sem þú veist."
Morð í
bama-
afmæiiá
McDonald’s
Hópur barna sem voru I afmæli á
veitingastaðnum McDonald's í
Bretlandi urðu vitni að morði i síð-
ustu viku.
Jackie Mars-
hall, 57 ára
starfsmaður á
veltinga-
staðnum, var
stungin til
bana og tví-
tugur maður
sem starfaði
á öðrum
McDonald's-stað hefur verið
ákærður fyrir morðið. Hann er tal-
inn hafa verið rekinn þaðan þar
sem hann var dónalegur við við-
skiptavini. Jackie hafði unnið á
staðnum 115 ár. Hún var fluttí
skyndi á sjúkrahús en lést fljót-
lega eftir komuna þangað.
Myndaði
undir pils
nemenda
Tæplega sextugur breskur tónlist-
arkennari hefur verið dæmdur í 9
mánaða fangelsi fyrir að taka
vídeómyndir upp undir pils nem-
enda sinna. Robert Gallacher
myndaði yfír þúsund kvennem-
endursína á 14 árum áður
en eiginkona
hanslétlög-
regluna vita.
Gallacher gaf
nemendum sin-
um reglulega að
drekka en átti við
klósettið svo þeir gátu ekki sturtað
niður. Hann hirti síðan þvagið i
merktum flöskum. Lögreglan segir
kennarann einnig hafa sett ban-
ana undir púða nemendanna og
að hann hafí fryst kramda ávext-
ina.„Gallacher var vel liðinn kenn-
ari en undir niðri átt hann í bar-
áttu. Hann sárvantar hjálp, “ sagði
verjandi pervertsins.
Jami Everett haföi engan grun um hversu heitt fyrrverandi eiginmaður hennar
hataði hana. Henni var því illa brugðið þegar lögreglan sagði henni að Jeff Spain
hefði borgað öðrum manni fyrir að drepa hana. Maðurinn sem átti að myrða Jami
bjargaði lífi hennar þrátt fyrir að hafa aldrei séð hana.
vmar sms
Hin myndarlega Jami Everett lá í
grunnri gröf, þakin sandi og mold.
Ljósa hárið hennar var klístrað af
blóði og hún var með sár eftir byssu-
kúlu í höfðinu. Eða svo virtist vera.
Ljósmyndin af henni var fölsuð.
Lögreglan hafði sviðsett dauða
hennar til að villa um fyrir eigin-
manni hennar. Jeff Spain var enginn
hálfviti og myndi krefjast sönnunar-
gagns áður en hann borgaði mann-
inum sem hann réði til að myrða
Jami. Þá yrði hann loksins laus við
hana, laus við að borga henni með-
lagið og myndi sjálfur fá forræðið
yfír tveggja ára dóttur þeirra.
Sakamál
Fékk fiðrinq eftir
sjö ára samband
Jami og Jeff kynntist í kirkju tíu
árum áður. Þau voru á leiðinni í
sama háskólann og urðu fljótt ást-
fangin og giftu sig áður en þau klár-
uðu skólann. Þau virtust passa vel
saman. Spain var ríkur, vel liðinn
lögfræðingur sem gekk í sérhönnuð-
um jakkafötum og græddi á tá og
fingri við að verja eiturlyfjasala. Jami
sá um fallega heimilið þeirra í
Odessa í Texas og hélt vextinum
með því að fara í ræktina á hverjum
degi auk þess sem hún starfaði í
hlutastarfi á skrifstofu bæjarstjór-
ans. Þegar hún varð ófrísk árið 1994
sagði Spain vinum sínum að hann
væri í skýjunum. En í rauninni var
það lygi. Eftir sjö ára samband fór
hann að leita á önnur mið. Hann fór
að halda framhjá Jami en þegar hún
var komin fimm mánuði á leið
komst hún að framhjáhaldinu, flutti
út og til foreldra sinna. Hún sótti um
skilnað stuttu eftir að Sarah fæddist.
