Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRlL 2005 Fjölskyldan DV Góð leið til að fá heildarsýn yfir heimanám bamanna er námsmarkmið. Heimavinnunni er hægt að deila yfir vikuna þannig að álagið dreifist og bamið hefur þannig eitthvað markvisst til að vinna að. Foreldrar ættu að reyna að nálgast heimavinnu- áætlun hjá kennurum barnanna, ef þeim er ekki dreift reglulega, og hjálpa barninu að skipuleggja vinnu sína. Gott er að hafa í huga námsgetu barnanna og passa að spenna bogann ekki of hátt. Hrós er guils ígildi og fleytir mönnum, ungum sem öldnum, langt. yf Lestur er börnum mikilvægur Ef þú átt ungt barn er mikil- vægt að það læri sem fyrst mikil- vægi og gildi þess að lesa. í dag em börn með svo greiðan aðgang að sjónvarpi og tölvuleikjum að þau leita aldrei neitt annað til að skemmta sér heima fyrir. Það er því mikilvægt að börnin fái að kynnast því hversu gaman það er að lesa góða bók. Það em margar góðar og gildar leiðir til að kenna barninu skemmtanagildi lesturs, en þegar þau em það ung að þau geti ekki lesið sjálf þar vitaskuld að lesa fyrir þau og með þeim og fólk ætti að nota öll tækifæri tif þess, til dæmis fyrirsagnir á blöð- um í matvömbúðinni, mynda- sögur í dagblöðum og þar fram eftir götunum. Þarf að deila vinningnum með konunni Brasilískur maður hefur verið dæmdur til að deila fimm millj- óna punda lottóvinningi sínum með fyrrverandi eiginkonu sinni. Konan lög- sótti manninn eftirað hún komst að því að hann fékk vinning- inná meðan þau vom enn gift. Hann hélt því leyndu þar til skilnaðurinn gekk í gegn árið 1998. Dómarinn sagði manninn hafa hagað sér skammarlega og var hann dæmdur til að deila vinnings- upphæðinni með konunni. Eftir skilnaðinn rann á hana tvær grímur er hún tók eftir því að maðurinn, sem er ónafhgreind- ur, hóf að kaupa sér nýja fína bíla, ný föt og lifði góðu næturlífi. Húmorergott hjálpartæki Ef illa geng- ur að fá börn- in til að hlýða, úl dæmis að klæða sig í föún á morgnana, getur verið gott ráð að nota smá kímni. Til dæmis að fara í kapp við barnið um hver sé fyrstur að klæða sig. Það hefur gefið góða raun, oftast gera börnin sér ekki grein fyrir því að þau em að sinna leiðindaverki, þeim liggur svo mikið á að vinna kappið. Kjartan Már Benediktsson hefur það að atvinnu að rækta landið. Honum finnst einnig mikilvægt að rækta tengsl mannsins við náttúruna og telur það nauðsyn- legt að börn kynnist henni sem fyrst á lífsleiðinni. Með afabarninu Kjartan Már heldur hér á barnabarni sínu.Aski Hrafni. snertlngu viO náttúraia Kjartan Már Benediktsson starfar hjá Landgræðslu ríkisins og býr á Hvolsvelli. Hann á einnig jörð í nágrenni bæjarins sem hann not- ar fyrir skepnuhald, en hann telur það afar mikilvægt að fólk hcddi nánum tengslum við náttúmna, ekki síst yngri kynslóðina. Sjálfur á hann fjórar dætur og eitt barnabarn sem hann er nú að kynna fýrir nátt- úmnni og dýrunum. „Börnin þurfa að komast í tengslvið náttúruna og kynnast þeim hluta lífsins. Nú er nóg að gera í kringum dýrahaldið, ég var að hleypa út geldfé og hrút- um og svo fara trippin fljóúega.