Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2005, Qupperneq 54
54 LAUCARDAGUR 23. APRÍL 2005
Helgarblað DV
Hrifinnaf Jörundi
Thomas Keneally, höfundur
verksins sem Spielberg byggði
Schindler’s List á, skrifaði
á laugardaginn rit-
dóm í Guardian
um bókina The
English Dane eftir
Sarah Bakewell.
Þetta er nýjasta
ævisaga Jörundar
hundadagakon-
ungs og á Keneally
varla orð til aö lýsa furðu sinni á
Jörundi og ævi hans. Hann segir
Jörund vera líkastan persónu í
skáldsögu. Lengstan hluta af rit-
dómi sínum rekur hann feril
Hundadagakonungsins en virðist
vera ánægður með ævisöguna
sem Chatto & Windus gefa út.
Frankfurt íhættu
Stelpurnar í Gjörninga-
klúbbnum ætla að gera sitt besta
til að trylla Frankfurtara á safna-
nótt sem þar verður í Scliim -
kúnsthöllinni þar í borg í kvöld.
Þar verða þær með þriggja tíma
performans. Þetta þykir fínt safn,
en þær Eirún, Jóní og Sigrún
segja verkið fjalla um sköpun,
vald, niðurrif og fögnuð. Meðulin
sem eiga að trylla Þjóðverja em
A marengs, sérstakur gjaldmiðill
klúbbsins í 1000 og 3000 ILC
seðlum og hinn svarti, slægi og
glysgjarni hrafii. Þá verður boðið
upp á eldri verk: Sirkustjaldi fyrir
tvo, Heklaðri grímu, og Pípuhött-
um Gjörningaklúbbsins.
Daði í Grafík-
salnum
í dag kl.15 opnar sýning á
vatnslitamyndum eftir Daða
Guðbjörnsson í Grafiksafni ís-
lands, sal íslenskrar grafíkur,
Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Á
sýningunni em um tuttugu verk
öll unnin á síðustu tveimur
ámm. Akvarell-tæknín hentar
mjög vel fyrír hin ljóðræna stíl
sem Daði hefur verið að þróa
ámm saman. Hann reynir að
iýsa flóknum nútíma á ljóðræn-
an og persónulegan hátt. Þessi
aðkoma að listinni hefur verið
mjög áberandi í hinum alþjóð-
lega listheimi eftir tímabil þar
sem minimalisminn hefur verið
nær allsráðandi. Það er fagnað-
arefni að hinn ferski náttúrulegi
andi Daða er enn kominn á
kreik.
Augnablikið fangað er Qögurra dansa skemmtun sem Dansleikhúsið býður uppá á
Nýja sviði Borgarleikhússins. Nýir kraftar bætast þar í hóp eldri danshöfunda og
eru verkin margbreytileg í hugsun og gerð.
Hópurinn tekur lófataki
áhorfenda i lok velheppn-
aðs kvölds á Nýja sviðinu.
Leikhús
Átta ný dansverk eftir íslenska
höfunda líta dagsins ljós nú í sum-
arbyrjun og eru þá ördansar sem
sýndir verða í Góða hirðinum ekki
taldir með. Þetta er mikil gróska. En
það er erfitt þjálfuðum kröftum að
halda sér f formi og hafa einungis
fáein verkefni ár hvert til að stefna
að. Sú aðferð Dansræktar JSB að
halda úti vettvangi fyrir danshöf-
unda er mikils virði. Þegar við bæt-
ist Nútímadanshátíðin í Reykjavík
og stakar sýningar í nafni annarra
dansskóla eða Höfúndasmiðju ÍD
er veltan í starfsemi sjálfstæðra
danshópa orðin veruleg viðbót.
Enda eru rætur íslenska dansins í
starfsemi skólanna og þær hafa síð-
ustu hundrað ár fóstrað dans-
menninguna ffekar en hinir ríkis-
reknu flokkar. Verður ekki að segja
að upphaf listdansins hér á landi
megi reka til konungskomunnar
1907? Samkvæmt því tímamiði er
skammt í aldarafmæli landnáms
listdansins á íslandi.
Dansarnir fjórir í þessari sýn-
ingu voru æri misjafnir: þema sýn-
ingarinnar var veikt, en hyggilegt að
reyna að ná um sýninguna með
þessum hætti.
Núna
Verk Irmu Gunnarsdóttur var
réttur inngangur að kvöldinu: fjórar
konur og karl í undirbúningi
skemmtunar eða lífsins. Hér var
texti nokkur og verkið næst því að
bera leikhússnið. ívar örn styrkti
verkið með ffamkomu og kyndug-
um texta - spunnum? Stöllurnar
Qórar, tvær hvítar og tvær svartar,
búa allar með einum manninum.
En verkið skorti dramatíska þunga-
miðju: átakapunktar illa nýttir og
sýndi að Dansræktin gerði vel að
bjóða til samstarf dramatúrgum til
vinnu með höfundinum. Þetta var
ekki meira en kúnstugt intró.
Kólnandi kaffi
Samstarfsdæmi þeirra Höllu og
Lovísu hafði aftur slíka spennu til að
bera. Tvær konur bíða eftir undirleik-
ara og upp hleðst leiði og síðan átök.
Unnið var í þröngri keilu, húsmunir
nýttir á skemmtilegan hátt og þær
báðar sýndu afgerandi takta, per-
sónulegan stíl í dansinum. Aftur má
velta fyrir sér innviðum. Er dæmið
hugsað til að segja sögu eða skapa
hughrifin ein? En verkið hélt athygli
og þó að niðurstaða væri fyrirsjáan-
leg var Kólnandi kaffi vel unnið htið
dansverk. Þess má geta að Halla hef-
ur verið valin til samkeppni í Kupio í
Finnlandi þar sem haldin hefur verið
danshátíð um langan aldur.
