Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Blaðsíða 12
72 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2005 Fréttir DV Fé til Harðar og Mugison Menntamála- ráðuneytið hefur að tillögu tónlist- arráðs í fyrsta sinn úthlutað styrkjum úr tón- listarsjóði. Á fjár- lögum 2005 eru 50 milljónir til tónlistarsjóðs og nema styrkveitingar að þessu sinni um 35 milljón- um. 59 verkefhi hlutu styrk í ár og þar af eru þrír starfs- styrkir til þriggja ára. Meðal þeirra sem hlutu styrk að þessu sinni er Hörður Torfason sem fékk 200 þús- und krónur til hausttón- leika árið 2005. Tónlistar- maðurinn Mugison fékk hálfa milljón til þess að setja í tónleikarferðalag og markaðssetningu. 123 um- sóknir bárust. Vanþróuð framleiðsla Við útskrift á Mætti kvenna, rekstrarnámi fyrir konur í atvinnu- rekstri á landsbyggðinni, gagnrýndi Runólfur Ágústsson rektor harð- lega þær hugmyndir að safha helstu háskólum og rannsóknarstofnun- um landsins á einn stað í miðborg Reykjavíkur. Runólfur sagði slfkar hugmyndir í besta falli úreltar og í versta falli til þess falinar að skipta þjóðinni í tvær þjóðir: Þróað þekkingarsamfé- lag á höfuðborgarsvæð- inu og vanþróað frum- framleiðslusamfélag á landsbyggðinni. Runólf- ur spurði hvort þetta væri vilji íslendinga. Bílvelta í Eyjafirði Bíll valt við bæinn Höfn á Svalbarðsströnd í Eyja- firði á sunnu- dagskvöldið. Að sögn lög- reglunnar á Akureyri var bfllinn í miðri beygju og lenti úti f kanti með þeim afieiðingum að ökumaður missti stjórn á bílnum í lausamöl og bíllinn valt. Til allrar mildi urðu engin telj- andi meiðsl á fólki. Bíllinn er hins vegar stórskemmd- ur og þurfti að flytja hann af vettvangi á vörubíl. „Það er bara búið að vera glimrandi gangurhérna síðan ég opnaði," segir Þórarinn Hávarðsson, Tóti Hæja, veit- ingamaður á Toppnum á Eski- firöi. __________ Landsíminn nóg búið aö vera aö gera enda mikið um aö vera hér fyrir austan núna. Ég var með stelpur frá Goldfinger hérna um helgina til dæmis en svo er nóg að gera Imatnum bara. Svo erum við náttúrulega í skýjunum með nýju Verslunar- miðstöðina á Reyðarfirði, Mol- ann. Hann var tímabær og vel þeginn." Akureyringar ætla að mótmæla ofbeldisverkum Þorsteins Hafberg og Daníels Christensen, tveggja handrukkara í bænum, á föstudaginn. Móðir fórnarlambs handrukkaranna segist ánægð með stuðning sem hún finni fyrir í bænum. Hún ætlar að mæta á mótmælin. Handrukkararnir tveir brutu báðir skilorð með ofbeld- isverkum sínum en ganga enn lausir. Móðir drengsins sem handrukkararnir Þorsteinn Hafberg og Daníel Christensen skutu með gasskammbyssu á Akureyri er ánægð með þann stuðning sem hún finnur fyrir frá bæjarbúum. Menntaskólanemar og bæjaryfirvöld hafa skipulagt mótmæh gegn auknu ofbeldi í bænum næstkomandi föstudag. Móðir drengsins segir framtakið afar jákvætt. „Ég hef fundið fyrir miklum stuðningi og hugsa að ég mæti á föstudaginn," segir móðirin sem brá sér úr bænum um helgina. Fréttirnar af því að ofbeldismenn- irnir sem misþyrmdu syni hennar gengju lausir og héldu áfram upp- teknum hætti voru henni erfiðar. „Nú er svo búið að sleppa báð- um mönnunum og ég upplifi mig varnarlausa," sagði móðirin í viðtali við DV um helgina. Nóg boðið Það er ungt fólk í bænum sem stendur fyrir mótmælunum. Valdís Jónsdóttir er í Menntaskólanum á Akureyri og hún segir fólki á Akur- eyri brugðið. „Við sem