Bað vin sinn að drepa fyrr-
verandi konuna sína
Hjónakornin fyrrverandi rifust
stanslaust um forræðið yfir Söruh,
heimsóknartíma og meðlagið. Spain
hafði nýlega kynnst spæjaranum
Mike Marinelli. Eitt skiptið þegar
þeir voru úti á lífinu spurði Spain
Mike hvort hann væri til í að myrða
Jami fýrir sig. í fyrstu hélt Mike að
um grfn væri að ræða. „Ég hélt að
hatrið og bjórinn væru við stjórn,"
sagði Mike. „Ég skildi ekki hvernig
þessi maður, sem áleit mig vera vin,
héldi að ég gæti gert slfkt og annað
eins. En á sama tíma var ég feginn
þar sem ég gat þá komið í veg fýrir
þetta voðaverk. Ég var alveg viss um
að Jami yrði drepin ef ég myndi ekk-
ert gera í málunum. Hann hefði leit-
að til einhvers annars."
Átti að drepa systur
hennar líka
Mike Marinelli var fyrrverandi
lögregluþjónn og hafði engan áhuga
á að snúa sér að afbrotum og glæp-
um. Hann samþykkti hins vegar að
myrða Jami fyrir 15 þúsund dollara
en fór síðan beint til lögreglunnar.
Eftir að lögreglan hafði falið upp-
tökutæki á Mike var hann aftur
sendur til Spains til að skipuleggja
morðið. „Jeff teiknaði upp hús for-
eldra Jami fyrir mig. Hann sagði mér
að Jami svæfi í sama herbergi og 15
ára systir hennar og ef ég dræpi
hana þarna yrði ég að drepa systur
hennar líka.“
Spain tók fljódega eftir upptöku-
búnaðinum og varð fullur efasemda
en Mike tókst að sannfæra hann um
að tækið væri til þess að enginn gæti
hlerað samtal þeirra. Spain ákvað að
fljúga til Las Vegas til að halda upp á
morðið og redda sér fjarvistarsönn-
un í leiðinni. Lögreglumaðurinn
Robertsson sem var yfir málinu
hringdi á hótelið og bað hótelstjór-
ann að fylgjast með ferðum hans.
„Hann sagði mér að
Jami svæfi í sama her-
bergi og 15 ára systir
hennar og efég myndi
drepa hana þarna yrði
ég að drepa systur
hennar líka."
Eins og í kvikmynd
í ágúst 1996 lét lögreglan Jami vita
af ráðagerð fyrrverandi eiginmanns
hennar. Henni var vitanlega brugðið
en ákvað að taka þátt í að sviðsetja
dauða sinn. „Ég gat ekki trúað þessu
upp á Jeff í byrjun og harðneitaði í
fyrstu að taka þátt í þessu með lög-
reglunni. Ég skildi ekld af hverju þeir
gátu ekki bara handtekið hann. Þeir
sögðust ekki geta það fýrr en Jeff væri
viss um að ég væri dáin og hann héfði
greitt fyrir morðið. Annars væri ekki
hægt að sanna neitt á hann annað en
að hann hefði talað um að láta drepa
mig. Þetta var eins og í kvikmynd.
Þegar ég kom heim um kvöldið
spurði dóttir mín hvað ég hefði gert
um daginn. Ég gat ómögulega sagt
I Jami Everett „Ég gat ekki
I trúað þessu upp á Jeffl byrjun i
I og harðneitaði I fyrstu að taka I
I þátt I þessu með lögreglunni.
I Ég skiidi ekki afhverju þeir
I gátu ekki bara handtekið
I hann," sagði Jami en myndin
I var sviðsett aflögreglunni.