í ræktinni
Katrín Ingvadóttir hef-
ur lengi verið einn helsti
kraftur ÍD og er í stjórn Dansleik-
hússins. Harkalegur dansari með
sterka tilfinningu fyrir sjómennsku
í eigin túlkun. Hér bauð hún upp á
kostulega skemmtun með fjórum
dönsurum og fjórum tímum: eró-
bikktíma Fonda, freestyletímanum
sæla, pallaleikfiminni og loks robe-
jóganum. Bráðfyndið verk sem ýtti
við áhorfendum sem skemmtu sér
konunglega yfir tíðarandanum sem
hér var skopfærður og sýndi að þær
Ásdís, Ásta, Lovísa og Þórdís hafa
ekki síður næmi fyrir skopfærslu
sem oftar mætti sjást í dansi hér á
landi.
Finnskar minningar
Veigamesta og - alvarlegasta
verk kvöldsins var framlag Ólafar.
Samkvæmt prógrammi byggir hún
verkið Hetkinen á minningum sín-
um frá Finnlandi. Það var eitt til
merkis um þann uppruna svipleysi
dansaranna, þungur einmanaleiki
og nikkutónlistin sem vísaði reynd-
ar fullt eins mikið í slavneskar stað-
al-ímyndir.
Verkið var glæsilega lýst og
dansað í fínni búningasamsetningu
af sjö dönsurum. Þar braut sig
gjarna ein frá hóp en ekki sfður lagt
inn með pardansi. Verkið dró vel
fram samstyrk danshópsins og var
að öllu leyti glæsilega flutt af mikl-
um móði og skýrri tilfinningu.
Eftir heldur glannalegt kvöld var
það flottur endapunktur og raunar
það verka Ólafar undanfarin miss-
eri sem í mínum augum hefur þótt
best heppnað.
Danshópurinn
Það er engum blöðum um það að
fletta að sá hópur sem Dansleikhús-
ið hefur yfir að ráða er settur saman
af fínum dönsurum. Þær sem eink-
um fönguðu athygli voru íris Marfa,
Þórdís og Lovísa.
Það er vitaskuld ekki síður atriði í
verkum sem seilast úr dansinum að
gefa túlkendum ríkt persónulegt
inntak umfram hin réttu spor,
tempó og tilfinningu í líkamshreyf-
ingunni.
Þetta kvöld var fín skemmtun og
brýnt er að hlúð sé að þessum sprota
af hinum stóra meiði svo hann verði
burðug grein og beri marga ávexti.
Næstu sýningar á Augnablikinu
verða þann 24. apríl og 1. maí.
Páll Baldvin Baldvinsson
Það er mikil gróska í danshópunum þessa daga.
Ördansar verða fluttir í salarkynnum Sorpu í dag.
Dansaðu,dansaðu
Það er mikið sótt í óvenjuleg
sýningarrými í dansinum þessa
dagana. í gærkvöldi var Jóhann
Freyr með aðra sýningu á verk-
efni sínu fyrir danssmiðju ÍD í
stórum sal í Klink og Bank og í
Nýlistasafninu á Laugavegi var
nýr dans Sveinbjargar Þórhalls-
dóttur sýndur. ördansahátíðin
verður svo haldin í dag í þriðja
sinn kl.15 í Góða hirðinum,
Nytjamarkaði Sorpu, við Fells-
múla.
Hugtakið ördansar er. ekki
skilgreint. Styttri dansar hafa
lengi Verið meginefnið á verk-
efnaskrá sjálfstæðra dansara og
höfunda sem hafa samiö fyrir
þá. Þegar dansinn opnaðist fýrir
áhugamönnum, einkum úr geira
myndlistarinnar á sjötta og sjö-
unda áratug síðustu aldar hófst
þróun sem enn er elcki séð fyrir
endann á. Hópurinn sem stend-
ur að Ördansahátíðinni hefúr
hvatt áhugafólk um ördans til að
gefa hugarfluginu lausan taum-
inn að því er varðar inntak,
framsetningu og stíl atriða. Fram
til þessa hafa ördansar þó átt
það sameiginlegt að taka stuttan
tíma í flutningi eða spanna lítið
svæði. Ber hátíðin því yfirskrift-
ina Fleimilisdansar að þessu
sinni og vegna þess að við erum
svo alþjóðleg í hugsun um þess-
ar mundir skaðar ekki að hafa
enska heitið í frontinum:
Domestic Dances.
Þetta er þriðja árið sem hátíð-
in hefur verið haldin en ördans-
arnir litu fyrst dagsins ljós í Ný-
lendunni, leiklistargalleríi Lab
Loka við Nýlendugötu en í fyrra
var hátíðin haldin í Klink og
Bank við góðar undirtektir. At-
riðin eru að þessu sinni af fjöl-
breyttum toga, ýmist einstak-
lingsdansar eða hópdansar en
vonandi verður staðsetning og
yfirskrift hátíðarinnar til þess að
veita ördönsunum innblástur.
Aðstandendur líta á ördansa-
formið sem alþýðulist sem allir
ættu að hafa aðgang að og eru
því ördansarar/heimilisdansarar
hvattir til að fjölmenna í Góða
hirðinn þar sem áður var
World Class og afgreiðslu
Ikea til að taka þátt og/eða
njóta.
Myndlistarkona
mundar ryksugu
í dansi.