stöndum að þessum mótmælum höfum tekið eftir að ofbeldi hér fer vaxandi og við viljum senda þau skilaboð að nú sé nóg komið,“ sagði Valdís á sunnudaginn þegar ákvörðun um mótmælin var tekin. Hrottalegt ofbeldi Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, hefur lýst því yfir að hann búist við að meirihluti bæjarbúa mæti á föstudaginn. Lití- ar líkur verða þó að teljast á því að Þorsteinn Hafberg og Daníel Christensen mæti. Verknaður þeirra hefur vakið óhug á Akureyri en þeir niðurlægðu 17 ára dreng, „Ég hef fundið fyrír miklum stuðningi og hugsa að ég mæti á föstudaginn." létu hann afklæðast og veittu honum alvarlega áverka með gasskammbyssu. Óttast enn Báðir voru þeir að brjóta skilorð og hafa áður verið dæmdir fyrir ofbeldisbrot. Á síðasta ári hlaut Daníel dóm fyrir að hóta að myrða fjölskyldu víkingasveitarmanns í bænum. Þegar blaðamaður DV hitti þá félaga svo í síðustu viku voru þeir báðir lausir úr haldi, rúntuðu um bæinn á bláum Subaru Impreza, hótuðu fólki, stærðu sig af ofbeldisverkum sínum og sögðust ætla að stúta fórnarlambi sínu frá Þorsteinn Hafberg handrukkari Akur- eyringar mótmæla ofbeldisverkum Þor- steins og félaga hans Daníeis Christensen. því um helgina þegar hann kæmi úr meðferð. Segir móðir drengsins líðan hans slæma. Hann óttist enn þrátt fyrir að vera ekki í bænum. simon@dv.is ftlf Hönnunargalli á nýju sundlauginni í Kópavogi Arkitektúr fyrir nakta karlmenn Horft ofan f útiklefa karla Reynt hefur verið að blokkera sjónvinkil úr líkamsræktarstööinni með ýmsum ráðum en verkinu er ekki alveg lokið eins og sjá má. Þegar nýja sundlaugin í Sala- hverfinu var opnuð á dögunum kom í ljós hönnunargalli sem menn þurftu að bregðast við. Úr glugga á líkamsræktarstöð er hægt að horfa ofan í útiklefa karla að hluta og fylgjast með karlkyns gestum nökt- um. Mislíkar sumum sem útiklef- ana nota að vera þannig til sýnis á adamsklæðunum einum. „Þetta gæti nú vart verið minna og við teljum okkur vera búna að blokkera þennan sjónvinkil," segir Guðmundur Harðarson, forstöðu- maður nýju Salalaugarinnar í Kópavogi. „Við settum þarna upp rimla til að draga úr útsýninu en þetta er ekki fullfrágengið og líklega setjum við að auki upp gler með filmu þannig að ekkert sjáist. En menn hafa ekki kvartað við mig út af þessu," segir forstöðumaðurinn í Salalauginni. Annars er Guðmundur Harðar- son ánægður með nýju laugina eins og gestir almennt þrátt fyrir þenn- an galla sem nú á að ráða bót á. Arkitekt laugarinnar er Benjamín Magnússon en hann er líklega þekktastur fyrir að hafa teiknað Gerðarsafnið í Kópavogi. Salalaugin í Kópavogi býður upp á langan opnunartíma í samkeppni við aðrar sundlaugar á höfuðborg- arsvæðinu. Opið er frá hálfsjö á morgnana á virkum dögum og fram til klukkan hálfellefu á kvöldin og um helgar frá klukkan átta og fram til klukkan tíu um kvöld. Með risahníf á djamminu f síðustu viku var Lög- reglunni á ísafirði til- kynnt um mann á skemmtistað í bæn- um sem hafði hníf undir höndum. Lög- reglan fór á vettvang til þess að kanna málið en fljótíega komíljósaðmað- urinn ógnaði eng- um á staðnum. Hann var hins vegar með hangikjötslæri sem hann ætíaði að skera í sneiðar og gefa fólki í kringum sig. Hnífurinn var í stærri kantinum, stærri en lög leyfa, og var því fjarlægð- ur. Maðurinn fékk þó að halda lærinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.