Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Side 46
46 LAUGARDAGUR 23. APRlL 2005
Sport DV
Hvað gerir
Dallas?
Hér er á ferðinní hörkurimma,
þar sem allt getur gerst. Það eina
sem þessi lið eiga sameiginiegt er
að koma frá Texas, því leikur
þeirra er eins og svart og hvítt.
^ Dallas-liðið hefur
-■■’*?; fram að þessu
verið þekkt
U4 \ íyrir öflug-
\ ansókn-
'' arleik, en
núhefur
' nýi þjálf-
arinn, Avery
Johnson, reynt
að koma að
msr meiri áherslu á
vamarieikinn. Það
jp-r hefur gefist ágætlega og
m liðið var á miklum spretti
B inn í úrslitakeppnina,
með níu sigurleiki í röö.
- Houston er lið sem þjálfað
af mjög varnarsinnuðum þjáffara,
en hefur engu að síður á að skipa
mikium byssum eins og Tracy
McGrady, sem hefur sýnt að hann
getur klárað leiki upp á sitt eins-
dæmi.
Jordan-llðin
mætast
Þessi rimma verður í meira lagi
áhugaverð, því þarna eru á ferð-
inni tvö lið sem hafa átt afar
mögru gengi að fagna í deildinni
sfðustu ár. Chicago Bulls hefur
verið í kjallara NBA-deildarinnar
síðan Michael Jordan hætti og eft-
ir hörmulega byrjun í haust brast
á mikið öskubuskuævintýri í borg
vindanna. Chicago hefur misst
menn í meiðsli nýlega, en vamar-
leikur liðsins, undir stjórn Scotts
Skiles þjálfara, gætt fleytt liðinu
langt. VVashington er hins vegar
lið sem treystir fýrst og fremst á
þrjá leikmenn sem bera liðið
sóknarlega og er hver þeirra full-
fær um að skora 30 stig gegn
hvaða liði sem er. Washington fer
eins langt og þeir Gilbert Arenas,
Larry Hughes og Antawn Jamison
koma því með stórskotahríð
sinni.
Denver er
heitasta liðið
Lið San Antoino hefði mjög
lfkiega viljað sleppa við að mæta
liði Denver í fyrstu umferð úr-
slitakeppninnar, því Denver hefur
verið heitasta lið deildarinnar á
síðustu vikum deiidarkeppninnar.
Árangur liðsins síðan George Karl
þjálfari tók við liðinu er frábær
eða 30 sigurleikir og aðeins 6 töp.
Lið Denver er skipað góðum stór-
um mönnum, sem gætu gert Tim
Duncan, aðalstjömu San Antonio,
lífið leitt, því hann er enn að jafna
sig af erfiðum ökklameiðslum.
Denver er með góðan heimavöll
og frábæran þjálfara, en aðal-
vandamál liðsins er fyrst og
ffemst breiddin. Lið San Antonio
hefur aftur fáa veikleika og er lík-
legt til stórræða, en ljóst er að
Denver gæti valdið töluverðum
vandræðum.
Sextán af þrjátíu liðum NBA-deildarinnar í körfubolta hefla í dag lokabaráttuna
um NBA-meistaratitilinn þegar úrslitakeppnin hefst í bæði Vestur- og Austur-
deildinni. spennan hefur ekki verið meiri í mörg ár, því mörg lið gætu gert harða
hríð að titlinum í þetta sinn. DV skoðar hvaða lið verða sterkust í ár.
Urslitastundin runnin
Bestu menn
l^nf6 °ha' °9 Sie*N°*í>'*°™Valíir°ti
greina sem leikmenn ársins og eru allir komi
neðskTliöinniúrslitakeppnina. DV-myndI
Lið meistaranna kom eins og skrattinn úr sauðarleggnum í fyrra
og vann NBA-meistaratitilinn, öllum að óvörum. Liðið mun fá
meiri samkeppni í Austurdeildinni í ár en í fyrra, þar sem lið
Miami fer frémst í flokki áskorenda. Vestanmegin eru það fyrr-
verandi meistarar San Antonio sem þykja líklegastir til afreka, en
ekki má afskrifa lið eins og deildarmeistara Phoenix Suns, sem
hafa komið allra liða mest á óvart í vetur.
Það var ekki mikill meistarabrag-
ur á Detroit Pistons framan af leik-
tíðinni í vetur og liðið átti í stökustu
vandræðum eftir slagsmálin frægu
við Indiana Pacers í haust. Ekki
hjálpaði það liðinu að þjálfarinn,
Larry Brovm, hefur verið inn og út af
sjúkrahúsum í vetur vegna slæmrar
heilsu og þess á milli hafa spurning-
ar um framtíð hans sem þjálfara
liðsins, dunið á honum.
Eins og margir spáðu hefúr liðinu
hins vegar vaxið mjög ásmegin á síð-
ari hluta leiktíðarinnar og enda-
spretturinn í deildinni í ár hefúr
verið mjög keimlíkur hinum góða
spretti sem liðið átti á sama tíma í
fýrra og þykir það bera vott um að
meistarahjarta leikmanna sé farið
að slá á ný. Eitt er víst að liðin sem
ætía sér í úrslitin í Austurdeildinni,
munu þurfa að fara í gegnum
Detroit.
