Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRlL 2005
Fréttir DV
AKNIíÁL
Heyrnarlausir
ásafn
Lokið er skráningu á
viðbót við einkaskjalasafti
Félags heyrnarlausra sem
afhent var safninu 10. júlí
2003. Um er að ræða
myndbönd úr starfi félags-
ins og eru þau sögð
skemmtileg viðbót við önn-
ur skjöl frá Félagi heymar-
lausra. Má segja að stór
hluti sögu heyrnarlausra sé
nú varðveittur á Borgar-
skjalasafni Reykjavíkur.
Auk skjalasafns Félags
heyrnarlausra varðveitir
safnið skjöl Vesturhlíðar-
skóla, sem áður hét Heym-
leysingjaskólinn. Hann var
lagður niður árið 2003 og
öll skjöl skólans afhent
Borgarskjalasafni.
Nautaskrá
á netinu
Nautaskrá fyrir árið
2005 er nú komin út og
inniheldur hún upplýs-
ingár um naut sem koma
í fyrsta sinn í dreifingu að
fengnum afkvæmadómi.
En skráin verður gefin út í
heild sinni á haustdög-
um, um það leyti sem
sæðingar fara aö aukast
til muna. Um er að ræða
tíu naut út 1998 árgang-
innog eittút 1997
árganginn. Upplýsingar
em um hvert naut, ætt
þess og útlitseinkenni og
útlisteinkenni dætranna.
Einnig em birtar helstu
tölur um kynbótamat
nautsins sem em bæði á
tölulegu og myndrænu
formi. Nálgast má nauta-
skrána á slóðinni
www.bondi.is.
Stjórnlaus
sinubruni
Slökkviliðið á Blönduósi
var kallað út um klukkan
hálfþrjú í gærdag
vegna sinubruna
við bæinn Sól-
heima í Svína-
vatnshreppi. Að
sögn Hilmars Frí-
mannssonar
varaslökkviliðs-
stjóra vom ábúendur með
leyfi fyrir sinubrunanum en
misstu stjórn á honum þegar
vindátt breyttist skyndilega.
Við það barst eldurinn yfir á
aðra landareign og var
slökkviliðið kallað út. Engin
hætta var þó á ferðum og
ágætlega gekk að slökkva
eldinn. Hilmar segir þetta
fyrsta sinuútkallið en víða
eiga eftir að kveikja í sinu og
fleiri útköll því framundan.
Hann hvetur fólk til að fara
varlega við íkveikjuna.
Hjón á Kleppsveginum vona aö þeim verði ekki stíað í sundur. Kristmundur Þor-
steinsson vill alls ekki að kona hans, Stella Björk Gujónsdóttir, fari í fangelsi fyrir
að hafa stungið hann með hníf. Mál Stellu er nú til meðferðar í héraðsdómi. Krist-
mundur vill heldur að þau hjónin fái að einbeita sér að því að koma sér á réttan
kjöl eftir áralangt rugl og óreglu.
Stella, Kristmundur og
hnífurinn Isvefnheberg-
inu þar sem Stella stakk
I Kristmund I bakið.
Móðgaði konu síno og iékk
hníi í bakið að lounum
„Ég veit ekki alveg af hverju hún stakk mig,“ segir Kristmundur
Þorsteinsson húsamálari, en kona hans, Stella Björk Guðjóns-
dóttir, stakk hann í bakið með steikarhníf skömmu fyrir árámót,
Málið er til meðferðar í Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Kristmundur hef-
ur að fiillu fyrirgefið konu sinni
hmfstunguna og segir að ölæði
þeirra tveggja á þessum tíma sé um
að kenna. Hann segir að helst hefði
hann sjálfur viljað að málið yrði lát-
ið niður falla, því hann og Stella eru
að reyna að koma undir sig fótunum
eftir langt óregluskeið.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
DV segir frá konum sem stinga
menn sína í bakið. Fyrir skömmu
sagði blaðið frá Petru Sigríði Gunn-
arsdóttur sem stakk kærasta sinn,
Jóhannes Gunnarsson, einnig í bak-
ið. Jóhannes hefur, líkt og Krist-
mundur, fyrirgefið kærustu sinni og
biðst vægðar fyrir hennar hönd.
Stakk hann í rúminu
„Þetta er helvíti hart,“ segir Krist-
mundur Þorsteinsson. „Við Stella
erum rétt búin að tína okkur upp úr
óreglu sem við vorum í og þá kemur
þetta mál upp úr djúpinu."
Kristmundur segist ekki alveg
muna hvað leiddi til þess að kona
hans þreif steikarhníf og lét hann
vaða í bak hans. „Við vorum að
borða uppi í rúmi og ég hlýt að hafa
sagt eitthvað móðgandi við hana."