J
henni að ég hefði þóst vera dáin og
að pabbi hennar væri á leið í fang-
elsi.“
Vildi láta drepa viðskiptavin
Daginn eftir flaug Marinelli til
Las Vegas og hitti Spain. Lögreglan
hafði komið fyrir myndbandsupp-
tökuvél í herberginu. „Þegar Jeff
kom leitaði hann alls staðar í her-
berginu. Hann ætíaði ekki að láta
góma sig. Þegar hann ætíaði að
opna hurðina að herbergi þar sem
þrír lögreglumenn höfðu falið sig fór
ég að svitna. Ég sagði honum að leita
þama inni og að hann mætti ekki
gleyma á bak við gluggatjöldin og
undir rúminu. Þá fór hann að hlæja
og hætti að leita. Ég lét hann fá einn
af hringum Jami og rétti honum svo
myndina af henni látinni. Hann
grandskoðaði myndina en sýndi
engar tilfinningar. Eftir að hafa hellt
sér í glas brosti hann og spurði mig
hvort hún hefði barist á móti,“ sagði
Marinelli við réttarhaldið. „Þrátt fyr-
ir að hún hafi verið móðir dóttur
minnar er ég fegin að hún hafi
þjáðst líkt og hún hefur látið mig
þjást þessa síðustu mánuði. En nú er
þessu lokið og lífið heldur áfram,“
sagði Spain og greiddi Mike uppsett
verð en spurði síðan hvort hann
gæti ekki tekið annað mál að sér. „Ég
þarf nauðsynlega að losna við við-
skiptavin en við skulum bíða í nokk-
urn tíma ef lögregluna grunar mig í
tengslum við morðið á Jami,“ sagði
hann um leið og hann reif mynd-
ina af Jami í tætíur, kveikti í
henni og henti öskunni í kló-
settið. Um leið og þeir
kvöddu yfirgaf Spain hótelið og
flaug heim. Þegar hann steig út úr
vélinni rak hann augun í Robertson
sem hann kannaðist við út af vinn-
unni. „Sæll vertu. Hvernig hefurðu
það?“ spurði hann lögreglumann-
inn. „Ég svaraði honum að mér liði
mjög vel og að Jami væri líka hress
og að hann tæki sig vel út á mynd-
bandi. í fyrstu varð hann grár í fram-
an en missti svo jafnvægið og var
næstum dottinn á götuna."
Verst að hitta ekki dótturina
Robertson og félagar hans í lög-
reglunni komust seinna að því að
Spain hafði áður beðið annan mann
um að myrða Jami. Þá hafði hún ver-
ið ófrísk og Spain hafði beðið mann-
inn um að stinga hana á hol svo
barnið myndi líka deyja. í réttar-
höldunum sem fóru ffam 1997 við-
urkenndi Jeff Spain að hafa skipu-
lagt morðið á fyrrverandi eiginkonu
sinni. „Það sem ég gerði var rangt og
mér þykir þetta leiðinlegt. Ég er feg-
inn að ég var handtekinn áður en
einhver hlaut skaða af. Sama hvaða
refsingu ég fæ er sú staðreynd að ég
eigi ekki eftir að kynnast dóttur
minni versta refsingin." Spain var
dæmdur í átta til tólf ára fangelsi.
„Ég er fegin að ég og dóttir mín erum
heilar á húfi. Eg gerði mér aldrei
grein fyrir hversu mikið Jeff hataði
mig. Ég á Mike Marinelli allt að
þakka. Hann bjargaði lífi mínu þrátt
fyrir að hafa aldrei hitt mig," sagði
Jami eftir réttar-
höldin.
Fjöldamorðinginn Mark Hobson er fyrir rétti í Bretlandi
Játaði fjögur morð
Morðinginn Mark Hobson við-
urkenndi í vikunni að hafa myrt
kærustuna sína, tvíburasystur
hennar og eldri hjón í fyrrasumar.
Claire og Diane Sanderson voru 27
ára og James og Joan Britton voru
um áttrætt. Rétturinn fékk að
heyra að Hobson hefði skipulagt
morðin og að hann hafði einnig
ætíað sér að myrða foreldra systr-
anna.
Hobson hafði flutt inn til Claire
þremur mánuðum fyrir morðin.
Félagi Hobsons segir hann hafa
sagst ætía að næla í systur hennar
þar sem hann hefði valið ranga
systur. Hann plataði því Diane til
að koma í heimsókn en kvöldið
endaði á að þær létust báðar.
Hobson viöurkenndi fyrir rétt-
inum að hafa einnig myrt hjónin
en lögreglan telur að hann hafi
myrt þau eftir að hafa reynt að
ræna þau. „Britton-hjónin voru fá-
tæk og gátu ekki látið Hobson fá
mikið. Hann hefur því ákveðið að
myrða þau.“
Hobson fannst nokkrum
dögum eftir verknaðinn
í skurði. Gamall
maður sem af-
greiddi bensín
þekkti hann á
endanum og
leiddi það til
handtöku hans.
Claire og Diane Sander-
son Tvíburasysturnar voru
myrtar affjöldamorðingj-
anum Mark Hobson.