“ í næsta nágrenni við jörð Kjart- ans er bærinn Akurhóll sem er meðferðarheimili á vegum Götu- smiðjunnar. Kjartan furðar sig á því að aðstandendur skuli ekki nýta sér þessa góðu staðsetningu. „Mér finnst furðulegt að þeir unglingar sem þangað koma til meðferðar mega ekki neitt gera. Ég sótú um að fá þau í vinnu og æúaði að hafa stuttan vinnudag fyrir þau, bara rétt til að kenna þeim að lifa og læra að vinna. Margir unglingar hafa aldrei unnið og tel ég að það ætú að vera hluti af meðferðinni. Þess í stað rölta þau um svæðið og fara í mesta lagi í einhvern kofa þar sem þau hlusta á þungarokk." Vinnuharka „Sjálfur er ég ansi vinnuharður eins og dætur mínar vita, enda held ég að þær komist best áfram á því að ég lét þær vinna mikið. Það er mjög mikið gildi í því. Nú er ég byrj- aður að kynna barnabarnið fyrir þessum heimi, dýrunum og náttúr- unni. Það er það sem heldur manni gangandi í þessu,“ segir Kjartan. „Það er svo margt að sýna og segja ffá. Til dæmis einfalt atriði eins og að maturinn verði ekki til í búðinni þar sem hann er seldur." Yngsta dótúr Kjartans, írena Sif, leggur stund á íslenska gh'mu og er silfurhafi í sínum flokki. „Já, þessar stelpur eru alveg svínhraustar. Stór hluú af öllu því sem þær taka sér fyrir hendur er sú vinnusemi og agi sem þær höfðu í uppeldinu, það er lykillinn að lífinu og framú'ðinni. Sú kunnátta að komast af er nauðsyn- leg fyrir fólk sem æúar sér að standa á eigin fótum í lífinu." I Talað við dýrin Irena Sif I með litla frænda sínum. Sjálfbær landgræðsla Eins og fyrr segir starfar Kjart- an hjá Landgræðslu nkisins og er hann verkstjóri í Gunnarsholti. Þar hefur hann stundað ýmsar til- raunir, eins og áður heftir komið fram víða í fréttum. Starf hans gengur að miklu leyú út á að gera landgræðslu hluta af náttúrunni - gera hana sjálfbæra. „Það gengur rosalega vel og haldið verður áfram með þetta starf. Þetta er þægilegasta aðferðin við að rækta landið, láta náttúruna vinna verk- ið.“ Sem dæmi má nefna að Kjart- an og hans samstarfsmenn hafa unnið að því að láta fugla, svo sem snjótitúinga og hrafna, bera fræ á sínum leiðum og þá hefur verið unnið að frjóvgunartilraunum með lúpínu og giljaflækjur. „Við höfum þegar séð góðan árangur af þessu," segir Kjartan stolltur, en heimtar svo að fá að snúa aftur til starfa. eirikurst@dv.is Börnln jnrfa nðknmastí Snerting er talin ungbörnum álíka mikilvæg og svefn og næring Knúsið er lífsnauðsynlegt fyrir börnin Ýmsar rannsóknir hafa verið gerðar á þörf ungabarna fyrir snerúngu. Niðurstöður virðast allar benda til þess að þörf þeirra er gríðarlega mikilvæg og má sem dæmi nefna að niðurstöður rann- sókna benda til þess að fyrirbur- ar, nýburar og ungbörn sem eru snert og tekin upp reglulega þroskist mun betur en þau sem fá litla snertingu. Þau sem eru tekin upp, knúsuð, föðmuð, ruggað, klappað og strokið vaxa hraðar og byrja fyrr að skríða, ganga og hrifsa. Þau eru einnig virkari, at- hugulli, sofa betur, hafa yfirleitt öflugra ónæmiskerfi og koma betur út í greindarprófum en þau sem eru látin ligga ein og ósnert í langtímum saman. Talið er að snerting sé jafnvel ámóta mikil- væg fyrir líkamlegan, félagslegan og andlegan þroska ungbarns og svefn og næring. Rannsakendur frá læknadeild Harvard-háskóla komust að því að ungbörn á alltof fjölmennu munaðarleysingjahæli í Rúmeníu sem lágu klukkutím- um saman án mannlegrar snert- ingar þjáðust af skertum vexú og óeðlilega háu magni af streitu- hormóninu kortisól. Sennilegasta skýringin á þörf ungbarna fyrir snertingu er sú að í móðurkviði venjast þau stöðugri snertingu legvatnsins. Sinntu þörfum barnsins og snertu það af alúð. Nánar má lesa um snertiskynið á síðunni visindavefur.hi.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.