O'Neal minnir á sig
Miami Heat er það lið sem flestir
telja að muni veita Detroit hvað
mesta keppni í Austurdeiidinni og
margir vilja meina að það fari alia
leið í úrslitin. Það er ekki síst fyrir til-
komu miðherjans Shaquille O’Neal,
sem hefur ekki valdið vonbrigðum á
Flórída síðan hann kom þangað frá
Los Angeles Lakers, en koma hans á
Austurströndina á ný kollvarpaði
valdajafnvæginu í allri deildinni.
Það sýnir glögglega hversu frábær
leikmaður hann er og öfugt við síð-
ustu ár hans í Los Angeles hefur
hann nú harma að hefna og vill
áræðanlega sýna öllum í Englaborg-
inni hverju þeir misstu af þegar
hann var flæmdur frá Lakers. Mi-
ami-liðið, með einbeittan og eilítið
fúlan O’Neal innanborðs, getur
unnið hvaða lið sem er á góðum
degi.
Spurs verður sterkt
í Vesturdeildinni er San Antonio
Spurs talið líklegast til afreka, enda
er kjarninn í liðinu nánast sá sami
og vann titilinn árið 2003. Tim
Duncan á við erfið meiðsli að stríða
og það getur sett stórt strik í reikn-
inginn fyrir liðið, en nái hann að
beita sér að fuilu í úrslitakeppninni
verður liðið illviðráðanlegt.
Phoenix Suns hefur komið allra
liða mest á óvart í vetur og ef það
nær að leika sama keyrsluboltann og
það hefur spilað á tímabilinu öllu,
geur liðið unnið hvern sem er. Það
verður þó að teljast ólíklegt að lið
eins og Phoenix og Dailas, sem leika
hraðan og skemmtilegan sóknarleik,
nái mjög langt í úrslitunum, því þar
er það varnarleikurinn og baráttan
sem er í fyrirrúmi og slíkt hentar liði
San Antonio mun betur.
Allt opið í ár
Forvitnilegt verður að fylgjast
með liðum eins og Houston
Rockets, Denver Nuggets, Chicago
Bulls og Indiana Pacers, en þessi lið
gætu á góðum degi sett strik í reilcn-
inginn fyrir áðurnefnd lið og eins og
Cda/inrfí /í titH'nn? Þe,rBen Wallace og
Chaunc Billups komu mörgum á óvart þegar
Þeir unnu meistaratitilinn ífyrra en nú koma
ÍZr óZnnDetrOÍtPiStZMÍ7inUm
DV-mynd Reuters
ftsWi
áður sagði verður úrslitakeppnin í ár
ein sú mest spennandi í áraraðir, því
í raun er ómögulegt að spá fyrir um
hvaða lið komast í sjálf úrslitin.
Hægt verður að fylgjast
með gangi mála í úr-
slitakeppninni á Sýn á
næstu vikum og fyrsta útsendingin
verður einmitt í kvöld þar sem leikur
Detroit Pistons og Philadelphia
76ers verður á dagsJcrá.
baldur@dv.is
Úrslitakeppni NBA-deildarinnar skemmtileg í ár
Shaq sækist eftir sætum sigri
Það eru mörg skemmtileg einvígi
í 16 liða úrslitum NBA-deildarinnar í
ár og nú beinast augu margra að
austurströndinni sem hefur styrkst
mikið frá ári til árs.
Margir vilja meina að lið New
Jersey Nets gæti velgt efsta liði Aust-
urdeÚdarinnar, Miami Heat, vel
undir uggum. Miami hefur að vísu
unnið allar þrjár viðureignir liðanna
í vetur, en Nets hefur verið á mikilli
siglingu upp á síðkastið, á meðan
Heat hefur verið í vandræðum.
Shaquille O’Neal á við lítilsháttar
meiðsli að stríða og er tæpur fyrir
fyrsta leikinn með Miami og það
gæti orðið vatn á millu Nets, auk
þess sem Richard Jefferson ku vera
nálægt því að verða leikfær á ný með
liðinu.
Rimma Detroit og Philadelphia
gæti orðið mjög áhugaverð, ef ekki
aðeins til að berja Allen Iverson aug-
um, því hann hefur farið hamförum
undanfarnar vikur og skoraði um 35
stig að meðaltali f leik á lokasprett-
inum. Philadelphia fer eins langt og
Iverson fer með liðið og það verður
áhugavert að sjá hvernig meistar-
arnir taka á móti honum.
Boston tekur á móti Reggie Miller
og félögum í Indiana, sem hafa átt í
miklum erfiðleikum í ailan vetur, en
eru sýnd veiði en ekJd gefin í úrslita-
keppninni, sem verður sú síðasta
fyrir Miller sem er að leggja skóna á
hilluna.
Viðureign Seattle og Sacramento
er lituð af því að bæði lið eru í mikl-
um vandræðum með meiðsli lykil-
manna og sérfræðingar vestanhafs
virðast hafa afskrifað þau bæði. Þau
eru þó vel skipuð og gætu vel komið
á óvart í ffamhaldinu.
Phoenix er fyrir-
fram talið líklegt til
að sópa liði Memphis
úr keppni nokkuð
auðveldlega, en þegar
í úrslitakeppnina er
komið verða átökin
meiri og þá hægist á
leiknum, sem gæti
hentað Phoenix
illa. Möguleikar
Phoenix í þessari
úrslitakeppni velta á
því hversu vel liðinu
tekst að keyra upp
hraðann í leikjum
sínum og ef það tekst
gætu þeir farið langt, þó
ekki sé mikil breidd í
liðinu.
baldur@dv.is