Hann segir að í þann mund sem
hann reis upp úr rúminu hafi hann
látið einhver orð falla og þá hafi
Stella stungið hann.
Hættulegir áverkar
„Það er ekki eins og hún myndi
grípa til vopna edrú," segir Krist-
mundur, augljóslega hryggur yfir
þeirri klípu sem kona hans hefúr
komið sér í. „Ég man að ég fór út úr
íbúðinni og hringdi á sjúkrabíl. Fyrst
þegar löggan spurði mig hvað hefði
komið fyrir vildi ég ekkert segja, en
eftir að hafa fengið mjög sterk
verkjalyf gaf ég mig og sagði hvað
hafði komið fýrir."
Lögreglan fór þá að heimili Stellu
og færði hana í varðhald, enda
áverka Kristmundar mjög alvarlegir.
Hnífstungan gerði það að verkum að
gat kom á lunga Kristmundar og féfi
það saman. Stella var í haldi lögreglu
„Við vorum að borða
uppií rúmi og ég hlýt
að hafa sagt eitthvað
móðgandi við hana."
til klukkan sex daginn eftir og var
sleppt eftir að hafa gefið skýrslu.
Vill ekki konuna í fangelsi
Nú verður hins vegar að bíða og
sjá hvað verður um hnífaparið Krist-
mund og Stellu. Kristmundur vill
síst af öllu að kona hans verði færð í
fangelsi. Vill heldur að þau haldi
áfrarn að einbeita sér að því að koma
lífi sínu á réttan kjöl. Kristmundur
segir að eftir erfiða tíma sé engin
vanþörf á. andri@dv.is
í landi óttans
Svarthöfði er hræddur. Svart-
höfði er mjög hræddur. Glæpalýður
er á hverju strái, berjandi allt í
klessu sem á vegi hans verður.
Svarthöfði ætlar að halda sig innan
dyra í sumar, kaupa sér þjófavarn-
arkerfi af fullkomnustu gerð og
helst fá sér byssuleyfi og riffil til að
verja sig og fjölskyldu sína. Hvar
eru Chuck Norris og Charles Bran-
son þegar maður þarf á þeim að
halda?
Svarthöfði ætlar aldrei á A. Han-
sen í Hafnarfirði. Þar gæti hann átt
á hættu að vera hálfdrepinn með
öxi. Svarthöfði ætlar aldrei á Hverf-
isbarinn. Það þykir manndóms-
vígsla að hætta sér í biðröðina þar.
Strákhvolpar tryUast víst og lumbra
á hverjum sem er í þeirri röð, sér-
staklega á þeim sem dirfast að
kvarta yfir frekjunni í þeim í röð-
inni. Svarthöfði vonar í lengstu röð
að börnin hans verði ekld dópistar.
Það er auðvitað ömurlegt að sjá á
eftir krökkunum í þann sorglega
skítapytt sem eiturlyfjaneysla er,
en ekM bætir úr skák þegar dópsal-
ar og handrukkarar á þeirra vegum
byrja að innheimta skuldir. Þá er nú
snöggtum skárra að skulda bankan-
um og láta hann gera lögtak hjá sér.
Svarthöfði skilur ekkert í því
hvað löggan er slök yfir þessu öllu
saman. Þeir segja að það sé ekkert
svo mikið meira ofbeldi núna en
áður. Það breytir þó ekki því að
glæpahyskið fær að fara heim ef
það játar. Þá er því frjálst að skeUa
sér á rúntinn og gorta sig og hóta
barsmíðum og jafnvel dauða. Lögg-
an er voða „tjiUuð", eins og sagt er,
og helst þurfa menn að vera búnir
að hóta ofbeldinu í einhvern tíma
tU að vera lokaðir inni. Ef maður
hótar engu heldur gengur beint í
málið, er manni sleppt. Þetta fékk
gaurinn sem kýldi prófessorinn að
reyna. Ef hann hefði haft vit á því að
sleppa hótunum og bara mætt með
loftriffil, dregið prófessorinn upp í
sveit og skotið í nakið bak hans
hefði honum bara verið sleppt að
lokinni yfirheyrslu og ekki þurft að
fara í geðrannsókn. Nema það sé
ekki það sama Jón og séra Jón í
þessu máli eins og svo mörgum
öðrum. Eða öUu heldur ekki það
sama 17 ára strákgrey í dópi og virt-
ur prófessor. Gæti það verið?
Svaithöföi
Hvernig hefur þú það?
„Ég er nú bara aö taka þvírólega eftir sigurinn um helgina, “ segir Samúel ívar Árna-
son markamaskína úr handboltaliði lBV.„Síöan fer maður að undirbúa sig fyrir viöur-
eignina við Islandsmeistara Hauka. Viö nálgumst það bara eins og hvert annað verk-
efni og hræðumst þá ekkert, nema kannski Frey Brynjarsson. *